Morgunblaðið - 13.12.2012, Side 12

Morgunblaðið - 13.12.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fjársýsluskatturinn sem tók gildi um síðustu áramót hefur ýtt undir veru- lega fækkun starfsmanna hjá fjár- málafyrirtækjum að mati Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF). Nú stendur til að hækka skattinn á næsta ári úr 5,45% í 6,75% sam- kvæmt frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem er til umfjöllun- ar Alþingis. SSF hafa sent efnahags- og við- skiptanefnd hörð mótmæli í umsögn um frumvarpið vegna hækkunar skattsins, sem samtökin segja að sé í reynd sérstakur launaskattur, sem lagður er á eina starfsstétt á íslensk- um vinnumarkaði. Þegar lögfesting skattsins var í undirbúningi fyrir ári vöruðu samtök- in við því að álagning hans myndi valda fækkun starfa, sem bitnaði að langmestu leyti á konum sem starfa í útibúum, þjónustuverum og bak- vinnslu fjármálafyrirtækja. „Þetta hefur því miður gengið eftir því frá upphafi álagningar 1. janúar 2012 hafa rúmlega 100 starfsmenn í fram- angreindum þjónustustörfum misst vinnuna, þar af 90 konur,“ segir í um- sögn SSF. Friðbert Traustason, formaður SSF, segir fjársýsluskattinn sem lagður er á launagreiðslur fyrst og fremst bitna á þjónustustörfunum. Kostnaðurinn við rekstur þessa hluta bankakerfisins, í útibúuunum, við bakvinnslu og í þjónustuverum bank- anna og annarra fjármmálafyrir- tækja, sé nánast eingöngu vegna launa starfsmannanna. Við álagningu skattsins eykst þjónustukostnaður- inn og þá er aðeins um tvær leiðir að velja; annaðhvort að leggja meiri álögur á viðskiptavinina eða minnka reksturinn og fækka starfsfólki, að sögn Friðberts. Flestar með langan starfsaldur og eru á lágum launum Hann minnir á að ¾ hluti starfs- manna í fjármálafyrirtækjum eru konur og langflestar þeirra séu með langan starfsaldur og á lágum laun- um. Útibúum hefur fækkað mikið að undanförnu. Friðbert nefnir sem dæmi að þegar útibúum Landsbank- ans var lokað sl. vor náði lokunin til tæplega 60 starfsmanna. „Þetta eru kvennastörf og það er merkilegt að heyra stjórnmálamenn tala um nauðsyn á hagræðingu í þessu kerfi. Það er búið að loka 50-60 útibúum og afgreiðslum út um allt land utan Reykjavíkur auk lokunar útibúa Póstsins á litlum stöðum. Á sama tíma er svo talað um að ráðast í stórframkvæmdir s.s. í samgöngu- málum þar sem útvega á hópi karla vinnu í eitt til tvö ár en það virðist vera í lagi að leggja niður kvenna- störfin,“ segir hann. Friðbert segir að konur séu yfir 90% starfsmanna í þeim 93 útibúum sem eftir eru og eru þær flestar með langan starfsaldur. „Á landsbyggðinni er ekki um nein laus sambærileg störf að ræða og uppsagnir því oftar en ekki ávísun á atvinnuleysi. Fjársýsluskatturinn kemur líka af- ar illa við öll smærri fyrirtæki, bæði viðskipta- og fjárfestingabanka, þar sem hlutfall launa í rekstrarkostnaði er mun hærra en hjá stóru bönkun- um,“ segir Friðbert. Samtökin hafa fengið lögfræðing á lögmannsstofunni Logos til að kanna hvort lagasetning af þessu tagi, sem setji skorður á kjarasamninga hjá einni starfsstétt og samningafrelsi stéttarfélagsins, samræmist jafn- ræðisreglu stjórnarskrárinnar. „Við fyrstu skoðun lögfræði- stofu virðist slík lagasetning með öllu óheimil og brjóta í bága við samningsfrelsi og jafnræði starfs- stétta,“ segir í umsögn samtak- anna til Alþingis. Segja skattinn valda fækkun fjölda starfa Morgunblaðið/Kristinn Umdeilt Alþingi fjallar um umdeildan fjársýsluskatt. Bankaútibúum og afgreiðslum fjármálafyrirtækja hefur hríð- fækkað á umliðnum árum. Sam- tals eru útibúin 93 að tölu í dag og hefur þeim fækkað úr 174 á árinu 2005 þegar þau voru flest. Í dag er einungis þriðjungur af heildarfjölda útibúa á Stór- Reykjavíkursvæðinu, en 2/3 á landsbyggðinni. Landsbankinn er með níu útibú í Stór-Reykjavíkursvæð- inu, en 25 á landsbyggðinni. Ís- landsbanki er með 13 á Stór- Reykjavíkursvæðinu og níu á landsbyggðinni. Arion banki er með níu á Stór-Reykjavíkursvæðinu og 14 á landsbyggðinni. Sparisjóðirnir eru með 12 útibú, öll á landsbyggðinni, og MP banki er með tvö útibú í Reykjavík, skv. upplýsingum Samtaka starfsmanna fjármálafyrir- tækja. Útibú hverfa eitt af öðru ÚR 174 ÚTIBÚUM Í 93 Friðbert Traustason  Fá lögfræðimat á hvort fjársýsluskattur stenst stjórnarskrá Hlutdeild bílaleiga hefur á síðustu árum verið milli 40 og 50% af heild- arsölu nýrra bíla hér á landi en reikna má með að nýskráningar fólksbíla verði um 7.700 þegar líð- andi ár verður gert upp. „Verði af fyrirhuguðum breytingum á vöru- gjaldakerfi bílaleigubíla mun það gera allar áætlanir bílaumboðanna að engu og ljóst að þau þurfa að fara í gegnum enn eina endur- skipulagninguna með tilheyrandi hagræðingu í starfsmannahaldi,“ segir í nýrri umsögn Bílgreina- sambandsins um frumvarp um ráð- stafanir í ríkisfjármálum. Lýsir sambandið þungum áhyggj- um af tillögu ríkisstjórnarinnar um afnám afsláttar sem bílaleigur njóta af vörugjöldum. Samtök ferðaþjónustunnar hafa haldið því fram að afnám vöru- gjaldaafsláttarins muni leiða til a.m.k. 15-20% verðhækkunar á gjaldskrá bílaleiga. Bílgreina- sambandið telur fyrirséð að kaup- geta bílaleiga muni dragast talsvert saman með ófyrirséðum afleiðingum fyrir bílainnflytjendur. „Þá er ljóst að endurnýjun bif- reiðaflota landsmanna dregst enn frekar á langinn og eldri bílar verða meira í umferð með þeim afleið- ingum að hér verður mun meira af ótryggari og eyðslufrekari bifreið- um í umferð en ella. Bílaleigubílar skila sér út á almennan markað eftir u.þ.b. ár en þeir eru seldir með tölu- verðum afföllum sem hefur gert al- menningi auðveldara að endurnýja fjölskyldubílinn. Þess ber að geta að bílafloti Íslendinga er meðal þeirra elstu í Evrópu eða u.þ.b.12 ára með- an innan [ESB]-landanna er með- alaldur fólksbíla 8,3 ár,“ segir í um- sögninni. Bílgreinin hafi mátt þola upp und- ir 90% samdrátt í sölu undanfarin ár. Nýskráningar bíla hafi farið úr um 20.000 niður í 3.000 stk. árið 2009. „Heldur hefur greinin náð að rétt úr kútnum á þessu ári og starfs- mönnum verið fjölgað á ný, þó enn sé töluvert í land með að eðlilegum markaði sé náð.“ Ótryggari og eyðslufrekari Morgunblaðið/Golli Umferð Deilt er á fyrirhugað afnám vörugjaldaafsláttar sem bílaleigur njóta. Dýraríki Íslands teiknað af Benedikt Gröndal á árunum 1874 – 1905 ásamt formála og tegundaskrá höfundar Steindór Steindórsson frá Hlöðum ritar eftirmála Viðhafnarútgáfa þessi er gerð til þess að minnast 150 ára afmælis höfundarins 6. október 1976 Þann 6. október 1976 minntumst við 150 ára afmælis náttúrufræðingsins og snillingsins Benedikts Gröndal og gáfum út þetta höfuðverk hans í 1500 tölusettum og árituðum eintökum. Það talar sínu máli um glæsileik og gildi verksins, að Vigdís Finnbogadóttir forseti valdi það sem gjöf til erlendra þjóðhöfðingja, þ. á m. þeirra Ronalds Reagans og Mikahíls Sergejevítsj Gorbatsjovs, í lok heimssögulegs fundar þeirra í Höfða 1986. Meginupplag bókarinnar var fyrir löngu uppselt en nýlega fundust prentarkir síðustu 40 eintakanna. Þau hafa verið bundin inn og almenningi gefst nú kostur á að eignast þau. Verð hvers eintaks er kr. 49.500,- Bókin er seld beint af forlagi. Nánari upplýsingar í síma 898 6658 og á netfanginu ornogorlygur@simnet.is ÖRN OG ÖRLYGUR Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is veittu vellíðan gefðu gjafabréf Gjafabréf fyrir líkama og sál Kínversk heilsumeðferð, heilsurækt og dekur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.