Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 42
1 Viðskipti Barnið fær fasta upphæð á mánuði fyrir að vinna fyrirfram ákveðin verkefni. Ef barnið telur sig þurfa meiri pening þarf að vinna meira. 2 Vasapeningar ótengdir húsverkum Barnið fær fasta upphæð á mán- uði en þarf ekki að leysa af hendi ákveðin heimilisverk. Hins vegar þarf barnið að sinna heimilisverk- um þar sem foreldrarnir telja að fjölskyldan eigi að hjálpast að og vinna þessi verk saman. 3 Vasapeningar án skilyrða Barnið fær fasta upphæð á mánuði og engin skilyrði eru sett um verkefni sem inna þarf af hendi. 4 Vasapeningar og lán Barnið fær vasapeninga til daglegra nota en þegar kaupa þarf stærri hluti fæst lán hjá foreldrunum ef enginn sparnaður er fyrir hendi. 5 Fjárhagslegt sjálfstæði Foreldrar og unglingar (á við unglinga frá 15 ára aldri) ákveða fasta mánaðarlega upphæð fyrir mat í skólanum, bíóferðum, fötum, farsímanotkun og fleiri þáttum. Unglingurinn fær upphæðina og þarf sjálfur að sjá um að passa í hvað hann eyðir. Morgunblaðið/Kristinn Kostur: Barnið lærir að það þarf að hafa fyrir hlutunum og vinna fyrir þeim. Tilfinning fyrir því hversu langan tíma það tekur að vinna fyrir hlutunum og hversu skamman tíma það tekur að eyða þeim eykst. Galli: Barnið gæti litið svo á að borga eigi fyrir allt sem gert er. Kostur: Barnið lærir samvinnu og hjálpsemi. Þegar vasapeningar eru aðskildir frá heimilisverkun- um eru börnin ekki að hugsa um peninga þegar skylduverkin eru unnin. Galli: Börnin eiga það til að neita því að sinna heimilisverkunum eins og að taka til í herberginu, fara út með ruslið o.s.frv. Foreldrarnir grípa þá stundum til þess ráðs að beita því vopni að skera niður vasapeningana til að fá verkin unnin. Geri þeir það hins vegar verða mörkin bæði ósanngjörn og óskýr. Kostur: Ef barnið þarf að verja miklum hluta af tíma sínum utan skóla í lærdóm eða áhugamál líkt og íþróttir eða tónlist getur verið kostur að láta barnið fá pening án skilyrða. Galli: Barnið lærir síður samhengið á milli vinnu og afkomu. Kostur: Barnið skynjar betur verðgildi hluta og mikilvægi peninga og sparnaðar. Galli: Ef foreldrarnir standa ekki við láns- samninginn, taka hann ekki alvarlega eða gleyma honum, er líklegt að barnið læri ekkert á þessu og upplifi jafnvel að það sé ekkert sérstaklega mikilvægt að borga lán til baka. Kostur: Foreldrar losna við að þurfa að þrátta við viðkomandi um hvað á að kaupa og hvað ekki. Unglingurinn lærir að forgangsraða hvað er mikilvægast að kaupa, en þó þarf að styðja hann vel í upphafi og kenna honum því þegar maður er 15 ára geta kaup á 10 þúsund króna tölvuleik ef til vill flokkast sem það mikilvægasta! Galli: Verið getur að of mikil ábyrgð sé lögð á svona ungan einstakling. Vasapeningar EIGA BÖRN AÐ FÁ VASAPENINGA, EF SVO, HVERSU HÁA UPPHÆÐ OG ÞURFA ÞAU AÐ SINNA SKYLDUM ? Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is HVERNIG SKAL HAGA GREIÐSLUM? V issulega eru spurningarnar margar og eflaust ekkert eitt rétt svar við neinni þeirra. Margir mæla þó með því að börn fái reglubundna vasapeninga til þess að læra um gildi peninga. Sumir foreldrar hafa miðað við að börnin byrji að fá vasa- peninga þegar þau koma í 8. bekk en á þeim tíma verður bæði fé- lagslífið fyrirferðarmeira og neyslukröfur aukast. Auðvitað er ekkert sem segir að ekki megi byrja fyrr og í raun nauðsynlegt að börn kunni á peningum skil á miðstigi í grunnskóla. En hvaða aðferðum á að beita þegar foreldrar láta börn sín fá vasapeninga? Þór Clausen, viðskiptafræðingur og leiðbeinandi á námskeiðum hjá Íslandsbanka, tel- ur mjög mikilvægt að unga fólkið nái tökum á fjármálalæsi og með því að styðja það í þessum efnum telur hann börnin betur í stakk búin til að huga að eigin fjármálum og gera það vel. Þór hefur tekið saman og sett fram fimm ólíkar aðferðir sem snúa að því að láta börnin fá vasapeninga og getur hver og ein fjölskylda tileinkað sér þá aðferð sem hentar best. *Fjármál heimilannaVasapeningar eru ekki sjálfsagðir en hægt er að fara ýmsar leiðir til að kenna um gildi peninga Áhugavert er að skoða skartgripakaup Meniga-notenda. Þannig er langmest verslað í desem-ber, fleiri konur en karlar versla í skart- gripaverslunum, en karlar verja mun hærri upphæð að jafnaði en konur. Ef horft er til allra Meniganotenda, keypti hver og einn skartgripi fyrir tæpar 5.700 krónur árið 2010 en tæpar 6.600 krónur 2011. Kaup Meniga-notenda á skartgripum voru því 16% hærri árið 2011 en 2010 í krónum talið. Fyrstu tíu mánuði þessa árs hefur hins vegar dregið úr skartgripakaupum um rúm 7% miðað við sama tímabil í fyrra en á tímabilinu keyptu Me- niganotendur skartgripi fyrir um 4.200 krónur að meðaltali. Þó ber að geta þess að stærstur hluti skartgripaverslunar fer fram í desember. Samkvæmt Meniga-hagkerfinu fóru 30% allrar kortaveltu í skartgripabúðum árið 2010 fram í desember og 25% allrar veltunnar árið 2011. Þannig er því nokkuð óhætt að áætla að skartgripir rati í einhverja jóla- pakka. Ef heildarskartgripavelta er tekin saman fyrir árið 2011 er kynjahlutfall kaupenda svipað. Mun fleiri konur versla þó í skartgripaverslunum en karlar eða um 82% fleiri, en karlmenn versla fyrir hærri upp- hæð og munar þar 59%. Aftur á móti ef desember er skoðaður sérstaklega er hlutur karla af heildarvelt- unni töluvert hærri en hlut- ur kvenna og versla karlar fyrir um 59% af veltunni en konur 41%. Þegar einungis þeir sem versla í skart- gripaverslunum eru skoðaðir sést að karlmenn verja að jafnaði töluvert hærri upp- hæð í skartgripaverslunum en konur. Árið 2011 eyddu konur rúmum 8.000 krónum að meðaltali í skartgripaverslunum en karlar rúmlega helmingi meira, eða tæpum 13.000 krónum. Í desem- ber var kynjamunurinn enn meiri en þá eyddu konur rúmlega 10.000 krónum að meðaltali en karlar tæp- lega 17.000 krónum, eða 66% meira en konur. Tölur eru allar á verðlagi hvers árs. Aurar og krónur GULL SEM GLÓIR JólaglingriðMeðaltalseyðsla á mann í skartgripi í desember 2011 Karl 17 þúsund Kona 10 þúsund ÁSLAUG PÁLSDÓTTIR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.