Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 3. D E S E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  293. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG Stúfur kemur í kvöld www.jolamjolk.is dagar til jóla 11 HEFUR ÞÝTT ÚRVAL LJÓÐA EFTIR TOR ULVEN ER EVRU- KREPPAN AÐ BAKI? GUNNAR THEODÓR FLÝR INN Í EIGIÐ ÆVINTÝRI VIÐSKIPTABLAÐ STEINSKRÍPIN 10STEINGERÐ VÆNGJAPÖR 50 Rætt er við Gunnar Helga, sem kennir stjórnmálafræði við HÍ, um stjórnlagaráðs- málið í Morgun- blaðinu í dag og segir hann þar ferlið allt mein- gallaða „óvissu- ferð“, frá þjóðfundi til meðferðar í þinginu. „Stjórnlagaráð var algjörlega um- boðslaus samkunda. Hún var ekkert Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það má auðvitað gera ráð fyrir því að stjórnarskrármálið sé eitthvað sem Jóhanna hafi bitið í sig að hún ætlaði að skila af sér á sínum ferli, svolítið eins og Gunnar Thoroddsen gerði 1983. Hann lagði fram frum- varp að stjórnarskrá sem átti að verða hans viðskilnaður við stjórn- málin. Alveg eins og hans stjórnar- skrá var ekki tilbúin er þessi stjórnarskrá ekki tilbúin,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson prófessor. lík þjóðinni hvað varðar bakgrunn, menntun eða annað. Kosningin var með þeim hætti að ekki er hægt að segja að byggt hafi verið á neinum málefnagrunni. Þannig að það er ekki samasemmerki milli stjórnlaga- ráðs og þess að málið hafi verið í höndum þjóðarinnar. Síðan að demba þessu máli í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en hin efnislega umræða hefur farið fram um það er að mínu viti og í þeim fræðum sem ég stunda dæmi um misnotkun á þjóðaratkvæða- greiðslu,“ segir Gunnar Helgi. »16 Hálfkláraður bautasteinn Gunnar Helgi Kristinsson  Prófessor segir stjórnlagafrumvarp minnisvarða Jóhönnu Það var glatt á hjalla þegar æfingar fyrir upp- setningu Borgarleikhússins á einum vinsælasta söngleik heims, Mary Poppins, hófust í gær. Stórskotalið úr íslensku leiklistarlífi fer með nokkur aðalhlutverka í verkinu en auk þeirra fá ungir og efnilegir leikarar að láta ljós sitt skína. Þá tekur Íslenski dansflokkurinn þátt í uppsetn- ingu á verkinu sem verður frumsýnt í Borg- arleikhúsinu 22. febrúar næstkomandi. Morgunblaðið/Golli Teygt og togað í allar áttir og mikið hlegið Æfingar fyrir uppsetningu Borgarleikhússins á Mary Poppins eru hafnar Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Viðvaranir Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) um að fjársýsluskattur sem leggst á eina starfsstétt á vinnumarkaði leiði til fækkunar starfa kvenna í útibúum, þjónustuverum og bakvinnslu fjár- málafyrirtækja, hafa gengið eftir, að mati samtakanna. „[...] frá upphafi álagningar 1. janúar 2012 hafa rúm- lega 100 starfsmenn í framangreind- um þjónustustörfum misst vinnuna, þar af 90 konur,“ segir í umsögn samtakanna til efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis. Þar er áformum um hækkun skattsins úr 5,45% í 6,75% mótmælt harðlega. Friðbert Traustason, formaður SSF, segir sömu lögmál hér á ferð og t.a.m.við gjaldtökuna af fiskveiðun- um. Hún komi alltaf niður á störfum. „Öll svona gjaldtaka af atvinnustarf- seminni sem er lögð á atvinnuna án tillits til hagnaðar kemur alltaf niður á störfum.“ SSF fékk lögfræðistofu til að meta hvort skatturinn sam- ræmdist jafnræðisreglu stjórnar- skrár og við fyrstu skoðun virðist slík lagasetning, að sögn Friðberts, brjóta í bága við samningsfrelsi og jafnræði starfsstétta. »12 Kvennastörf verst úti  Fjársýsluskattur gagnrýndur  Segja lögin brot á jafnræði  Lagt er til að mennta- og menn- ingarmálaráðuneyti taki við rekstri Læknaminjasafnins á Seltjarnar- nesi af Seltjarnarnesbæ frá og með 1. janúar 2013. Meirihluti bæjarstjórnar Sel- tjarnarness samþykkti í gærkvöldi að senda mennta- og menningar- málaráðherra bréf varðandi mál- efni safnsins þar sem þetta er lagt til og að þeirri byggingu sem ætluð var undir safnið verði fundið nýtt hlutverk. Vilja hætta rekstri Læknaminjasafnsins Læknaminjasafn Nýja safnhúsið er risið en bara fokhelt. Safnið er í Nesstofu.  MP banki hefur nýverið hafið leit að nýjum fjár- festum að bank- anum og segir Sigurður Atli Jónsson forstjóri að því hafi verið vel tekið. Stefnt er að því að ljúka hlutafjáraukn- ingu bankans á fyrri helmingi næsta árs. Sigurður Atli játar því að einkum sé horft til íslensku lífeyrissjóðanna. Lífeyrissjóður verslunarmanna er eini lífeyrissjóðurinn sem á hlut í bankanum en hlutur hans er tæp- lega 10%. „Við teljum mjög æskilegt fyrir bankann í heild sinni og núver- andi eigendur hans að fá inn fleiri slíka fjárfesta.“ »Viðskipti Fleiri lífeyrissjóðir gerist hluthafar Sigurður Atli Jónsson  Ferðamannatímabilið er farið að teygja sig langt út fyrir sumarið. Það má m.a. sjá af sölutölum bóka- búða. Ensk útgáfa af Íslendingasög- unum er söluhæsta bókin í Penn- anum-Eymundsson og skýtur þar með metsölubókum eins og 50 Shad- es of Grey ref fyrir rass. »Viðskipti Ferðamannabækur seljast vel fyrir jól
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.