Morgunblaðið - 13.12.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Eins og búist var við hefurfréttastofa „RÚV“ ekki séð
sóma sinn í að biðjast afsökunar á
óhróðursfrétt sinni um Ísland sem
„byggði“ á línuriti, sem tekið var
úr öllu samhengi.
Þessi fréttastofa
hefur svo lítið álit á
sjálfri sér að það
gerir henni ekkert
til að afbaka fréttir
með þessum hætti
og vera staðin að
því.
Þeir, sem neyddir eru til aðstanda undir henni með háum
fjárframlögum, fara hins vegar hjá
sér dag eftir dag. Jón Magnússon,
fyrrverandi alþingismaður og
framámaður í málefnum neytenda
um langt skeið, skrifar:
Frétt í sjónvarpi RÚV í gærvakti athygli. Sagt var frá því
að dagvörur hefðu hækkað allt að
fimmfalt í verði miðað við Norð-
urlönd. Þetta var stórfrétt. Vöru-
verðshækkun veldur hækkun verð-
tryggðu lánanna. Af hverju var
ekki búið að gera neitt í málinu af
Samkeppnisstofnun og/eða rík-
isstjórninni? Af hverju var ekki
rætt við viðskiptaráðherra Stein-
grím J. vegna þessa okurs á neyt-
endum?
En nei. Það var engin ástæða til
að tala við Steingrím. Þetta var í
raun ekki frétt. Alveg ótrúleg ekki
frétt.
Því miður voru vinnubrögðin áfréttastofu RÚV óviðunandi.
Þegar heimildir Nordic Statistic
eru skoðaðar, en þaðan hlýtur þessi
frétt að vera komin, þá sést að það
er verið að fjalla um hækkun á 5
ára tímabili. Ekki er tekið inn í
þessa útreikninga RÚV gengishrun
á Íslandi og gríðarlegar skatta-
hækkanir á áfengi, tóbaki og bens-
íni.“ Og eins og bent hefur verið á
var launavísitalan ekki höfð til hlið-
sjónar svo öll fréttin var marklaus.
Jón Magnússon
Ekkert frést
af ekki frétt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.12., kl. 18.00
Reykjavík 1 léttskýjað
Bolungarvík -2 heiðskírt
Akureyri -8 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 0 alskýjað
Vestmannaeyjar 3 skýjað
Nuuk -2 alskýjað
Þórshöfn -2 upplýsingar bárust ek
Ósló -12 skýjað
Kaupmannahöfn -2 skýjað
Stokkhólmur -6 snjókoma
Helsinki -2 alskýjað
Lúxemborg -2 heiðskírt
Brussel 0 heiðskírt
Dublin 6 skúrir
Glasgow 0 þoka
London 1 skýjað
París 0 heiðskírt
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg -2 skýjað
Berlín -2 snjókoma
Vín -3 skafrenningur
Moskva -11 heiðskírt
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 8 léttskýjað
Barcelona 11 skýjað
Mallorca 10 alskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 10 léttskýjað
Winnipeg -17 snjókoma
Montreal -3 alskýjað
New York 4 heiðskírt
Chicago 0 heiðskírt
Orlando 22 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:14 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 11:59 14:56
SIGLUFJÖRÐUR 11:44 14:37
DJÚPIVOGUR 10:53 14:52
Stanislas Michéle André Bohic,
landslagsarkitekt, lést í gær, 12.
desember, á Landspítalnum við
Hringbraut, 64 ára að aldri.
Stanislas fæddist 12. febrúar árið
1948 í Bordeaux í Frakklandi. Hann
fluttist frá Frakklandi til Íslands ár-
ið 1978 og bjó hér alla tíð síðan.
Stanislas lærði við háskólann La
Ferte de Milton og útskrifaðist sem
landslagsarkitekt árið 1971.
Hann vann til margra verðlauna
fyrir hönnun sína. Margir fallegir
garðar eftir Stanslas prýða götur
borgarinnar. Þá ritaði hann pistla í
fasteignablað Morgunblaðsins um
nokkurra ára skeið.
Stanislas lætur eftir sig eig-
inkonu, börn og barnabörn.
Andlát
Stanislas
Bohic
Sóla sögukona skemmtir í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum á að-
ventunni. Hún segir börnunum
sögur af sjálfri sér, jólasveinunum
og jólakettinum, sem er víst lok-
aður inni í garðinum. Eftir sögu-
stundina er hægt að skoða sögubíl
Borgarbókasafns, hann Æringja,
en búið er að skreyta hann fyrir
jólin.
Sóla verður í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í dag kl. 10:15
og kl. 13:30, þriðjudaginn 18. des-
ember kl. 10:15 og fimmtudaginn
20. desember kl. 13:30.
Allir eru velkomnir.
Sóla sögukona í
húsdýragarðinum