Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 ö frandi gjafir Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com L’Occitane en Provence - Ísland Freyðibað 500 ml - 3.220 kr. • Handkrem 30 ml - 1.150 kr. • r tö frandi gjafir FRá PROVENCE LAVENDER Ilmpoki 35 g - 990 kr. • Handsápa 300 ml - 1.980 kr. 5.990kr. Verð áður:7.34 0 k r. GJAFAKASSI Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Það hefur aukist mikið að fólk leiti til Öryrkjabandalagsins vegna þess að það nær ekki endum saman, það hef- ur tæmt alla sjóði og er jafnvel að missa húsnæðið. Þetta segir Guð- mundur Magnússon, formaður Ör- yrkjabandalagsins, en fram hefur komið í fjölmiðlum að margir ör- yrkjar og eldri borgarar eru meðal skjólstæðinga hjálparsamtaka. „Lífeyririnn dugar ekki fyrir framfærslu. Á sama tíma og vöru- verð hækkar um 50% standa lífeyr- isgreiðslur að mestu leyti í stað,“ segir Guðmundur. Hann segir Ör- yrkjabandalagið hafa orðið vart við að þeim hafi fjölgað mikið sem hafa ekki lengur efni á að borga af hús- næði sínu og segir hann að umsókn- um hjá hússjóði bandalagsins hafi fjölgað mikið. „Kreppan er virkilega að koma fram núna,“ segir Guðmundur en illa staddir lífeyrisþegar skipti sennilega þúsundum. Hann gagnrýnir að á sama tíma og bætur hafi verið skert- ar hafi viðmiðunartölur staðið í stað. „Hjá sveitarfélögunum t.d. hafa viðmiðin til að fá félagslegar bætur ekki verið hækkuð. Þú þarft að vera með svo rosalega lágar tekjur til að fá einhverja aðstoð að það er bara enginn eða mjög fáir sem eru þar undir,“ segir hann. Vitlaust kerfi Guðmundur segist myndu vilja sjá skerðingar ársins 2009 leiðréttar og verðtrygginguna afnumda. Þá segir hann að hækka þurfi lífeyris- greiðslur til samræmis við neyslu- viðmið velferðarráðuneytisins. Það sé hvorki bjóðandi að lífeyrir til lengri tíma sé miðaður við lægstu laun né að minnstu tekjur fólks komi svo til frádráttar, krónu fyrir krónu. „Þetta letur bara til vinnu og letur til sparnaðar. Þetta er eins vitlaust kerfi og hægt er að hugsa sér,“ segir hann. Unnar Stefánsson, varaformaður Landssambands eldri borgara og formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir lítið um það að eldri borgarar leiti til lands- sambandsins eða félagsins í Reykja- vík vegna afkomu sinnar. Unnar segir kjör eldri borgara misjöfn, margir hafi það afar gott á meðan aðrir búi við fátækt, en eitt helsta baráttumál landssambandsins um þessar mundir sé að frumvarp um ný lög um almannatryggingar verði lagt fram og samþykkt á Al- þingi. „Í frumvarpinu felast kjarabætur til frambúðar fyrir eldri borgara, stighækkandi framlög á næstu fimm árum, sem áttu að öðlast gildi á næsta ári og það eru vonbrigði að það skuli ekki vera gert ráð fyrir því í fjárlögum næsta árs,“ segir Unnar. Ljóst sé að frumvarpið verði ekki lagt fram fyrir áramót en vonir standi til að úr rætist strax á nýju ári. Margir að komast í þrot Morgunblaðið/Ernir Jól Hjálparsamtök undirbúa nú jólaúthlutun en margir öryrkjar og eldri borgarar eru meðal skjólstæðinga þeirra.  Fjöldi öryrkja nær ekki endum saman og er að missa húsnæði  Landssam- band eldri borgara kallar eftir breytingum á lögum um almannatryggingar Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Við höfum ekki gripið til þess ör- þrifaráðs sem uppsagnir eru en við styðjum heilshugar kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga. Við leggjum áherslu á að stjórn Landspítalans fái fjárheimild til að leiðrétta launin sem eru skammarlega lág,“ segir Esther Ósk Ármannsdóttir, formað- ur Ljósmæðrafélags Íslands. Félagið hefur lýst stuðningi við kjarabaráttu kvennastétta hjá ríkinu sem það segir reka láglaunastefnu á Landspítalanum. „Landspítalinn er láglaunasvæði miðað við aðrar ríkisstofnanir og hefur alltaf verið það. Nú stendur hann hins vegar ekki bara í stað á meðan það er launaskrið annars staðar heldur er hann að dragast aft- ur úr,“ segir Esther. Fyrir utan lág laun segir hún að mikið álag sé á ljósmæðrum á Land- spítalanum. Fæðingardeildum hafi verið lokað úti á landi og álagið fært yfir á spítalann. „Fólk þarf bara að hlaupa hraðar. Það er bara þannig.“ Læknaráð Landspítalans ályktaði einnig í vikunni um uppsagnir hjúkr- unarfræðinga og skoraði á heilbrigð- isyfirvöld og stjórn spítalans að leysa vandann. „Þetta er ansi dökk mynd þegar 20% af hjúkrunarfræðingum hverfa á braut. Það er ófremdarástand. Það eru fleiri heilbrigðisstéttir sem eru greinilega í svipaðri stöðu sem fylgj- ast með þessu og okkur finnst að þetta sé bara fyrsti snjóboltinn sem byrjar að rúlla,“ segir Anna Gunn- arsdóttir, formaður læknaráðsins. Biðlistar lengist Hún bendir á að frá hruni sé þegar búið að skera niður þjónustu spít- alans og fækka starfsfólki verulega. „Við megum ekki við að missa meira, þá værum við að tala um al- gera uppstokkun á starfsemi spítal- ans. Hann leggst ekki niður en hann myndi ekki gera sömu hluti áfram.“ Sem dæmi nefnir hún að biðlistar í aðgerðir myndu lengjast og spítalinn næði fyrst og fremst að sinna bráða- þjónustu. „Við erum eina háskóla- sjúkrahúsið. Við höfum ekki í önnur hús að vernda til að senda fólk. Ef við stoppum innflæði sjúklinga vegna starfsmannaskorts verður þetta fljótt að sprengja utan af sér.“ Þá gagnrýnir læknaráðið þing- menn sem lögðu fram þingsályktun- artillögu um að ríkið niðurgreiði störf græðara. „Við erum furðu lost- in að fá þetta í andlitið að alþing- ismönnum detti það í hug að skipta því litla fé sem fer til heilbrigðisþjón- ustu í eitthvað annað en þá viður- kenndu grunnþjónustu sem þarf að halda uppi.“ Aðeins fyrsti snjóboltinn sem er byrjaður að rúlla  Ljósmæður og læknaráð um uppsagnir á Landspítalanum Anna Gunnarsdóttir Esther Ósk Ármannsdóttir Uppsagnir » Um 250 hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum hjá spít- alanum undanfarið. » Uppsagnirnar taka að óbreyttu gildi 1. mars næst- komandi. Í ályktun stjórnarfundar Landssambands eldri borg- ara, sem haldinn var á þriðjudag, lýsir stjórnin yfir mikilli óánægju með að frumvarp um breytingar á al- mannatryggingalögum hafi enn ekki verið lagt fram. Breytingarnar áttu að taka gildi 1. janúar en að sögn Unnars er um tímamótafrumvarp að ræða, þar sem það nýtur stuðnings allra stjórnmálaflokka og aðila vinnumarkaðarins. Hann segir að frumvarpið muni ekki eingöngu skila eldri borgurum kjarabótum heldur verði almanna- tryggingakerfið með því gert einfaldara og auðskild- ara. „Almannatryggingakerfið hefur verið stagbætt í gegnum margra ára lagfæringar og breytingar þannig að það er varla fyrir mennska menn að skilja upp né niður í því. Við leggjum mikið upp úr að þetta verði lagfært jafnframt því að bætur verði hækkaðar.“ Lýsa yfir óánægju í ályktun ENDURSKOÐUN ALMANNATRYGGINGA Unnar Stefánsson Stöðugur straumur fólks lá í hús- næði mæðrastyrksnefndar í gær þegar matarúthlutun fór fram. „Þetta var alveg hreint linnulaust,“ segir Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður mæðrastyrksnefndar, en ljóst er að neyð margra er mikil og hefur vel á þriðja þúsund manns sótt um aðstoð fyrir jólin. Frestur til að sækja um jóla- aðstoð mæðrastyrksnefndar renn- ur út klukkan 12 í dag en Ragnhild- ur segir að alltaf bætist þó eitthvað í hópinn þegar nær dregur. Jóla- úthlutunin fer fram dagana 19.-21. desember á Fosshálsi 7 og þar verð- ur bæði úthlutað matvælum og ein- hverju í jólapakkann. „Þetta er yndislegt húsnæði sem við erum í; skemmtilegt, bjart og fallegt. Þar verður gjafahorn og þar verða föt, snyrtivörur, bækur og sitt lítið af hverju sem fólk hefur gefið en kaupmenn og fyrirtæki hafa látið mikið af hendi rakna í þetta,“ segir Ragnhildur. Fjölskylduhjálp Íslands var einn- ig með úthlutun í gær og sóttu um 400 fjölskyldur aðstoðina. Á annað þúsund manns hefur sótt um jóla- úthlutun Fjölskylduhjálparinnar, sem fer fram 17., 19. og 21. desem- ber í Eskihlíð í Reykjavík en 18. og 20. desember í Grófinni 10c í Reykjanesbæ. Hægt verður að sækja um aðstoð- ina fram á aðfangadag en bæði verður matvælum úthlutað og jóla- gjöfum, t.d. fatnaði frá 66°Norður og geisladiskum og leikjum frá Senu. Morgunblaðið/Ernir Fjöldi sem þarf aðstoð  Þúsundir sótt um jólaúthlutun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.