Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 53
25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Stórsöngvararnir Kristinn
Sigmundsson og Diddú
koma fram á tónleikum í
Salnum í Kópavogi á laug-
ardagskvöldið klukkan 20. Með þeim
leika Björn Thoroddsen gítarleikari
og Gunnar Hrafnsson bassaleikari.
2
Félagarnir í Hundi í óskilum
fara á kostum í sýningunni
Saga þjóðar á Litla sviði
Borgarleikhússins. Fara þeir
á galsafengnu hundavaði yfir Íslands-
söguna eins og við þekkjum hana,
eða ættum að þekkja, í frumsömdum
tónsjónleik.
4
Dagskrá Svartra sunnudaga
heldur áfram í Bíó Paradís á
sunnudagskvöldið. Þá sýnir
Páll Óskar kunnar 8 mm
kvikmyndir, 17 mínútna útgáfu af
Dracula frá 1931 og kvikmyndina
Freaks í fullri lengd.
5
Ragnheiður Jónsdóttir
myndlistarmaður og Eiríkur
Þorláksson, listfræðingur og
sýningarstjóri, taka á sunnu-
dag klukkan 15 þátt í spjalli um yfir-
litssýningu Ragnheiðar sem nýlega var
opnuð á Kjarvalsstöðum. Yfirskrift
sýningarinnar er „Hugleikir og fingra-
flakk - Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar
Jónsdóttur“ en um fyrstu yfirlitssýn-
ingu hennar er að ræða.
3
Blúsveisla kennd við gítarhetj-
una Björgvin Gíslason
verður á Gamla Gauknum
laugardags- og sunnudags-
kvöld og hefst klukkan 21 bæði kvöld-
in. Bláir tregatónar verða kreistir úr
hljóðfærum, gestum til gleði.
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
1
Duo Harpverk, sem var stofnað árið2007 af hörpuleikaranum KatieBuckley og slagverksleikaranum
Frank Aarnink, heldur tónleika í 15:15 tón-
leikasyrpunni klukkan 15.15 í Norræna hús-
inu á sunnudag. Á tónleikunum sem þau kalla
Passport / Vegabréf flytur dúóið sex ný tón-
verk sem sérstaklega eru samin fyrir þau af
tónskáldum frá Búlgaríu, Egyptalandi,
Mexíkó, Rússlandi, Grikklandi og Bandaríkj-
unum. Markmið Duo Harpverks hefur frá
stofnun verið að panta og flytja nýja tónlist
fyrir hörpu og slagverk. Frá upphafi hafa þau
pantað yfir 60 verk eftir tónskáld víða um
heim, og einkum eftir ung tónskáld.
„Það er ekki mikið skrifað fyrir þessi hljóð-
færi saman, slagverk og hörpu,“ segir Frank
Aarnink. „Okkur langar bara að spila verk
sem eru skrifuð fyrir hörpu og slagverk, við
viljum ekki taka fyrir verk sem eru skrifuð
fyrir önnur hljóðfæri og umskrifuð.
Það hefur gengið mjög vel að afla nýrra
verka, við höfum fengum um sextíu verk á
síðastliðnum fimm árum, sem er mjög mikið,“
segir hann. Duo Harpverk hefur því fengið
meira en tíu ný tónverk á ári, sem eru sér-
samin fyrir þau.
„Við höfum spilað þau öll, og frumflytjum
nú fimm af þessum sex á tónleikunum á
sunnudag. Við ætlum að spila allt sem er
samið fyrir okkur.“
Frank segir tónskáld taka því afar vel þeg-
ar þau leita til þeirra. „Allir vilja skrifa fyrir
slagverk en flestir eru hálfsmeykir við hörp-
una. Harpan er ekki algengt hljóðfæri og svo
er hún með sjö pedala sem tónskáldin þurfa
að kynna sér hvernig virka. Á píanói eru tólf
nótur í áttund en ekki nema sjö á hörpum,
það er því til að mynda erfitt að leika króma-
tískt á hörpu.
Okkur finnst þessa blanda slagverks og
hörpu vera áhugaverð og erum svo heppin að
flest tónskáldin eru sammála okkur.“
Þeim Katie og Frank berast afar ólík verk.
„Við erum ekki með neinn ákveðinn stíl og
biðjum tónskáldin að semja einfaldlega þau
verk sem þau langar til að semja.
Við erum heldur ekki með fastákveðin slag-
verkshljóðfæri og fyrir vikið leik ég til dæmis
á tónleikunum núna á stáltrommu, víbrafón,
trommur, hljóðfæri sem er sérstaklega sent
til mín frá Egyptalandi, klukkuspil og hitt og
þetta. Mér finnst áhugavert að setja tón-
skáldunum ekki skorður hvað varðar það sem
ég leik á,“ segir hann.
DUO HARPVERK LEIKUR SEX NÝ VERK Á 15:15 TÓNLEIKUM Í NORRÆNA HÚSINU
Fá ný tónverk víðsvegar að
„OKKUR LANGAR BARA AÐ SPILA
VERK SEM ERU SKRIFUÐ FYRIR
HÖRPU OG SLAGVERK,“ SEGIR
FRANK AARNINK.
Katie Buckley og Frank Aarnink. „Allir vilja
skrifa fyrir slagverk en flestir eru hálfsmeykir
við hörpuna,“ segir hann um tónskáldin.
„Ég er kröfuharður á að mér smakkist vel það sem ég set upp í mig,“ segir Megas um textana sem hann syngur.
Morgunblaðið/Einar Falur