Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Side 19
25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Ferðalög og flakk
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
SÓFUM OG BORÐUM – MIKIÐ ÚRVAL, FRÁBÆRT VERÐ
359.990
VERÐ: 419.990
ETHAN Hornsófi. Slitsterkt áklæði.
Stærð: 240x240 H: 96,5 cm.
NÚNA
60.000
KR. AFSLÁTTUR
69.990
VERÐ: 79.990
ARLAND Sófaborð með gleri.
L: 121 B: 66 H: 46 cm.
Einnig fáanleg
ARLAND Hornborð
og bakborð
NÚNA
10.000
KR. AFSLÁTTUR
* Fjölbreytt skemmtunÞá er hægt að fara í Aqual-
andia, sem er risastór vatna-
garður með öllu tilheyrandi,
rússibönum og lóni þar sem
er svæði fyrir börn. Go kart
er nálægt Carrefour. Að sjálf-
sögðu eru á svæðinu grænar
grundir þar sem spila má golf.
Skemmtilegir markaðir eru í
Costa Blanca. Mundomar er
heillandi ævintýraland með
fallegu sjávarlífi og framandi
fuglalífi.
* Ekki alls staðar tekið viðkreditkortum Ferðalangar til sólar-
stranda Spánar ættu að athuga að
smærri verslanir og veitingastaðir taka
oft ekki við kreditkortum og oft er
lágmarksupphæð sem versla þarf fyrir
á kreditkort 20 evrur eða um 3.300
kr. Það er einnig vert að taka fram að
Spánverjar tala mjög litla ensku, svo
stundum lenti ég í dálitlum vandræð-
um. Það gæti verið sniðugt að taka
með sér spænsk-íslenska orðabók en
annars er ótrúlegt hvað það má alltaf
bjarga sér með látbragði!
* Margir gestir á áriVegurinn til Guadalest liggur
bugðóttur utan í bröttum
hlíðum fjalls svo bara akst-
urinn er eftirminnilegur. En í
þorpinu Guadalest eru forn
mannvirki frá 8. öld byggð
inn í kletti í um 900 m yfir
sjávarmáli. Þessar rústir eru
til vitnis um stormasama
sögu þess. Þetta þorp er
eitt sérstæðasta þorp Spán-
ar, íbúar eru 200 en ferða-
menn um 2 milljónir á ári.
Matarmenning á sólarströndum Spánar er með ágætum en flestir eru staðirnir keimlíkir og bjóða upp á svip-
aða rétti á miðlungsverði. Þó eru innan um staðir sem leggja meiri metnað í matseldina og bjóða upp á for-
vitnilega rétti en eru þá í dýrari kantinum. Það getur verið vel þess virði að heimsækja slíkan stað einu sinni.
Ég segi hér frá þremur stöðum sem mér þóttu góðir.
Hinn gamli og góði rækjukokteill ásamt nautasteik varð fyrir valinu á Venez Reztaurante, Avda. Osc-
ar Esplá, no 12 – Local 7, og fór hvort tveggja vel í maga. Mér finnst alltaf dálítið skemmtilegt að komast
öðru hvoru í kynni við rækjukokteilinn og nautasteikin stendur alltaf fyrir sínu. Reikningurinn hljóðaði upp á
4.770 kr. ásamt tveimur gosglösum en þess ber að geta að gos á Spáni kostar yfirleitt það sama og bjór.
Í Altea stóðst ég ekki freistinguna og fór
inn í konditoríið Desabors, Carrer Sant
Miquel, 4, sem svo sannarlega bar nafn með
rentu. Hillurnar hreinlega svignuðu undan
svo súkkulaði- og ávaxtaprýddum smákök-
unum að ég fékk valkvíða með það sama,
vildi helst borða þær allar, enda kostaði hver
þeirra ekki nema rúmar 400 íslenskar krón-
ur, sem mér fannst aflandskrónur á priki
miðað við dýrðina. En ég fékk mér bara eina
og naut hennar út í ystu æsar.
Restaurante Sídería Aurrerra, Sto.
Domingo á Benidorm var í dýrari kantinum
en þar fékk ég mér ætiþistla sem fylltir voru með rækjum og með fylgdi frábær, sérkennilegur en afar góður
réttur. Þá fékk ég mér saltfisk í aðalrétt, sem var dýrlegur alveg þangað til ég komst að því að hann var frá
Nýja-Sjálandi, þá varð hann bara yndislegur. Fyrir þetta greiddi ég ásamt tveimur gosglösum um 6.800 ís-
lenskar krónur.
Yndislegur saltfiskur!