Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samtökin Hugarafl færðu öllum alþingismönnum jóla-
gjöf í gær. Gjöfin er tvíþætt, annars vegar bókin Geð-
veikar batasögur 2 og heimildarmyndin Hallgrímur,
maður eins og ég. Samtökin minntu alþingismenn líka
á að passa vel upp á geðheilsuna í öllu annríkinu. Hér
sést Katrín Jakobsdóttir ráðherra taka við gjöfinni.
Hugarafl færði þingmönnum jólagjöf
Landbrot við bakka Lagarfljóts og
Jökulsár í Fljótsdal var lítilsháttar
eða ekkert á um 161 km af árbökk-
unum, talsvert landbrot var á 36,5
km og mikið landbrot var á um 14
km. Gerð var úttekt á alls 211,5 km
löngum árbökkum frá Fljótsdalsstöð
og allt til sjávar en þar á milli eru um
100 km.
Starfsmenn Landgræðslu ríkisins
gerði úttektina á ástandi lands við
árbakkana og skoðuðu bakkagerð,
hæð árbakka, halla og lögðu mat á
landbrot. Verkefnið var unnið að til-
hlutan Landsvirkjunar. Skýrsluna
má lesa á vef Landgræðslunnar
(www.land.is).
Í inngangi hennar kemur m.a.
fram að markmið verkefnisins hafi
verið að fá heildaryfirlit yfir stöðu
landbrots við árnar. Einnig að fá mat
á því hvar hætta sé á landbroti og
hve mikil hún er. Ekkert kerfi var til
hér á landi til þess að meta slíkt og
því hönnuðu starfsmenn Land-
græðslunnar flokkunarkerfi til að
meta landbrotið. Gert var sjónmat á
árbökkunum og matið kortlagt.
Þá segir þar að rof við bakka sé
náttúrulegur hluti áa. Menn geti þó
haft áhrif á náttúruleg ferli með at-
höfnum sínum. Breyting hafi orðið á
vatnsrennsli Jökulsár í Fljótsdals og
Lagarfljóts vegna virkjunar við
Kárahnjúka og tilkomu Hálslóns.
gudni@mbl.is
Mikið landbrot var við
árbakka á 14 km kafla
Kannað var landbrot við Lagarfljót og Jökulsá í Fljótsdal
Morgunblaðið/Steinunn
Lagarfljót Breyting varð á rennsli
fljótsins með Kárahnjúkavirkjun.
Bjóða á um 3.700 atvinnuleitendum
vinnu eða starfsendurhæfingu á
næsta ári skv. samstarfsyfirlýsingu
stjórnvalda, Vinnumálastofnunar,
sveitarfélaga, samtaka á vinnumark-
aði o.fl. sem undirrituð var í gær.
Með þessu átaksverkefni, sem nefnt
hefur verið „Vinna og virkni 2013“, á
að tryggja að enginn falli af atvinnu-
leysisbótum án þess að fá slíkt tilboð.
Um er að ræða átaksverkefni sem,
eins og greint hefur verið frá í Morg-
unblaðinu, hefur að markmiði að
virkja atvinnuleitendur, sem hafa
fullnýtt eða munu að óbreyttu full-
nýta bótarétt sinn.
Talið hefur verið að kostnaður við
verkefnið verði um 2,7 milljarðar
króna og er áætlað er að 60% taki til-
boði um vinnu. Því þurfa alls 2.200
sex mánaða störf að vera í boði 2013.
Velferðarráðherra hefur einnig
lagt fram frumvarp á Alþingi um
breytingar á lögum um atvinnuleys-
istryggingar vegna þessa verkefnis
og jafnframt um breytingar sem
gerðar verða á greiðslum atvinnu-
leysistryggingasjóðs vegna fisk-
vinnslufólks þegar vinnsla stöðvast
vegna hráefnisskorts. Þær greiðslur
verða þó ekki að fullu felldar niður,
eins og gert hafði verið ráð fyrir þeg-
ar fjárlagafrumvarp næsta árs var
lagt fram og er nú áætlað að sparn-
aður ríkissjóðs vegna þess verði 160
milljónir kr. á árinu 2013 í stað 350
milljóna, sem upphaflega var ráð-
gert.
Með átaksverkefninu Vinna og
virkni 2013 er gert ráð fyrir að al-
mennur vinnumarkaður bjóði fram
60% þeirra úrræða sem stefnt er að
eða 1.320 úrræði, sveitarfélög 30%
eða 660 úrræði og loks ríkið 220 úr-
ræði eða 10%. Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður greiðir styrk með við-
komandi atvinnuleitendum og mun
hann nema 80-100% af atvinnuleys-
isbótum ásamt mótframlagi vegna
úrræða sem verða til í desember
2012 og á árinu 2013.
Þá á að bjóða upp á úrræði fyrir
um 900 einstaklinga sem áætlað er
að þurfi á atvinnutengdri endurhæf-
ingu að halda. omfr@mbl.is
Boða átak fyrir
3.700 atvinnu-
leitendur
Breytingar á at-
vinnuleysiskerfinu
í nýju frumvarpi
Morgunblaðið/Golli
Atvinnuleysi Sveitarfélögin eiga á
næsta ári að útvega 660 vinnumark-
aðsúrræði, ríkið 220 og almenni
vinnumarkaðurinn 1.320.
Lagt er til í frumvarpi velferðar-
ráðherra um breytingar á at-
vinnuleysistryggingalögunum
að aldurslágmark til greiðslu at-
vinnuleysisbóta verði hækkað
úr 16 árum í 18 ár. Eru færð þau
rök fyrir þessu að börn undir 18
ára aldri teljast vera á framfæri
foreldra sinna. Áfram er þó gert
ráð fyrir að ávinnslutímabil skv.
lögunum geti hafist við 16. af-
mælisdag barna. Fram kemur að
sex atvinnuleitendur yngri en 18
ára voru innan atvinnuleysis-
tryggingakerfisins í október sl. Í
frumvarpinu er einnig boðuð
lenging á biðtíma eftir bótum ef
avinnuleitandi, sem hefur feng-
ið atvinnuleysisbætur greiddar í
30 mánuði eða lengur hafnar
starfi eða þátttöku í vinnumark-
aðsúrræðum. Þá missir hann
rétt til bóta og fær hann ekki á
ný fyrr en eftir 24 mánaða starf
á vinnumarkaði frá því hann
fékk síðast greiddar bætur í
stað tveggja mánaða biðtíma
áður.
Fái bætur 18
ára í stað 16
BREYTINGAR Í FRUMVARPI
Svarið við spurningu dagsins
tilbúnar í pottinn heima
Verð 1.600 kr/ltr
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út á milli súpudiska
Aðalfundur Valsmanna hf.
Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn
fimmtudaginn 27. desember n.k kl. 17:00 að Hlíðarenda
Dagskrá aðalfundar eru venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins og
lögum um hlutafélög nr. 2/1995.
1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs
2. Ársreikningur félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu lagður fram til stað-
festingar.
3. Ákvörðun um hvernig fara eigi með tap eða hagnað ársins.
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
5. Kjör stjórnar
6. Kjör endurskoðanda
7. Önnur mál – Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
a. Tillaga um að allt hlutafé félagsins verði í einum hlutaflokk, sem um
gildi reglur núverandi A f lokks
b. Tillaga um breytingar á fjölda stjórnarmanna
c. Tillaga um framlengingu á heimild stjórnar félagsins til hækkunar
hlutafjár þess til 1. desember 2017
d. Tillaga um forkaupsrétt stjórnar félagsins að fölum hlutum í félaginu
fyrir þess hönd
Fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins til sýnis fyrir hluthafa fram að fundinum.