Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 57
Einar Gunnarsson knattspyrnumaður og Kristín Ýr Bjarna-
dóttir knattspyrnukona nefnir Grafarþögn sem uppáhaldsbók.
Katrín Jónsdóttir knattspyrnukona
nefnir Stieg Larsson-bækurnar og
Snjókarlinn eftir Jo Nesbø og Bjarni
Ólafur Eiríksson knattspyrnu-
maður nefnir Karla sem hata
konur eftir Stieg Larsson. Indriði
Sigurðsson knattspyrnumaður
nefnir Njálu sem uppáhaldsbók og það
gerir sömuleiðis Dóra María Lárus-
dóttir knattspyrnukona.
Leiðin á toppinn er ný bók þar sem tæplega 40 íþróttaafreksmenn Ís-
lands segja frá því hvað þeir hafa gert til að komast á toppinn. Íþrótta-
mennirnir svara einnig fjölmörgum spurningum,
þar á meðal eru þeir beðnir að nefna uppá-
haldsbókina sína.
Sverre Jakobsson handboltamaður
heldur mest upp á Mýs og menn eftir John
Steinbeck. Sif Atladóttir fótboltakona hef-
ur mest gaman af Harry Potter og Hung-
urleikunum og Kári
Steinn Karlsson lang-
hlaupari nefnir sömuleið-
is Harry Potter. Hel-
ena Sverrisdóttir
körfuboltakona nefnir
Hungurleikana og það
gerir einnig Ásdís
Hjálmsdóttir spjót-
kastari.
Arnaldur Indriðason á sér sinn
stað í hjörtum íþróttamanna. Rúrík
Gíslason knattspyrnumaður
segir að bækur hans séu í uppáhaldi
hjá sér, í sama streng tekur Aron
UPPÁHALDSBÆKUR AFREKSFÓLKS Í ÍÞRÓTTUM
Ásdís
Hjálmsdóttir
Kári
Steinn
Karlsson
Aron
Einar
Gunnarsson
25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Frásagnargleðin er
við völd í nýrri
barnabók Gunnars
Helgasonar, Auka-
spyrna á Akureyri.
Þetta er hressileg og
spennandi barnabók
með grafalvarlegum
undirtóni. Höfundi
tekst einkar vel að
skapa samúð með
persónum sínum.
Bókin situr ofarlega
á metsölulista og er
það verðskuldað.
Ljóst er að fram-
haldsbók mun líta
dagsins ljós í fyllingu
tímans.
Frásagnargleði
hjá Gunna
Fyrsta bókin
um Maxí-
mús
Músíkús var
að koma út á
ensku, bæði
á prenti og
sem rafbók.
Áður hefur
bókin komið
út í Kóreu,
Þýskalandi,
Færeyjum, í
Ástralíu og
er væntanleg
í Kína. Með
þessari út-
gáfu er bókin komin í alþjóðadreifingu á
ensku, bæði á prenti og svo auðvitað sem
rafbók fyrir Apple-snertiskjái.
Nýlega kom út ný bók um Maxa, þar sem
hann bjargar ballettsýningu í Hörpu.
Maxímús Músíkús fer víða.
MAXÍMÚS KOMINN
Á ENSKAN MARKAÐ
Þórarinn Eldjárn er á fornum
slóðum í Hér liggur skáld þar
sem ein af fjölmörgum persón-
unum er Þorleifur jarlaskáld.
Þórarinn vinnur úr frásögnum
Svarfdælu og Þorleifs þáttar
jarlaskálds og skáldar og færir í
stílinn á sinn einstaka hátt. Eng-
inn skyldi efast um hæfileika
Þórarins til að endurskapa
fornan tíma og textafimi hans
er aðdáunarverð. Þetta er
bráðskemmtileg og við-
burðarík skáldsaga. Hér er allt
haganlega gert.
Þórarinn
Eldjárn á
fornum slóðum
Gæðabækur úr
ýmsum áttum
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
JÓLABÓKAFLÓÐIÐ ER Í HÁMARKI OG ÞAÐ ER
VANDI AÐ VELJA ÞVÍ ÚRVALIÐ ER GRÍÐARLEGT.
HÉR ER MÆLT MEÐ NOKKRUM BÓKUM, FREMUR
ÓLÍKUM, SEM VANDLÁTIR LESENDUR ÆTTU EKKI
AÐ LÁTA FRAMHJÁ SÉR FARA. HÉR ERU SKÁLD-
VERK, BARNABÓK OG KVEÐSKAPUR.
Pétur Blöndal blaðamaður hefur safn-
að saman í eina bók alls kyns limrum
sem eiga það sameiginlegt að vera
stórskemmtilegar. Þarna eru limrur
eftir þjóðþekkta einstaklinga og aðra
minna þekkta. Eins er með limrurnar,
sumar eru alþekktar, aðrar ekki jafn-
kunnar. Þetta er fjölbreytilegt úrval
sem hlýtur að gleðja alla áhugamenn
um kveðskap. Myndskreytingar Val-
týs Péturssonar lífga enn meir upp á
þessa bók sem er með þeim allra
hressilegustu á markaðnum fyrir
þessi jól.
Hressilegar limrur
í jólabókaflóði
Emma, hin heimsfræga skáldsaga Jane Austen, hefur notið mik-
illar hylli og verið kvikmynduð og gerð að sjónvarpsþáttum. Það
er sérstakt fagnaðarefni að þessi góða skáldsaga skuli loks vera
komin út í íslenskri þýðingu Sölku Guðmundsdóttur. Ekki er að
efa að þetta verður ein af óskabókum margra lesenda fyrir þessi
jól. Hin fallega kápa hlýtur svo að vekja aðdáun og þess má geta
að útgáfan er myndskreytt.
Jane Austen-aðdáendur
geta fagnað
* Guð minn! Þaggaðu grátinn.Þú gafst mér of viðkvæmt hjarta.Stefán frá Hvítadal BÓKSALA 11.-17. NÓVEMBER
Allar bækur
1 Fimmtíu dekkri skuggarE L James
2 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
3 HáriðSaga Sig ljósmyndir & Theodóra Mjöll
4 Gísli á UppsölumIngibjörg Reynisdóttir
5 Stóra Disney heimilisréttabókinDisney
6 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
7 GleðigjafarSigrún Ósk Kristjánsdóttir
& Thelma Þorbergsdóttir
8 Eftirréttir SolluSólveig Eiríksdóttir
9 Aukaspyrna á AkureyriGunnar Helgason
10 HúsiðStefán Máni
Uppsafnað frá áramótum
1 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
2 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran
3 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir
4 Fimmtíu gráir skuggarE.l. Jones
5 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir
6 Eldar kviknaSuzanne Collins
7 HungurleikarnirSuzanne Collins
8 EnglasmiðurinnCamilla Läckberg
9 SnjókarlinnJo Nesbø
10 HermiskaðiSuzanne Collins
Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Augað er spegill sálarinnar.