Morgunblaðið - 13.12.2012, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.12.2012, Qupperneq 11
krakkana hafði ég heldur ekki ímyndað mér að verkið kæmist í út- gáfu svo það kom skemmtilega á óvart. Síðan hafði ég svo gaman af vinnunni við Steindýrin að ég ákvað að halda áfram á sömu braut.“ Skrifar og les furðusögur Gunnar segir Steinskrípin vera fyrir ævintýraþyrsta lesendur á öll- um aldri. „Þetta er náttúrlega fant- asía, eða furðusaga, svo ég noti ný- legt hugtak yfir geirann, og maður fær svolítið á tilfinninguna að þeir sem vilji skrifa fantasíur geti ekki gert það fyrir fullorðna af því að það er frekar lokaður og erfiður mark- aður. Innan barna- og unglinga- bókmennta er hins vegar miklu meira svigrúm og því dregst sumt furðusagnafólkið þangað. Af því leið- ir að lesendahópurinn verður frekar óræður hvað varðar aldursmörk, nokkuð sem hefur löngum fylgt fant- asíubókmenntum.Áður en Hobbitinn kom fyrst út 1937 lét útgefandinn tíu ára strákinn sinn lesa handritið og skila inn umsögn. Hún var mjög stutt og hljóðaði eitthvað á þessa leið: Þessi saga segir frá Bilbo Bagga hobbita. Þetta er mjög skemmtilegt og vel skrifað ævintýri og hentar börnum á aldrinum 5-9 ára. Núna eigum við von á að fólk af öllum aldri muni streyma í bíó um jólin að fylgj- ast með sömu sögu. Þetta segir okk- ur bara hvað fantasíur geta teygt á aldursmörkunum og sjálfur hef ég mjög gaman af því að skrifa og lesa ævintýri fyrir börn á öllum aldri.“ Skrímsli í Hallgrímskirkju Það eru ekki sömu persónur í Steinskrípunum og fyrri bókinni en það eru sömu álög og sömu skrímsli nema allt er margfalt meira en í Steindýrunum. Í fyrri bókinni er hættan á því að allt muni breytast í stein aðeins yfirvofandi en í Stein- skrípunum hafa álögin þegar orðið að veruleika áður en sagan hefst. „Fyrri bókin var aldrei hugsuð sem fram- haldssaga svo ég þurfti að fara aftur í Steindýrin og finna tengingar. Það voru eiginlega vandræði hvernig hún endaði. Lokablaðsíðan neyddi mig til að færa verkið marga áratugi fram í tímann, sem var frábært vegna þess að það veitti mér frelsi til að vera með alveg nýtt og sjálfstætt sögu- svið, enda er framhaldið allt öðruvísi saga en forverinn. Báðar eiga þær þó sameiginlegt að gerast í okkar veru- leika, en ekki tilbúnum heimi. Stein- dýrin ferðast hálfa leið yfir hnöttinn og í Steinskrípunum gerist helming- urinn af bókinni á Íslandi og stór hluti í París, enda bjó ég þar á meðan ég skrifaði bróðurpart sögunnar,“ segir Gunnar. Hann segist einnig hafa lagt mikið upp úr því að laga æv- intýrið að hversdagsleikanum og er nokkuð viss um að lesendur Stein- skrípanna líti ekki Hallgrímskirkju sömu augum að lestrinum loknum. „Ég nýti mér hversdagslegt borg- arumhverfið til að setja ævintýrið á svið og þar á meðal leikur Skóla- vörðuholtið stórt hlutverk í einum kafla, en þar er allt morandi í skríp- um. Ég bíð nú eftir því að krakkarnir sem lesa bókina fari í skrípaleiki í kringum Hallgrímskirkju. Það væri ótrúlega gaman að sjá það verða að veruleika.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 ABC barnahjálp Súkkulaði Sæt og góð gjöf. Súkkulaði gefur máltíð ABC barnahjálp hefur í samvinnu við Nóa Síríus látið framleiða fyrir sig fjórar tegundir af 100 g súkkulaði, en með andvirði eins súkkulaði- stykkis er hægt að gefa fimm börn- um máltíð. Hægt er að kaupa stakt súkkulaðistykki eða tvö eða fjögur saman í sellófani með jólaslaufu. Slíkt getur t.d. hentað vel sem jóla- gjöf eða til að færa fólki sem heldur jólaboðið. ABC barnahjálp er al- íslenskt hjálparstarf og er með um 12.000 börn á sínum vegum í 40 skólum í 8 löndum Afríku og Asíu. Á sýningunni Hjartalag - hlýjar kveðjur sem nú stendur yfir á Bláu könnunni eru til sýnis áprentuð hjörtu úr plexígleri með litlum ljóða- brotum. Hönnuður þeirra er Hulda Ólafs- dóttir sem hefur undanfarin tvö ár hannað tækifæriskort og myndir með litlum ljóðabrotum eftir hana sjálfa. Hulda sækir innblástur í lífið sjálft, reynslu hennar og annarra, náttúruna og í mannfólkið. Hulda útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri í grafískri hönnun 2006. Hún starfar sjálfstætt og á Stíl aug- lýsingastofu. „Þetta hófst árið 2010 með litlum setningum sem fóru að detta í koll- inn á mér. Ég skrifaði þær svo niður en vissi ekkert hvað ég ætti að gera við þær. Smátt og smátt fóru setn- ingarnar yfir í einskonar ljóðabrot sem nú eru komin á tækifæriskort og hjörtu. Markmiðið með hjört- unum og tækifæriskortunum er að færa öðrum hlýju og væntumþykju,“ segir Hulda. Hjartakveðjur Huldu Ólafsdóttur Hönnun Áprentuð hjörtu úr plexígleri með litlum ljóðabrotum. Færir fólki hlýju og væntumþykju Fyrri bók Gunnars Theodórs Eggertssonar, Steindýrin, hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2008. Þá bók skrifaði hann á sama tíma og hann vann á frístundaheimili í Hlíðaskóla. „Þá var ég nýbúinn að klára MA-próf í kvikmyndafræði og þar á undan var ég búinn að taka BA-próf í bókmennta- fræði með listfræði sem aukagrein. Ég var búinn að vera rosalega lengi í há- skóla og það var mjög gaman að fara að vinna með krökkum. Mér fannst það bara gott fyrir heilsuna.“ Gunnar skrifaði bókina fyrir börnin á frí- stundaheimilinu og fengu þau upplestur vikulega, einn kafla í senn. Börnin aðstoðuðu við skrifin HLAUT ÍSLENSKU BARNABÓKAVERÐLAUNIN ÁRIÐ 2008 Samsung Galaxy Mini 2 Nettur og þunnur en engu að síður með góða vinnslu og stóran, skarpan skjá. 32.990 kr. 3.090 kr. á mán.* Jólapakki Vodafone Fylgir þessum símum og fleiri snjalltækjum hjá Vodafone. Samsung Galaxy Ace II Ný útgáfa hins vinsæla Ace síma. Öflugur, með góðan skjá og myndavél. 49.990 kr. 4.590 kr. á mán.* Jólin eru komin hjá Vodafone Þín ánægja er okkar markmið vodafone.is/jol *M .v. 12 .m án uð i. Vi ð af bo rg un ar ve rð bæ tis tg re ið sl ug ja ld ,3 40 kr .á m án uð i.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.