Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 48
Secret life...
Secret life...
Prometheus
Noah
Noah
Helstu
Secret Life of
Walter Mitty
Hún er nánast tekin um allt land.
Og það var vendilega greint frá því
í fjölmiðlum er tökuliðið setti svip á
Borgarnes, Stykkishólm, Seyðisfjörð og
á Hafnarsvæðið. Ráðhúsið í
Stykkishólmi var málað svart! Og myndin
gerist að hluta til á Íslandi, sem er enn
betri landkynning en ella. Það kom fram í
viðtölum við Ben Stiller að hér var einnig
skapað umhverfi eins og á Grænlandi og í
Himalaja.
Heimsfrumsýnd:
25. desember 2013
Noah
Noah var tekin víða um Suðurland,
allt frá Reykjanesi yfir á Vík í Mýrdal, og
að litlum hluta í Mývatnssveit. Þetta er Biblíu-
saga heimfærð á nútímann. Og það vakti athygli er
tökur fóru fram í Raufarhólshelli, en þá var hlaðinn
göngustígur inn í hellinn og aðgengið varð þannig
að hellirinn er loksins opinn ferðamönnum. Það eru
þrjú stór göt í þakinu á hellinum, þannig að hann er
bjartur og vasaljós óþarft.
Heimsfrumsýnd:
28. mars 2014
Thor:
The Dark World
Þór: Myrkraheimurinn var
tekinn upp á Landmannaleið í
Rangárþingi ytra, rétt í nágrenni við
Heklu. Þar glímir Þór við fornan
kynstofn svartálfa sem hóta að
steypa mannkyninu í ystu myrkur.
Heimsfrumsýnd:
8. nóvember 2013
Þór 2
Secret life...
Noah
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
29
33
Á JÓLAGJAFALISTANN
SETTU DEVOLD DEVOLDACTIVE BOLURBláir og bleikir, stærðir: 2–16
6.990 KR.
DEVOLD ACTIVE
BARNABUXUR
Bláar og bleikar, stærðir: 2–16
6.990 KR.
DEVOLD BREEZE BABY
Bleikur, stærð: 74
Blár, stærð: 62
6.490 KR.
árum. Það gæti hjálpað til við að selja ferðina
að nefna það í kynningarefni. Og svo gæti
leiðsögumaðurinn sýnt skot úr myndinni með
slagsmálasenunni á jöklinum á meðan hóp-
urinn gengur yfir jökulsporðinn. Það þarf ekki
mikið til að gera sér mat úr þessu.“
Í þessum orðum töluðum minnist blaðamað-
ur skoðunarferðar um Seattle fyrir fáeinum
árum, þar sem mikið var lagt upp úr því að
sýna húsbátinn þar sem Sleepless in Seattle
var tekin. Merkilegt nokk, það er nánast það
eina sem blaðamaður man úr ferðinni, þó að
einungis hafi verið bent á húsbátinn úr þó
nokkurri fjarlægð.
Bætt aðgengi að Raufarhólshelli
„Þetta er gott dæmi,“ segir Þór. „Erlend
kvikmyndagerð skilur líka fleira eftir sem nýt-
ist ferðaþjónustunni. Einn tökustaðurinn við
gerð Noah eftir Darren Aronofsky er Rauf-
arhólshellir við Þrengslaveg, en eins og komið
hefur fram í fjölmiðlum var þar tekið upp at-
riði með Russell Crowe, Jennifer Connelly og
Anthony Hopkins. Þessi tökustaður er ein-
stakur því það eru göt í loftinu á hellinum
sem hleypa birtu inn, annars væri svona töku-
staður yfirleitt byggður í stúdíói. En þarna
var þetta gert í alvöru, eins og við segjum, og
það er mjög einstakt. Það var einungis vegna
þess hve einstakur þessi hellir er og hversu
aðgengi að honum er gott, sem er ekki vaninn
þegar að stórum hraunhellum kemur.
Þarna þurfti að gera aðstöðu fyrir tökuliðið
og eftir samningaviðræður við landeigendur
og skipulagsyfirvöld á staðnum var ráðist í að
gera bílaplan við hellinn og hlaðinn göngustíg-
ur ofan í hann. Þegar verkefninu lauk var
ákveðið að skilja þetta eftir og fjarlægja það
ekki, því þetta gjörbreytir öllu aðgengi fyrir
ferðamenn inn að hellinum. Áður fyrr komust
rútur til dæmis ekki að hellinum og þeim var
lagt í vegaröxlinni, sem skapaði mikið
umferðaróöryggi um Þrengslaveg. Þetta á því
eftir að gjörnýtast ferðaþjónustunni.“
Útskriftarritgerð Þórs við Háskólann í Bif-
röst fjallaði um kvikmyndatengda ferðaþjón-
ustu. „Þá fékk ég upplýsingar hjá ferða-
málaráði í Skotlandi um kannanir sem gerðar
voru í kjölfarið á Braveheart, en þar kom
fram að myndin hefði átt stóran þátt í ákvörð-
un fimmta hvers Bandaríkjamanns um að
heimsækja landið. Í bænum Stirling er minn-
isvarði um William Wallace, aðalhetju mynd-
arinnar, og áður en hún var frumsýnd komu
þangað 25 þúsund ferðamenn á ári. Sá fjöldi
jókst í 200 þúsund eftir frumsýninguna og var
farið í markaðsherferð til að nýta sér áhrifin
enn frekar.“
Hobbitaþorp á Nýja-Sjálandi
Hann talaði einnig við ferðamálayfirvöld á
Nýja-Sjálandi. „Mikið var lagt upp úr Hringa-
dróttinssögu, meðal annars nýtt leikmynd af
hobbitaþorpi, sem nú er reyndar búið að rífa.
Kannanir sýndu að myndirnar voru aðalhvat-
inn að komu 7% allra ferðamanna sem komu
til landsins og 92% sögðust hafa heyrt af því
að myndirnar hefðu verið teknar þar. Ég vís-
aði einnig í að í tengslum við Bond-myndinni
Die Another Day fór Icelandair í plakat-
aherferð í neðanjarðarlestarstöðvum í London
og fjölgaði ferðamönnum í kjölfarið. Í mínum
huga er engin spurning um að við getum nýtt
okkur þetta meira, meðal annars með því að
skoða hvernig aðrir gera það.“
Þetta er vitundarvakning, en það þarf að
nýta tækifærin á meðan áhrifin eru mest og
ekkert gerist af sjálfu sér, að sögn Þórs. „En
á hinn bóginn geta áhrifin líka verið langvar-
andi. Líftími stórmynda er langur og mörgum
árum síðar getur stórbrotið landslag kveikt
ferðaþrá í einhverjum sem leigir sér myndina
eða sér hana í sjónvarpi. Hvar í heiminum er
hægt að komast á aðra plánetu? Þetta er
kannski langsótt, en það þarf svo lítið brot
af öllum þeim markaði sem svona miðill
nær til. Og það er gríðarlegt tækifæri
fyrir eins litla markaðssneið og Ísland er
með í ferðamennsku.“
Eina spurningu fær Þór oft, sem er
einfaldlega: „Hvernig eigum við að gera
þetta?“ Og hann hefur nefnt ýmsar hug-
myndir. „Ég sé til dæmis fyrir mér skoð-
unarferð frá Akureyri að Dettifossi, þar sem
upphafsatriðið í Prometheus yrði hluti af
kynningarefninu. Það sama gildir um áætl-
unarferðir inn að Landmannalaugum. Það
væri hægt að stoppa rútuna á ýmsum töku-
stöðum og segja til dæmis: „Hér var það sem
geimskipið átti að hafa lent.“ Þetta hljómar
einkennilega í eyrum sumra, en þetta er ekk-
ert kjánalegra en húsbáturinn þar sem Sleep-
less in Seattle var tekin. Það koma
kannski ekki margir til Íslands
bara út af þessu, en þegar fólk er á
Íslandi hefur það þýðingu. Ég vona að
Íslandsstofa taki þetta upp og geri sér
mat úr því.“
Loftmynd af jökulá á hálendinu. Búðir tökuliðsins í auðninni á hálendinu. Blár ís á Breiðamerkurjökli. Unnið að tæknibrellum fyrir Prometheus á Landmannaleið.