Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 39
K læðaburðurinn breytist pínulítið þegar kuldaboli mætir á svæðið. Auðvitað er allt í lagi að pakka sér inn í dúnkápu en það er kannski ekki mjög spennandi klæðaburður – og alls ekki sexí. Og það er alveg ágætt að hafa það í huga að það er alger óþarfi að líta út eins og ógæfukona þótt það kólni aðeins í veðri. Það er hægt að fara nokkrar leiðir til að vera bæði smart og halda á sér hita. Á köldum vetrardögum steinliggur að vera í lagskiptum fatnaði. Að fara í hverja flíkina yfir aðra, og geta þannig farið úr einni og einni flík eftir því sem við á, er ákaflega sniðugt. Best er að byrja á því að klæða sig í ullarbol eða silkibol því nátt- úruleg efni eru heitari en gerviefni. Gott er að eiga þunnan vetrarkjól úr ull sem hægt er að klæðast á köldum vetrardögum. Þunnir langerma ullarbolir koma líka sterkir inn og eru mun dömulegri en þykkar mussulegar peysur. Stórar lok- aðar peysur ganga vel fyrir þær sem eru strákalega vaxnar, en þær sem eru með kvenlegan vöxt verða ólögulegar í þykkum ullarpeysum. Ef þú vilt vera dömuleg skaltu fara í fleiri flíkur en færri og hafa þær þunnar og úr vönduðum efnum. Eitt af mínu uppáhalds er að vera í leðurjakka yfir kjól og fara svo í vesti yfir allt saman. Vat- teruðu vestin frá 66° Norður eru dásamleg því þau eru dömuleg í sniðinu og hlý á sama tíma og svo er mokkavestin hennar Siggu Heimis, sem hún hannaði fyrir Varma, dásam- lega hlý. Það er smart að fara í vesti yfir jakka eða jafnvel þunna kápu og svo er hægt að setja skinn um hálsinn. Auk þess hafa loðin skinnvesti verið vinsæl og eru þau sniðug yfir jakka og ullarboli. Íslensku hönnuðirnir í Spaksmannsspjörum, Björg Ingadóttir og Val- gerður Torfadóttir, hafa alltaf viljað hafa konur í lagskiptum fatnaði. Risastóru treflarnir frá þeim eru dásamlegir í kulda og endast ákaflega vel. Ég er einmitt búin að eiga einn slíkan síðan frumburðurinn kom í heiminn og sér ekki á treflinum eftir sex ára stanslausa notkun. Trefl- arnir eru ákaflega langir þannig að hægt er að vefja þeim endalaust um hálsinn. Í vetrartískunni eru slár töluvert áberandi og er dásamlegt að eiga alla- vega eina slíka. Að kasta þeim yfir sig þegar kuldaboli mætir steinliggur. Og svo er það skótauið. Vetrarbomsur eru auðvitað góðar og gildar en sjálf er ég alltaf mest fyrir að vera á háum hælum. Og í snjó og hálku eru best að hafa hælana sem grennsta því þá er meira grip í þeim og virka þeir pínulítið eins og nagladekk. Svo er ágætt trix að nota bílinn sinn sem úlpu og hafa hitann í sætunum alltaf í botni, þá er hægt að vera í næl- onsokkabuxum allan ársins hring án þess að verða úti. martamaria@mbl.is Notum hæla sem nagladekk Vesti úr mokka- línunni frá Varma. Það fæst í Epal og kostar 58.000 kr. Kasmír-peysa úr Sævari Karli og kost- ar 42.240 kr. Peysa frá Júni- form. Hún fæst í Púkó og Smart og kost- ar 42.900 kr. Vesti frá 66 Norður kostar 17.500 kr. Vetrartíska Spaks- mannsspjara, en hönn- uðir merkisins eru ákaflega hrifnir af lag- skiptum fatnaði. 25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A OPTICAL STUDIO FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ Verslaðu á hagstæðara verði í okkar fullbúnu gleraugnaverslun á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð Ábyrgðar- og þjónustuaðilar: Optical Studio Smáralind og Optical Studio Hafnargötu, Keflavík HÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR REDKEN ONLY SALON SALONVEH HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI s. 568 7305 • salonveh.is Frír djúpnæringarmaski fylgir hverjum þvotti Gildir til 1. desember ÞÚ FÆRÐ PERSÓNULEGA OG FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ OKKUR Dekraðu við þig - Glæsilegt tilboð Svört slá frá ítalska tískuhús- inu Gucci.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.