Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Kristján Jónsson kjon@mbl.is Lyfjaverð var einna hæst á Íslandi miðað við hin Norðurlöndin í ársbyrj- un 2008 en í tveimur verðkönnunum lyfjagreiðslunefndar á þessu ári hef- ur það verið lægra en meðaltalið í hin- um löndunum og lægst í sex tilfellum í september, hæst í einu. Er þá borið saman verð á 36 af þeim 50 veltu- hæstu pakkningum lyfja sem Sjúkra- tryggingar niðurgreiða hér. Samt er hægðarleikur að finna dæmi í Svíþjóð um að verð á algeng- um lyfjum eins og magalyfinu Omeprazol, geðlyfinu Cipramil og sveppalyfinu Terbinafin sé mun hærra en hér. Hvað veldur? „Samheitalyf geta verið á lægra verði annars staðar á Norðurlöndun- um,“ segir Rúna Hauksdóttir, for- maður lyfjagreiðslunefndar. „Þeir eru með miklu meira framboð. Við er- um heppin ef við erum með t.d. þrjú samheitalyf sem hafa svipaða virkni og keppa í verði en þeir eru ef til vill með níu. Samkeppnin þrýstir verðinu niður hjá þeim. Samheitalyf eru á svokallaðri við- miðunarverðskrá og þá má skipta út í apótekum, nota ódýrasta lyfið. Verð- teygnin í slíkri skiptivöru er meiri en almennt í lyfjaverði vegna sam- keppni. En þetta getur líka breyst hratt. Allt í einu getur komið mán- uður hjá Svíum þar sem verðið er al- veg á botni vegna undirboða en síðan hækkar það á ný, t.d. þegar birgðir hafa klárast.“ Rúna segir lyfjagreiðslunefnd ákveða hámarksverð á lyfjum sem greidd eru niður. Hún segir að reglu- legar verðkannanir gefi ákveðna mynd af þróuninni á t.d. tveggja ára tímabili þótt hver könnun sé auðvitað aðeins svipmynd af stöðunni ná- kvæmlega þann daginn. Ávallt sé leiðrétt vegna mismunandi skattlagn- ingar, notaður 25,5% vaskur eins og hérlendis. Hámarksverð á lyfseðilsskyldum lyfjum Hámarksverð er á lyfseðilsskyld- um lyfjum hér og álagning föst, 9%, plús föst upphæð, 780 krónur. Þetta verð gildir upp að 12 þúsund krónum, á dýrari lyfjum er hún er aldrei hærri en 2.028 krónur plús áðurnefndar 780 krónur. En verðlagning er hins vegar frjáls á lyfjum sem seld eru í lausa- sölu. Lyfsölufyrirtæki þurfa að fá lyf skráð hjá Lyfjastofnun og getur kostnaðurinn verið mikill við skrán- inguna, jafnvel hundruð þúsunda króna fyrir eitt lyf. Að vísu er hægt að sækja um undanþágu, sem oft merkir að framleiðandinn krefst þá hærra verðs en áður. Gagnrýnt hefur verið að hér gildi strangar reglur um íslensku á um- búðum og leiðbeiningarseðlum. Í reynd sé um að ræða markaðshindr- un. En á móti kemur að með merk- ingunni er verið að fullnægja ströng- um öryggis- og gæðakröfum sem gerðar eru á Evrópska efnahags- svæðinu. Lyfsalar benda á að varasamt sé að taka úr sölu ákveðin lyf vegna þess að menn vilja spara fyrir ríkið. Áhugi er- lendra framleiðenda á Íslandi geti horfið. „Það er ástæða fyrir því að samheitaframleiðendum finnst stundum ástæðulaust að láta skrá lyf á Íslandi, það er ekki nóg upp úr þessu að hafa,“ segir Ólafur Adolfs- son hjá Apóteki Vesturlands á Akra- nesi. „Menn eru ekkert að koma hing- að af einhverri greiðasemi við okkur Íslendinga. Ef sótt er um hærra verð en sem nemur meðalverði á Norður- löndunum er skráningu hafnað.“ Lyfjaverð orðið lágt hér  Kannanir sýna að verðlagið hefur lækkað verulega frá hrunárinu 2008  Lyfsalar óttast að erlendir framleiðendur samheitalyfja missi áhuga á Íslandi Verðsamanburður Lyfjagreiðslunefndar í september 2012 Concerta ofvirknislyf Symbicort Turbuhaler astmalyf Nexium sýklalyf Cymbalta þunglyndislyf Asacol endaþarmsstílar 13.766 37.182 24.424 24.032 10.275 13.317 35.953 22.122 27.412 9.658 30 stk 360 sk 100 stk 98 stk 60 stk 36 mg 164,5mcg/sk 40 mg 60mg 800mg Styrkur Magn Íslenskt smásöluverð 14.953 39.712 33.709 31.974 9.549 Danskt SSV 10.423 27.476 15.845 27.587 10.733 Norskt SSV 13.933 40.670 11.802 25.520 8.691 Sænskt SSV 13.961 - 27.132 24.568 - Finnskt SSV Meðal smásöluverð DK NO SE FI forðatöflur innúðaduft sh-töflur sh-hylki sh-töflur LyfjaformHeiti lyfs Lægst af norðurlöndunum 5 Hæst af norðurlöndunum 5 6 1 3 12 22 2 3 8 2 13 Þak á álagningu » Ef lyf kostar meira en 12 þús- und er heimilt að leggja á það allt að 2.028 krónur. » Ef lyfið kostar lyfsalann hundrað þúsund krónur í inn- kaupi er álagningin því um 2%. » Lyfsali verður að eiga lyfið á lager ef læknir á svæðinu ávísar umræddu lyfi eða útvega það eins fljótt og hægt er. Um þetta eru ákvæði í lyfjalögunum. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 Fjórir menn sem grunaðir eru um að hafa rekið spilavíti í Reykjavík hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. desember næstkomandi. Um er að ræða þrjá karla og eina konu, öll á fer- tugsaldri. Átta menn voru handteknir á þriðjudagskvöld þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst til atlögu í ólöglegu spilavíti í Skeifunni. Hald var lagt á fjármuni og búnað sem tengist starfseminni. Fjórum var sleppt að loknum yfirheyrslum. Að sögn Friðriks Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildra lög- reglu, miðar rannsókninni vel áfram, en hún sé þó tímafrek. Fara þurfi í gegnum bókhaldsgögn og fleira. Ríflega tugur lögreglumanna tók þátt í aðgerðinni. Mál sem þessi koma reglulega upp að sögn Frið- riks. Nú síðast í október gerði lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu hús- leit á veitingastað í austurborginni og var honum lokað í framhaldi vegna gruns um að þar færi fram fjárhættuspil. Fjórir í gæslu- varðhald  Átta menn hand- teknir í spilavíti Samkvæmt nýsamþykktri fjár- hagsáætlun Hvalfjarðarsveitar er gert ráð fyrir að sveitarsjóður verði rekinn með tæplega 54 millj- óna afgangi á næsta ári. Álagning- arhlutfall útsvars og fast- eignaskatts verður óbreytt á næsta ári. Stærsta framkvæmdin á næsta ári í sveitarfélaginu er vegna leikskólans, en gert er ráð fyrir viðhaldi og framkvæmdum við viðhald fasteigna sveitarfé- lagsins að upphæð um 25,6 millj- ónir. Á árinu 2013 er fyrirhugað að hefja framkvæmdir við ljósleið- aravæðingu sveitarfélagsins og eru áætlaðar 130 milljónir til verkefnisins. Þá er gert ráð fyrir að leggja hitaveitu á köldum svæðum í sveitarfélaginu, en áætl- unin gerir ráð fyrir 15 milljónum króna til verkefnisins. Gert er ráð fyrir að áfram verði unnið að vatnsöflun og uppbyggingu Vatns- veitu Hvalfjarðarsveitar. Fjármögnun framkvæmda er að mestu leyti á árinu 2013 af sölu eigna og úr eigin sjóðum. Gert er ráð fyrir lántöku á árinu 2014 upp á 180 milljónir króna. Rekinn með afgangi 2013 SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR. FRÁ REDKEN. Finndu það sem hentar þínu hári. Takmarkað magn, tilboð á meðan birgðir endast. BEAUTY BAR FAGFÓLK HJÁ DÚDDA HÖFUÐLAUSNIR KÚLTÚRA MEDULLA MENSÝ N-HÁRSTOFA PAPILLA SALON REYKJAVÍK SALON VEH SCALA Dreifing: HÁR EHF s. 568 8305 har@har.is REDKEN Iceland á SÖLUSTAÐIR REDKEN FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST. SENTERKeyptu 2 Redken vörur + færð 1 Redken vöru frítt Verð 14.100 - jólaverð 9.800 Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu var í gærdag kölluð að íbúðarhúsi í Norðlinga- holti í Reykja- vík, en þar hafði heita- vatnspottur horfið af lóðinni. Málið er í rannsókn. Nokkuð var um þjófnað og hnupl á höfuðborgarsvæðinu í gær. Lögregl- an var kölluð í verslun við Skútuvog vegna hnupls og einnig í verslun í Spönginni vegna hnupls. Þá var brotist inn í heimahús í Hafnarfirði og verðmætum stolið. Heitavatns- potti stolið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.