Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 24
Kramarhúsin
eru nýjasta
varan frá
Flóru.
Ingunn Þráinsdóttir, myndlistarkona og grafískur hönnuður, rekur hönnunarfyrirtækiðFlóru á Egilsstöðum, sem hún stofnaði árið 2010. „Ég stofnaði Flóru eftir að hafa farið í listamannadvöl til Norður-Noregs og var að stúdera þar plöntur. Svo er þettabúið að vinda upp á sig eftir það,“ segir Ingunn, sem lærði grafíska hönnun á enn
öðrum norðlægum slóðum, í Halifax í Kanada. „Mig hafði
alltaf langað að fara af pappírnum yfir í annars konar vöru-
hönnun og þá lá textíllinn beint við. Og ég hef alltaf haft
gaman af því að sauma. Ég geri þetta allt sjálf og kalla þetta
„slow design“,“ segir hún en það gæti útlagst hæg hönnun.
„Þetta er engin fjöldaframleiðsla. Flest það sem ég er að
sauma, púðana, viskastykkin og servíetturnar sauma ég
sjálf,“ segir Ingunn sem fékk klæðskerameistara til að
þróa þetta með sér.
„Það sem er prentað fyrir mig er allt prentað á
Egilsstöðum,“ segir Ingunn, sem sjálf vinnur fulla vinnu í
Héraðsprenti. Vörurnar eru gjarnan merktar: „Made
with love in East-Iceland“, eða gert með ást á Austur-
landi. „Ferðamönnunum finnst það æðislegt. Fólk vill
vita söguna á bak við hlutina og upprunann.“
Ingunn er allt í öllu í sínu fyrirtæki. „En ég fæ með mér hina og þessa ef ég þarf
ráðgjöf. Það er svo mikið af skapandi fólki hérna.“
Hún segir að Hús handanna, hönnunarverslunin á Egilsstöðum, sé mikil lyftistöng
fyrir svæðið. Væntanleg er innan tíðar ný vefsíða verslunarinnar sem mun gera
hönnuðum á Austurlandi enn hærra undir höfði og auðvelda
þeim að koma sér á framfæri og er Ingunn spennt fyrir
þessum breytingum. Vörurnar hennar fást einmitt í Húsi
handanna en einnig í Kraumi í Reykjavík.
Ingunn er með vinnustofu í Sláturhúsinu. „Við erum
þarna sex eða sjö manns með vinnustofur,“ segir hún en
þetta eru hönnuðir, ljósmyndarar og myndlistarmenn. „Það
er alveg bráðnauðsynlegt,“ segir hún um tækifærið til þess
að vera í svona skapandi umhverfi.
Ingunn stundar sína list
á eigin forsendum. „Ég
fer mínar eigin leiðir og
hef bara gert það sem
mér finnst áhugavert. Ég
hef ekkert verið að eltast
við strauma og stefnur
varðandi mynstur og liti
heldur gert bara frá mínu
hjarta,“ segir hún en
vörurnar frá Flóru eru
vissulega með sérstakan
og fallegan stíl. iflora.is
Myndskreyttar
gormabækur.
MEÐ VINNUSTOFU Í SLÁTURHÚSINU
Með ást frá
Austurlandi
INGUNN ÞRÁINSDÓTTIR, MYNDLISTARKONA OG GRAFÍSKUR HÖNN-
UÐUR, REKUR BLÓMLEGA HÖNNUNARFYRIRTÆKIÐ FLÓRU Á EGILS-
STÖÐUM OG SÉRHÆFIR SIG Í HÆGRI HÖNNUN.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Ingunn Þráinsdóttir* Ég hef ekkert veriðað eltast viðstrauma og stefnur
varðandi mynstur og
liti heldur gert bara
frá mínu hjarta.
Ingunn er líka í textíl
og hefur m.a. gert púða.
Fallegar
tauservíettur.
Ingunn hefur
gert kort með
öllum helstu
dýrunum í
Vatnajök-
ulsþjóðgarði.
*Heimili og hönnunATMO-húsið var upphaflega vöruhús KRON þar sem seldar voru vörur í mörgum deildum »26