Morgunblaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2012
Það eru engin sérstök plön fyrir daginn í dag. Ég stefni að þvíað halda upp á afmælið í janúar, kannski í kringum þrett-ándann þegar mesta jólaösin er búin. Við eigum bæði fer-
tugsafmæli á árinu, ég og bóndinn, ætli við höldum ekki sameig-
inlega veislu þá,“segir Elín Svava Ingvarsdóttir, búsett á
Svalbarðseyri.
Hún kann vel við sig þar. „Þetta er mjög þægilegt og notalegt
þorp. Það er ekkert hérna, engin búð eða neitt slíkt, en mjög góður
leikskóli og skóli. Þetta er passlega langt frá Akureyri og upplifunin
er líkt og að vera kominn út í sveit. Það er ekki umferðargnýrinn
sem vekur mann á morgnana hér, á sumrin eru það mófuglarnir og
þægileg hljóð sem berast inn um gluggann,“ segir hún og bætir við
að hún setji börnin áhyggjulaus út, því varla nokkur bílaumferð sé á
staðnum.
Þegar Elín Svava er ekki í fæðingarorlofi, eins og nú, sækir hún
vinnu til Akureyrar og starfar hjá Ferðamálastofu, sem er stjórn-
sýslustofnun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. „Starfið er mjög
skemmtilegt og fjölbreytt. Ég sé um gagnagrunn Ferðamálastofu
og höldum við úti yfirgripsmiklum gagnagrunni yfir ferðaþjónustu
á Íslandi, þetta er sennilega heildstæðasta síðan yfir íslenska ferða-
þjónustu sem til er,“ segir Elín.
Lítill tími hefur gefist undanfarið fyrir áhugamálin, sem eru
hannyrðir. Allur tíminn fer í barnastúss en hún hefur eignast þrjú
börn á fjórum árum. „Lífið snýst um börnin þessa dagana,“ segir
hún glaðbeitt. thorunn@mbl.is
Elín Svava Ingvarsdóttir er fertug í dag
Fjölskyldan „Allur tíminn fer í börnin, þau eru helsta áhugamálið
núna,“ segir Elín Svava sem eignaðist þrjú börn á fjórum árum.
Tvöfalt fertugsafmæli
á þrettándanum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Erna Sólveig Sverr-
isdóttir, Embla
Karen Sverrisdóttir
og Berglind Rós
Elmarsdóttir héldu
tombólu í Árbæn-
um, seldu dót sem
þær áttu og færðu
Rauð krossinum
ágóðann, 11.404 kr.
Hlutavelta
Reykjavík Matthías Helgi fæddist 12.
mars. Hann vó 5.240 g og var 55 cm
langur. Foreldrar hans eru Ásta I.
Sævarsdóttir og Garðar G. Ásgeirs-
son.
Nýir borgarar
Akranes Helga Guðrún fæddist 14.
mars kl. 15.59. Hún vó 4.440 g og var
55 cm löng. Foreldrar hennar eru Vig-
dís Anna Kolbeinsdóttir og Þorbjörn
Jónsson.
E
inar fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp, í
Borgarfirðinum og í
Ölfusinu. Hann fór
ungur til sjós 1959,
stundaði nám við Stýrimannaskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan skip-
stjórnarprófum 1964. Einar varð
skipstjóri hjá Meitlinum í Þorláks-
höfn 1964. Á farsælum skipstjórn-
arferli lánaðist honum að bjarga
þremur skipsáhöfnum úr sjávar-
háska, en af því tilefni hlaut hann
afreksverðlaun Sjómannadagsráðs
Reykjavíkur 1976.
Útgerð og fiskvinnsla
Einar keypti hlut í útgerðarfyr-
irtækinu Auðbjörgu ehf. 1974,
ásamt Árna Hermannssyni og
Bjarna Baldurssyni, en félagið
gerði út vélbátinn Arnar ÁR-55.
Einar var þá skipstjóri, Bjarni vél-
stjóri og Árni sá um rekstur í landi.
Þeir hófu svo fiskvinnslu 1981.
Einar og Bjarni keyptu hlut Árna
í fyrirtækinu, 1985, og 1987, festi
Einar kaup á hlut Bjarna, hætti þá
til sjós og varð framkvæmdastjóri.
Árið 1991 keypti Auðbjörg ehf.
Þorleif Guðjónsson ÁR- 350 með
öllum aflaheimildum, en hann varð
síðan Arnar ÁR-55 en eldra skipið
var selt. Árið 1995 var keyptur lítill
bátur með kvóta og 1998 keypti
Einar F. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Auðbjargar - 70 ára
Útgerðarfjölskyldan Einar og Helga með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum.
Engin afmælisveisla
Arnar ÁR 55 Fyrsta skip útgerðarinnar en á þessu skipi var Einar skipstjóri.
HVERFISTEINAR
Hágæða brýnsluvélar,
2 stærðir og mikið úrval aukahluta
Opið virka daga frá 9-18
og lau frá 10-16
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
Verð frá
68.900 kr.
Snúningsplatti
NÝTT