Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 49
Secret life...
Noah
tökustaðir
Oblivion
Oblivion var tekin inni á
Jökulheimaleið, rétt norðvestur
af Veiðivötnum. Það var í raun
enn lengra inni á miðhálendinu
en Prometheus. Það sannaði
og sýndi að það er hægt að
vinna með
Prometheus
Í tökum á Prometheus var Dettifoss
myndaður austan megin frá og ofan í gljúfr-
inu. Kunnugir segja það sennilega flottustu
þyrlutökur sem farið hafi fram við Dettifoss.
Það var fyrir magnþrungið upphafsatriði, sem
sýnir krafta vatnsmesta foss Evrópu í þrívídd og
í framhaldi af því eru hrífandi tökur af íslensku
landslagi. „Ég myndi nánast segja að þetta hafi verið
eitt flottasta kynningarmyndband sem sést hefur af
Íslandi,” segir Þór Kjartansson hjáTrue North. „Þetta
var í fyrsta skipti sem svona fjölmennt erlent tökulið
fer inn á miðhálendið. Þó að það hafi verið í
jaðrinum, þá var það komið á Hekluslóðir.
Flestar aðrar stórmyndir voru teknar í
alfaraleið, Flags of Our Fathers
á Reykjanesi,
James
Bond og Batman
rétt við hringveginn á Suð-
Austurlandi, þó að skroppið væri
hálfan dag inn á jökultungu. Journey to
the Center of the Earth var í Kaldadal,
en það var hvergi nærri stærð tökuliðsins
í Prometheus. Þar fengum við reynslu og
þekkingu sem nýttist okkur í sumar þegar
við unnum á hálendinu, til dæmis varð-
andi gistingu og tökustaðabúðir.”
Heimsfrumsýnd
síðastliðið sumar.
svona
stórt tökulið við
slíkar aðstæður. „Þarna
eru svartir vikursandar og
eyðilegt umhverfi í sinni stór-
brotnu mynd,” segir Þór. „Auðnin
okkar er svo mikil auðlind. Það er ekki
víða í heiminum sem þú ferð ekki lengra
en þetta úr alfaraleið og kemur inn í landslag
sem minnir einna helst á aðra plánetu. Það
er að minnsta kosti tilfinningin sem erlendir
framleiðendur fá þegar þeir koma á svona
staði. Þetta er allt frá hálftíma upp í einn
og hálfan klukkutíma frá gististöðum. En
náttúran er gjörólík öllu sem fólk á að
venjast. Í því felast mikil tækifæri.”
Heimsfrumsýnd:
19. apríl 2013
Prometheus
Oblivion
Fyrirspurnir um tökustaði á Íslandi
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
250
200
150
100
50
0
Eldgos
Staðan 22. nóv.
Ég hef verið þeirrar skoð-unar að menn eigi að haldaáfram að hamra járnið
meðan það er heitt,“ segir Einar
Hansen Tómasson, sem stýrir
Film in Iceland af hálfu Íslands-
stofu, en stofnað er til þess verk-
efnis í því skyni að laða að er-
lend kvikmyndaverkefni.
„Það eru nokkrir samverk-
andi þættir sem hafa gert
okkur kleift að ná þess-
um árangri,“ segir
hann.
20% endurgreiðsla
skilyrði
„Verkefnin kæmu ekki
nema fyrir 20% endur-
greiðslu á þeim kostnaði
sem til fellur á Íslandi.
Þannig er einfaldlega mark-
aðurinn. Tökustaðastjóri sem
ég vinn mikið með hefur
til dæmis ekki heim-
ild til að leita að
staðsetningu fyr-
ir kvikmyndir ef
endurgreiðsla
er ekki í boði.
Hún er orðin
hluti af fjár-
mögnun á kvik-
myndum. Annar
þáttur sem spilar
inn í er að innvið-
irnir séu í lagi. Ef
menn sjá að myndir hafa
verið teknar upp hér á landi með
góðum árangri, þá geta þeir
treyst á góða þjónustu. Nátt-
úran spilar auðvitað stóra
rullu í þessu öllu saman
– Ísland hefur hentað
vel handritum þess-
ara kvikmynda.“
Það eru alltaf
aðrir valkostir.
„Áður en New
York tók upp end-
urgreiðslu þá voru
atriði sem áttu að
gerast þar einfaldlega
tekin í miðborg Los
Angeles eða í Toronto í
Kanada. 20% fara ekki endi-
lega beint í vasann hjá framleið-
endum, heldur
má líta á þetta
sem nið-
urgreiðslu á því
sem það kostar
að koma til Ís-
lands. Hér er
verðlag hátt á
hótelum, mat og
ýmsum aðföng-
um. En endurgreiðslan dregur úr
kostnaðinum og gerir mönnum
auðveldara að taka ákvörðun um
að koma til Íslands.“
Hann segir til skoðunar að
leggja meiri áherslu á kvik-
myndatengda ferðaþjónustu. „Við
fengum til okkar í febrúar tvo
sérfræðinga sem ég hafði séð til í
París og það mættu 70 manns úr
ferðamannageiranum til að
hlusta. Ég held að menn hafi átt-
að sig á tækifærunum. Besta
dæmið um það er sambandið milli
Indlands og Sviss. Indverjar hafa
farið til Sviss í tuttugu ár til að
taka myndir, en kvikmyndabrans-
inn þar í landi græðir ekkert á
því. Indverjarnir mæta sjálfir með
allt tökuliðið, lifa spart og ferðast
svo aftur til Indlands. Hinsvegar
hefur byggst upp gríðarleg ásókn
indverskra ferðamanna í ferðir til
Sviss. Mér skilst að það séu 250
þúsund á ári. Ástæðan er sú að
það er svo mikið af Sviss í Bol-
lywood-myndunum. Og enginn
meðaljón á Indlandi hefur efni á
að ferðast til Sviss í tíu daga,
þannig að þetta eru sterkefnaðir
túristar sem eyða miklu.“
Metfjöldi fyrirspurna
Það getur tekið langan tíma að
byggja upp svona viðskipta-
sambönd, en það að fá mörg stór
verkefni á einu ári flýtir fyrir, að
sögn Einars. „Núna erum við á Ís-
landsstofu að kanna það hjá kvik-
myndaverum í Hollywood hvort
þau geti aðstoðað okkur við
markaðsmálin, hvort það séu sam-
starfsfletir varðandi kynningu á
myndunum, svipað og gert var
með Hringadróttinssögu á Nýja-
Sjálandi.“
Útlitið fyrir næsta ár er gott.
„Við höfum fengið metfjölda af
fyrirspurnum og það eru tvö þrjú
verkefni í skoðun,“ segir Einar.
„Ég hugsa að ákvarðanir verði
teknar í byrjun ársins. En það er
ekkert öruggt fyrr en tökur hefj-
ast á Íslandi. Það eru dæmi um að
menn hafi hætt við með viku fyr-
irvara. Svo er mikið af minni
verkefnum. Ég var til dæmis að
horfa á klukkutímaþátt á Travel
Channel, „The Ethical Hedonist“,
þar sem fjallað er um hvernig við
nálgumst náttúruna. Og svo vor-
um við með indverskt verkefni
með fjörutíu manna tökuliði, sem
hefði þótt merkilegt í meðalári –
þegar Russell Crowe er ekki á
landinu,“ segir hann og hlær.
NOKKUR VERKEFNI Í SKOÐUN HJÁ FILM IN ICELAND
Leitum samstarfs við
kvikmyndaverin
Einar Hansen
Tómasson
– FULLT HÚS ÆVINTÝRAREYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is
DEVOLD EXPEDITION M. HETTU
Kvk, svartur, stærðir: S–XL
Kk, svartur, stærðir: S–XL
14.990 KR.
DEVOLD ACTIVE
Svartar, kk, stærðir: S–XXL
10.990 KR.
DEVOLD ACTIVE POLO
Fjólublár, kvk, stærðir: S–XL
11.990 KR.
DEVOLD ACTIVE
Bleikar, kvk, stærðir: XS–XL
10.990 KR.
DEVOLD ACTIVE
Svartur, kk, stærðir: S–XXL
11.990 KR.
DEVOLD EXPEDITION POLO
Kvk, rauður, stærðir: S–XL
Kk, rauður, stærðir: S–XXL
12.990 KR.
EINNIG TIL
Í SVÖRTU
25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Tökur í sumar við Vatnajökul.