Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Page 47
ferðamönnum að heimsækja þennan stað. Og svo er spurning hvernig ferðaþjónustan getur nýtt sér það.“ Þór nefnir sem dæmi að eftir tökur á Bond hér á landi á sínum tíma hafi Ferðamálaráð nýtt sér það í New York, efnt til James Bond- teitis fyrir ferðaskrifstofur þar í landi til þess að kynna Ísland, en í myndinni var mikil ís- höll á Jökulsárlóni. „Icelandair fór einnig í kynningarherferð í kjölfarið á Die Another Day á sínum tíma og Hrafninn flýgur hafði gríðarleg áhrif á Íslandsmarkaðinn í Svíþjóð, af því að myndin varð vinsæl þar. Stórmyndir sem teknar eru á Íslandi geta haft áhrif, þó að þær hverfist ekki endilega um Ísland í handriti. Í þeim rannsóknum sem ég vísa til kemur skýrt fram að þetta er ekki eini áhrifa- valdurinn, heldur einn af mörgum sem hafa áhrif á ákvarðanir fólks. Og nú erum við að horfa á fjórar stórmyndir á einu sumri sem hlýtur að bjóða upp á tækifæri í þessum efn- um.“ Það þarf ekki að fela í sér að leikmynd sé varðveitt eða eitthvað skilið eftir,“ að sögn Þórs. „Það er nóg að vísa í það að þetta sé staðurinn, fossinn eða húsið þar sem myndin hafi verið tekin. Síðan er það undir sveit- arfélögum á viðkomandi svæði og ferðaþjón- ustunni komið að vinna úr upplýsingunum fyrir ferðamenn, til dæmis með því að bjóða upp á skoðunarferðir. Ferðirnar geta hugs- anlega snúist um allt annað, en þessum fróðleik verið skotið inn í til að krydda frásögnina. Ég nefnt eina hugmynd sem varðar Bat- man-myndina sem tekin var á Svínafellsjökli fyrir nokkrum á Íslandi höfum við aðgengi að snjó og jöklum allt árið um kring.“ Það spilar líka inn í að uppgangur er í kvikmyndagerð og framtíðarmyndir eða vís- indaskáldsögur hafa átt upp á pallborðið hjá framleiðendum. „Þar kemur Ísland sérlega vel út með sína svörtu eyðisanda og hraun- breiður. Það felst líka mikil náttúrufegurð í auðninni, hana ber að varðveita, hún er mikil auðlind.“ Svartur sandur og Öræfajökull séð frá Ingólfshöfða. Svona verkefni byrja með því að við fáumsendar upplýsingar um landslag eðaskírskotanir sem menn eru að leita að,“ segir Þór. „Oftast nær förum við á stúf- ana og leitum að tökustöðum sem gætu pass- að fyrir myndina og handritið. Ef það kveikir í framleiðendum, þá koma fulltrúar þeirra til landsins til að skoða þá tökustaði sem við leggjum til, bæði með aðgengi í huga, árstíma og annað sem viðkemur tökum. Svo gerist þetta stig af stigi og fleiri skoðunarferðir fylgja í kjölfarið, þangað til búið er end- anlega að ákveða hvaða tökustaðir verða fyr- ir valinu. Síðan hefst undirbúningur sem get- ur tekið hálft eða heilt ár, allt þar til tökuliðið kemur til landsins og byrjar að undirbúa tök- ur. Styrkleiki Ísland sem tökustaðar byggist í grunninn á 20% endurgreiðslu á þeim kostn- aði sem til fellur og góðu aðgengi að töku- stöðum. „Styrkur Íslands er í raun sambland af eldi og ís, svartir sandar og hraun, jök- ulbreiður og jökultungur,“ segir Þór. „Við getum jafnvel verið með skriðjökul norðan megin við þjóðveg og svarta eyðisanda sunnan megin. Fjarlægðir eru litlar og aðgengið gott, þannig að við getum jafnvel verið með gjörólíka töku- staði í innan við klukkutíma radíus. Ef við töl- um um jökla, þá má nefna að íslensk ferða- þjónusta hefur sérhæft sig í fólksflutningum á jöklum og snjó og um slóða hálendisins á sérútbúnum jeppum og trukkum. Það gefur okkur forskot á mörg önnur lönd að geta far- ið með tökulið á þessa staði. Svo hefur aðbún- aður og aðgengi ferðaþjónustunnar að jökl- unum stórbatnað síðustu tíu ár, sem er mikill plús fyrir erlenda kvikmyndagerð, og hérna Fegurð í auðninni 25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.