Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Qupperneq 20
*Heilsa og hreyfingErlendir ferðamenn geta nú fengið hlaupandi leiðsögn um Reykjavík og nágrenni »22
J ón Svavar Jósefsson er maður margra hæfileika eins og hefur komið fram íþáttunum 360 gráður á RÚV. Þar gengur hann undir nafninu MeðalJón ogprófar hinar ýmsu íþróttategundir. Hann hefur prófað siglingar, bogfimi,
tennis, golf, spjótkast, fjallabrun, samkvæmisdans, skotfimi, krullu og karate
og sýnt ótrúlega hæfileika í sumum þeirra. Um leið og hann prófar íþróttina er
hann að kynna hana. „Þeim sem ég hitti, sem kenna mér íþróttina, finnst þetta
frábær kynning fyrir íþróttina almennt,“ segir Jón Svavar sem er ófeiminn við
að henda sér í djúpu laugina. „Það hefur gengið betur en margir þorðu að vona.
Ég er frekar íþróttamannslegur að eðisfari,“ segir Jón Svavar, sem æfði júdó
„þegar hann var patti“ og svo æfði hann skíði á Akureyri, þar sem hann er
fæddur og uppalinn.
Hefur alltaf hjólað mikið
„Ég flutti 15 ára suður og það er allt annað að æfa skíði hér heldur en fyrir
norðan, langt að fara miðað við á Akureyri. Þar er maður svo fljótur, kominn
strax upp eftir eftir skóla.“
Er einhver ein íþrótt sem hefur heillað þig meira en aðrar af þeim sem þú
hefur prófað í þáttunum? „Þetta er erfitt val. En mér fannst stórskemmtilegt
að prófa krullu,“ segir Jón Svavar en hann átti stórgóða takta á svellinu. „Það
kom okkur öllum á óvart að ég var mjög fínn í krullu. Og fjallabrun er annað
sem mér fannst rosalega gaman,“ segir hann og bætir við að hann hafi alltaf
hjólað mikið. „Það er gaman að fá alltaf besta fólkið á landinu til að kenna
manni,“ segir hann og bendir til dæmis á Ásdísi Hjálmsdóttur sem kenndi hon-
um spjótkast í síðasta þætti.
Hápunkturinn hjá börnunum ef hann dettur á hausinn
„Ég hef tekið eftir því að það er ágætis áhorf á þetta, það virðast margir taka
eftir mér í þessu og það finnst öllum skemmtilegast þegar mér mistekst eitt-
hvað. Ég kenni börnum í 1.-3. bekk tónmennt og hjá þeim er hápunkturinn ef
ég dett. Þeim finnst það mjög fyndið. Það er auðvitað gaman að fljúga á haus-
inn líka,“ segir Jón Svavar sem er jákvæður maður og mætir alltaf til leiks með
opinn huga. „Ég lít á þetta fyrst og fremst sem skemmtilega reynslu. Svo er ég
ansi jákvæður sjálfur. Mér finnst skipta máli að vera hress og ófeiminn, þá fær
maður mest út úr þessu. Það er mikilvægt að reyna að fara eftir leiðbeiningum
og vera opinn og jákvæður, annars mistekst þetta. Svo er ég enginn MeðalJón,
það er löngu búið að sannast.“
KYNNIR ÍÞRÓTTIR FYRIR SJÁLFUM SÉR OG ÖÐRUM
Góður
í krullu
JÓN SVAVAR JÓSEFSSON ER ÞEKKTASTUR Í HLUTVERKI SÍNU
SEM MEÐALJÓN Í SJÓNVARPSÞÁTTUNUM 360 GRÁÐUR Á RÚV
ÞAR SEM HANN PRÓFAR HINAR ÝMSU ÍÞRÓTTATEGUNDIR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þegar Jón Svavar er ekki í gula og svarta
íþróttagallanum er hann óperusöngvari,
nánar tiltekið barítón. Hann er fjölhæfur
á tónlistarsviðinu, rétt eins og íþrótta-
sviðinu. Auk þess að kenna tónmennt í
Vesturbæjarskóla syngur hann við jarð-
arfarir, er í kammerkórum og söngvari
með djasshljómsveit. Svo má ekki
gleyma því að hann er kórstjóri Bartóna,
sem er karlakór hins víðfræga Kaffibars.
Hann hefur sungið einsöng með Sinfón-
íuhjómsveit Íslands og verið í sýningum
Íslensku óperunnar.
Núna fer jólavertíðin að fara í gang.
„Við erum fjórir söngvarar saman og er-
um mikið á vappi um jólin að syngja á
götuhornum. Svo er ég í dúói með píanói. Guðrún Dalía er einkapíanóleikarinn
minn. Við gerum margt saman og náum skemmtilegum og líflegum flutningi sam-
an.
Jón Svavar æfir ekki neinar íþróttir sem stendur. „Ég vann við það síðastliðin
tíu ár að járna hross, það hélt mér í gríðarlega góðu formi. Það var mín íþrótt
og er erfiðara en margar aðrar íþróttir.“
Jón Svavar ásamt píanóleikaranum
Guðrúnu Dalíu.
Óperusöngvari
sem kann að járna hesta
Morgunblaðið/RAX