Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012
Matur og drykkir
Þ
rír vinir ákváðu fyrir nokkrum misserum að stofna
viskíklúbb og hann tók til starfa fyrr á þessu ári.
„Við erum orðnir 15 í klúbbnum en 20 er hámark.
Menn geta sótt um aðild ef þeir eru áhugasamir en
stjórnin tekur ákvörðun. Hún er alráð,“ segir Snæbjörn Ingi
Ingólfsson, einn þremenninganna, við Morgunblaðið. Auk
Snæbjörns sitja saman í stjórn klúbbsins þeir Vilhelm Sig-
urðsson og Hreinn Sigmarsson, sem er formaður.
Þegar hefur verið fundað þrívegis. Samkvæmt reglum
verða fjórir fundir árlega, þar sem félagarnir hittast, fræðast
um, smakka og ræða um mjöðinn. „Við buðum mönnum að
vera með sem hafa áhuga á viskídrykkju, smökkun og menn-
ingu. Tilgangurinn er að víkka sjóndeildarhringinn; smakka
og kynnast sem flestum tegundum, ekki bara single malt,
heldur bourbon og öllum öðrum viskítegundum sem heim-
urinn hefur upp á að bjóða,“ segir Snæbjörn Ingi.
„Við viljum kynnast öðrum viskítegundum en fást í Vín-
búðunum. Okkur finnst vanta meiri þekkingu á viskíi hér á
landi. Því hefur ekki verið gert nógu hátt undir höfði. Í Vín-
búðunum er tiltölulega lítið úrval og gríðarlega hefur dregið
úr því undanfarið með hækkandi gjöldum. Minnkandi fram-
boð er á góðu viskíi en það hefur aukist á þeim ódýrari.“
Viskíið verið í felum
„Hugsanlegt er að viskíklúbbar séu starfandi, en við vitum
a.m.k. um koníaksklúbba og léttvínsklúbba en viskíið hefur
verið meira í felum,“ segir Snæbjörn.
Fulltrúar frá birgjum hafa haldið fræðsluerindi á fundum
og starfsemin er í stöðugri þróun. Á síðasta fundi var t.d.
boðið upp á mat í fyrsta skipti. Einn meðlima klúbbsins,
matreiðslumeistarinn Friðrik V. Karlsson, eldaði þá skoskt
slátur, haggish, og Edinborgarpylsu, á veitingastað sínum,
Friðriki V, og félagarnir snæddu kræsingarnar áður en sest
var að viskísmökkun.
Snæbjörn Ingi segir klúbbfélaga gefa tegundunum ein-
kunnir og stefnt sé að því að velja viskí ársins, viskíinnflytj-
anda ársins, jafnvel viskímann ársins og fleira í þeim dúr.
Gaman er að segja frá því að í herraklúbbi þessum gilda
ákveðnar reglur um klæðaburð. „Menn þurfa að vera með
hálstau á fundum og eru viðurlög við því ef einhver mætir
ekki þannig; þá þarf sá að setja upp ljóta bindið! Menn
gleyma sér því ekki nema einu sinni!“
Snæbjörn Ingi Ingólfsson, viðmælandi Morgunblaðsins, er lengst til vinstri, við hlið hans Jónas Rafnar Ingason, andspænis
Jónasi er Vilhelm Sigurðsson og lengt til hægri formaður klúbbins, Hreinn Sigmarsson.
VISKÍVINIR STOFNA KLÚBB
Merkileg
menning
VISS-SKÝ ER KLÚBBUR KARLA SEM ERU
EINLÆGIR ÁHUGAMENN UM VISKÍ. FUNDAÐ
VAR NÝLEGA Á VEITINGSTAÐ EINS MEÐLIM-
ANNA, FRIÐRIKS V., SEM ELDAÐI HAGGISH
OG EDINBORGARPYLSUR. OG SVO VAR
AUÐVITAÐ SMAKKAÐ VISKÍ.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Það var glatt á hjalla þegar klúbbmeðlimir fengu sér haggish og Edinborgarpylsu, að hætti Friðriks V. Frá vinstri: Dagbjartur Vilhjálmsson, Guðmundur Þór Reynisson, Friðrik V. og Halldór Ingólfsson.