Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 22
Þ eir hafa báðir lent í því að vera staddir á hóteli erlendis, dauðlangað út að hlaupa en endað á hlaupabretti í kjallaranum, þar sem þeir rötuðu ekki um viðkom- andi borg. Nú eða með því að hlaupa í hringi í nálægum al- menningsgarði. Það er lítið vit í því fyrir útlending að láta eftir löngunum sínum við þessar að- stæður. Gildir þá einu hvort maður heitir Hávar Sigurjónsson, Óskar Jakobsson eða eitthvað allt annað. „Ég hef reyndar gert það,“ upplýsir Hávar. „Fyrir nokkrum árum var ég staddur í Zagreb í Króatíu og stóðst ekki mátið að fara út að hlaupa. Hljóp upp í einhverjar hæðir og vakti óskipta athygli á harðahlaupum á stutt- buxunum. Skynjaði fljótt að fólk var þessu ekki vant. Margir veif- uðu til mín, eins og ég væri frá annarri plánetu. Þegar ég kom aftur á hótelið færði ég þetta í tal við starfsfólkið sem saup hveljur: „Hvernig datt þér í hug að hlaupa gegnum þetta hverfi?“ Þá var þetta greinilega ekki eitt af fínni og öruggari hverfum borgarinnar.“ Öruggt og afslappað Alveg eins og Hávar og Óskar hafa átt í erfiðleikum með að svala hlaupaþorsta sínum ytra hafa erlendir áhugamenn um víðavangshlaup örugglega komist í bobba hér heima. Til að freista þess að greiða úr þeirri flækju hafa þeir nú stofnað til þjónustu við þetta fólk, Running Guide Reykjavík. Það setur sig í sam- band við þá og semur um tíma, eina klukkustund, tvær eða fleiri, þar sem Hávar og Óskar hlaupa með því og leiðsegja um hlaup- astíga og götur á höfuðborg- arsvæðinu. „Með þessu lagi getur fólk hlaupið öruggt og afslappað án þess að hafa stöðugar áhyggjur af því að villast eða verða fyrir áreiti,“ segir Óskar. Þeir félagar eru margreyndir víðavangshlauparar og geta fyrir vikið sinnt breiðum hópi fólks, allt frá skemmtiskokkurum upp í maraþonhlaupara í þjálfun. „Menn þurfa að vera býsna góðir til að hlaupa okkur af sér, sér- staklega Óskar. Hann er mjög hraður,“ segir Hávar. „Þurfi menn að hlaupa hraðar en við ráðum við getum við örugglega útvegað rétta leiðsögumanninn. Menn þekkjast býsna vel í þessu samfélagi hlaupara,“ bætir Óskar við. Og það eru ekki bara hlaup, þeir eru einnig reiðubúnir að hjóla með fólki, auk þess sem Óskar er vanur skíðagöngumaður – enda Ísfirðingur. Þeir segja fyrirvarann ekki þurfa að vera langan, jafnvel sé hægt að ná saman samdægurs. En því fyrr sem fólk hefur samband, þeim mun betra. Félagarnir segja gróðasjón- armið ekki ráða för. „Við erum ekki að hætta í dagvinnunni okk- ar út af þessu,“ segir Hávar sposkur á svip. „Þetta er alfarið til gamans gert og gjaldi mjög stillt í hóf. Við hlaupum sjálfir þrisvar til fimm sinnum í viku og höfum bara gaman af því að geta hjálpað einhverjum erlendum gestum í leiðinni.“ Þeir segjast ekki hafa hinn al- menna ferðamann í huga, hans dagskrá sé yfirleitt vel skipulögð. „Þetta hentar frekar ráðstefnu- og fundagestum sem hafa fáeina tíma aflögu til að hreyfa sig milli funda,“ segir Óskar. Fyrsta skrefið var að dreifa kynningarspjaldi á hótel og gisti- heimili á höfuðborgarsvæðinu á dögunum og eru fyrirspurnir þegar farnar að berast. Fyrsti viðskiptavinurinn kom raunar eftir öðrum leiðum. GLÆNÝ ÞJÓNUSTA FYRIR ERLENDA HLAUPARA Meðhlaupari óskast! VÍÐAVANGSHLAUPARARNIR HÁVAR SIGURJÓNSSON OG ÓSKAR JAKOBSSON HAFA STOFNAÐ TIL ÞJÓNUSTU FYRIR ERLENDA GESTI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU, ÞAR SEM ÞEIR LEIÐSEGJA ÞEIM Á HLAUPUM ÞEIRRA. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is * Þá var þettagreinilega ekkieitt af fínni og öruggari hverfum borgarinnar. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012 Heilsa og hreyfing Fyrir fimm árum fékk Alan Burg- ess, 64 ára gamall Breti, slag. Náði sér merkilega fljót á strik aftur enda þótt hann sé ekki samur maður og áður. Þannig er nefnilega mál með vexti að hann varð fyrir heilaskaða sem gerir það að verkum að hann nemur ekkert sem er honum á vinstri hönd, hvorki hljóð, fólk né hluti. Ekkert amar að sjón Burgess, samt sem áður verður hann ekki var við nokkurn skapaðan hlut snúi hann sér til vinstri. Heil- kennið kallast „hemispatial neg- lect“ á ensku. Burgess vann sem bílstjóri áður en veikindin knúðu dyra en varð að vonum að láta af störfum. Hann hefur nú snúið sér að málaralist. Engum sögum fer af póli- tískum skoðunum Burgess en hann hlýtur að fylgja Íhalds- flokknum að málum, Verkamannaflokkurinn er ekki til fyrir honum. SJALDGÆFUR HEILASKAÐI Ed Miliband. Ekki til í heimi Alans Burgess. AFP Sér ekki til vinstri Sértu hresst og hamingjusamt ung- menni áttu meiri möguleika á að þéna vel þegar þú nærð þrítugu. Þetta er niðurstaða breskrar rann- sóknar sem náði til tíu þúsund manna úrtaks á mörgum árum. Komust rannsakendur að því að þeir sem eru óhamingjusamastir milli sextán og átján ára aldurs eru 30% undir meðalinnkomu áratug síðar, meðan þeir gæfusömustu eru að jafnaði 10% yfir meðaltal- inu. Að sögn rannsakenda gætu ýmsir þættir haft áhrif á nið- urstöðuna, meðal annars eru ánægðir unglingar líklegri til að sækja sér framhalds- menntun á grundvelli almennrar bjartsýni og sterkra tauga. Þá sé ungt fólk sem er glatt og uppbyggilegt í hugsun lík- legra til að taka að sér störf leiðtoga eða stjórnenda þegar fram líða stundir en hinir sem sjá ekkert nema eymd og volæði. NÝ BRESK RANNSÓKN Glaðir þéna betur Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig. AFP Atvinnuleysi er álíka stór áhættuþáttur þegar kemur að hjartaáfalli og reykingar þegar fólk er komið á sex- tugs- og sjötugsaldur. Þetta kemur fram í rannsókn á yfir þrettán þúsund manns í Bandaríkjunum. Rannsóknin leiddi líka í ljós að líkur á hjartaáfalli aukast um fjórð- ung fyrsta árið eftir fyrsta atvinnumissinn. Líkurnar aukast enn verði fólk fyrir þeirri ógæfu að missa vinn- una öðru sinni, að ekki sé talað um oftar. Að sögn sérfræðinga er einkum og sér í lagi við streitu að sakast. Aðstandendur rannsóknarinnar taka fram að þeir vilji rannsaka málið betur áður en frekari álykt- anir eru dregnar. Áður hafa rannsóknir bent til þess að er- ilsamt starf geti aukið líkurnar á hjartaáfalli og skyldum sjúk- dómum. ATVINNULEYSI Á EFRI ÁRUM Vont fyrir hjartað Atvinnulausir mótmæla. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.