Morgunblaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2012
Egill Helgason hafði fjóra aðrastjórnarsinna í sínum opinbera
prívatþætti til að fordæma stjórn-
arandstöðuna fyrir málþóf. Hún tal-
aði um fjárlög á tíma, sem forseti Al-
þingis skaffaði henni, á milli
miðnættis og
morgunkaffis. Sá
tími var ekki tekinn
frá öðru og ekki
svefn frá neinum, því
enginn var í þingsal.
En því þegir Egillum
fyrirmyndarhegðun
Gordons Browns,
þess sama og sýndi
Íslendingum á spilin
sín haustið 2008?
Brown hætti semforsætisráðherra 11. maí 2010
og hefur verið í stjórnarandstöðu síð-
an, í eina 27 mánuði og flutt aðeins
eina ræðu í þingsalnum. Því væri því
mjög ósanngjarnt að saka Íslandsvin-
inn Gordon um málþóf, jafnvel þótt
hann hafi flutt þessa ræðu sína um
hábjartan dag. Hann er þvert á móti
sannkallaður fyrirmyndarstjórn-
arandstæðingur, nákvæmlega eins
og Jóhanna, Egill og Steingrímur og
aðrir stjórnarliðar vilja hafa þá.
Þessi agaða hegðun Gordons íþingsalnum hefur að auki skap-
að honum skilyrði til að flytja ræður
utanhúss. Fyrir þær hefur hann feng-
ið greidd pund sem svara til 400
milljóna íslenskra króna. Auðvitað er
það hærra en mánaðarlaun Jóhönnu,
sem eiga vissulega að vera það há-
mark sem jarðarbúar miða við. En ef
horft er til ræðunnar einu í þingsaln-
um og hún borin saman við þing-
mannslaunin hefur Gordon aðeins
fengið um 27 milljónir fyrir hana,
sem er í góðu samræmi við jóhönnuð
íslensk laun.
Má ekki ræða þetta við Gordon?Hann talar útl-ensku.
Gordon Brown
Gordon til
fyrirmyndar
STAKSTEINAR
Egill Helgason
Veður víða um heim 10.12., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri -2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 2 alskýjað
Vestmannaeyjar 5 rigning
Nuuk -5 alskýjað
Þórshöfn 0 skýjað
Ósló -6 alskýjað
Kaupmannahöfn -1 snjókoma
Stokkhólmur -3 skýjað
Helsinki -5 skýjað
Lúxemborg 2 súld
Brussel 2 léttskýjað
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 3 léttskýjað
London 5 skýjað
París 5 léttskýjað
Amsterdam 2 skúrir
Hamborg 0 snjókoma
Berlín -2 snjókoma
Vín 3 skýjað
Moskva -1 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 7 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 10 skýjað
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg -17 skafrenningur
Montreal 2 skúrir
New York 14 alskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 22 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:11 15:33
ÍSAFJÖRÐUR 11:54 14:59
SIGLUFJÖRÐUR 11:39 14:40
DJÚPIVOGUR 10:49 14:53
Bjarni Diðrik
Sigurðsson, pró-
fessor í skóg-
fræði við Land-
búnaðarháskóla
Íslands, verður
tekinn inn sem
fulltrúi í skóg-
fræðideild Hinn-
ar konunglegu
sænsku skóg-
ræktar- og land-
búnaðarvísindaakademíu (Kungl.
Skogs- och Lantbruksakademien ) í
Stokkhólmi. Bjarni verður tekinn
formlega inn í akademíuna 28. jan-
úar n.k. Hin konunglega sænska
skógræktar- og
landbúnaðarvísindaakademía er
sjálfstæð stofnun sem er bæði
sænskur og alþjóðlegur málsvari
fyrir rannsóknir innan „græna
geirans“, þ.e. skógræktar, landbún-
aðar, garðyrkju, veiðistjórnunar og
umhverfisskipulags.
„En það eru einmitt þessi fræða-
svið sem Landbúnaðarháskóli Ís-
lands leiðir hér á landi, og það er
því ekki síður verið að vekja at-
hygli á honum og rannsókna-
samstarfi hans við Svíþjóð og aðrar
Norðurlandaþjóðir með vali sænsku
akademíunnar að þessu sinni,“ seg-
ir í tilkynningunni. Á hverjum tíma
eru aðeins starfandi 70 fulltrúar
yngri en 65 ára í hverri deild vís-
indaakademíunnar, en þær eru alls
þrjár. Fulltrúar eru valdir út frá
vísindaafrekum og þátttöku í
fræðastarfi bæði innan Svíþjóðar
og í norrænu og alþjóðlegu sam-
starfi.
Nýir fulltrúar eru valdir inn einu
sinni á ári. Að þessu sinni er Bjarni
Diðrik eini erlendi fulltrúinn sem
tekur sæti í skógfræðideild aka-
demíunnar. Hann verður þó ekki
fyrsti Íslendingurinn til að taka
sæti í þessari deild, en Sigurður
Blöndal, fyrrverandi skógrækt-
arstjóri, hafði áður verið valinn þar
inn og á þar enn heiðurssæti.
Boðið í
sænsku
akademíuna
Tekur sæti í
skógfræðideildinni
Bjarni Diðrik
Sigurðsson
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum.
www.kia.is
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
12
-2
0
30
Við kynnum nýjan Kia cee’d Sportswagon – stærri og rúmbetri útgáfu
af hinum vinsæla Kia cee'd. Hann er vel búinn og kraftmikill en samt
sparneytinn, eyðir frá aðeins 4,4 l/100 km í blönduðum akstri.
Komdu við í sýningarsal Öskju að Krókhálsi 11 eða hjá umboðsmönnum
okkar og kynntu þér þennan stórglæsilega bíl. Við tökum vel á móti þér.
Þér er boðið að reynsluaka nýjum
Kia cee’d Sportswagon
Verð frá 3.590.777 kr. Kia cee’d Sportswagon dísil
*M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti. Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,06 %.
Aðeins 30.777 kr. á mánuði í 84 mánuði*
Kaupau
ki:
Vetrar
-
dekk
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga