Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Blaðsíða 64
Það er ávallt fagnaðarefni þegar vandað, ís-
lenskt barnaefni kemur út. Á dögunum kom út
mynddiskurinn „Daginn í dag 2“ þar sem fylgst
er með ævintýrum vinanna Hafdísar og
Klemma. Leiklistarneminn Þorleifur Einarsson
sér um brúðugerð, leikstjórn og klippingu en í
aðalhlutverkum eru Jóel Ingi Sæmundsson og
Hafdís María Matsdóttir. Skálholtsútgáfan gef-
ur út en þeir voru teknir upp í sumar.
Auk þess sem fylgst er með vinunum og æv-
intýrum þeirra koma við sögu brúður á borð við
þá Benna og Nebba sem eiga í höggi við dul-
arfullan nebbaþjóf.
Blásið hefur verið til útgáfuhátíðar í stóra sal
Sambíóanna í Egilshöll kl. 11.15 laugardaginn
24. nóvember, þar sem fyrsti þátturinn af nýja
disknum verður frumsýndur á breiðtjaldi. Frítt
verður inn og öllum opið á meðan húsrúm leyfir.
Hægt er að
sjá fyrsta þátt-
inn á breið-
tjaldi í Egils-
höllinni.
Ferskt íslenskt barnaefni
ÚTGÁFU DAGINN Í DAG 2 FAGNAÐ Á LAUGARDAG
SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2012
Það er leikur að
læra á Leiguna
Þín ánægja er okkar markmið
Skannaðu QR kóðann og lærðu á Leiguna
í Vodafone Sjónvarpi á 3 mínútum.
Heill kvikmyndaheimur opnast.
Skannaðu kóðann, leggðu símann
niður og lærðu á Leiguna
Ævintýri Susan Boyle, söngkonunnar sem skaust umsvifalaust upp á
stjörnuhimininn eftir að hún tók þátt í breska sjónvarpsþættinum
X-factor, er hvergi nærri lokið. Söngleikur byggður á skjótum frama
hennar hefur hvarvetna fengið góða dóma síðan hann var frumsýndur fyr-
ir hálfu ári og nú er von á fjórðu plötu söngkonunnar. Sjálfri finnst henni
skrítið að horfa á lífshlaup sitt á sviði og hélt í
fyrstu að „enginn myndi hafa áhuga á
því“. Móttökurnar sýna
annað og hefur
söngleikurinn notið
mikilla vinsælda um
allar Bretlandseyjar.
Eignir Boyle eru metnar á
22 milljónir punda sam-
kvæmt The Guardian.
SUSAN BOYLE HÉLT AÐ ENGINN HEFÐI ÁHUGA
Hin skoska Susan Boyle syngur hér fyrir knattspyrnuleik með Glasgow Celtic.
AFP
SUSAN BOYLE FÉKK SKJÓTAN FRAMA EFTIR AÐ
HÚN KOM FRAM Í SJÓNVARPSÞÆTTINUM X FACTOR.
VINSÆLDIR HENNAR Í BRETLANDI DVÍNA EKKERT.
Rúv 22:00 á
sunnudag
Monty Python-
gengið í gam-
anmynd frá
1983. Er hér um
ræða einkar
sniðuga mynd frá hinum goðsagna-
kennda glenshópi Monthy Python.
Myndin byggist á stuttum grín-
atriðum. Mörg atriðin hafa fengið
ódauðlegan sess í kvikmyndasög-
unni.
THE MEANING OF LIFE
SkjárEinn kl. 22.00 á sunnudag
Þáttur um réttsýna fjöldamorðingj-
ann Dexter er á dagskrá á sunnu-
dagskvöldum. Hver æsispennandi
þáttaröðin slær þeirri síðustu við.
Erum við skrítin að halda með
fjöldamorðingja?
MORÐHETJAN
Stöð 2 sport 2 á laugardag Heil
umferð verður leikin í enska bolt-
anum um helgina. Hægt er að sjá
beina útsendingu frá leikjunum á
laugardag og sunnudag. Flestir leik-
irnir fara fram klukkan 15.00 á
laugardag.
ENSKI BOLTINN
Boyle lifir drauminn
Boyle syngur
stundum í
söngleiknum.
Lárus Páll Birgisson, fer með auka-
hlutverk á mynddisknum, en hann leik-
ur Haffa frænda Klemma, sem er mikill
stríðnispúki. Einhverjir muna sjálfsagt
eftir Lárusi sem notaði sviðsnafnið
Lalli feiti þegar hann bar sigur úr být-
um í keppninni um Fyndnasta mann Ís-
lands árið 2000. Lítið hefur farið fyrir
honum á sviði uppistands síðustu ár.
Lárus hefur hins vegar talsvert verið í
fjölmiðlum vegna friðsamra mótmæla
sinna, m.a. við bandaríska sendiráðið.
Fyndnasti maður Íslands
2000 leikur stríðnispúka
Lárus Páll Birgisson