Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 20

Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 20
VIÐTAL Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Það skiptir miklu máli að sýna fram á að það sé eitthvert vit í því sem maður er að gera. Þetta er mikilvægt fyrir okkur því við ætlum að gera þetta að lifibrauði okkar,“ segir Þorleifur Sigfússon dýralæknir, sem á dögunum varð ræktunarmaður Íslandshesta í Svíþjóð árið 2012. Þorleifur rækt- ar hross þar í landi undir rækt- unarnafninu Gunvarbyns Islands- hästar. „Það eru auðvitað margir að sýsla með Íslandshesta í Svíþjóð og því er gaman að því að vinna þetta. Það skiptir að minnsta kosti heilmiklu máli fyrir mig,“ segir Þorleifur. Sænsku Íslandshestasamtökin veita verðlaunin og þetta var í fyrsta skipti sem Þorleifur hlaut þau, en tveir aðrir Íslendingar hafa áður hlotið þau: Garðar Gíslason í fyrra og árið 2008 en hann varð annar í ár. Sveinn Bergmann Hauksson fékk verð- launin árið 2003, fyrstur Íslend- inga. Fimm af átta hlutu fyrstu verðlaun „Ég er búinn að sýna átta hross [í ár], sem er nú nokkuð gott held ég á sænskan mæli- kvarða. Fimm hlutu 1. verðlaun. Það sem er sniðugt í þessu er að ég er ekki með svo svakalega stórt stóð. Ég fæ um sex folöld á ári,“ segir Þorleifur og bætir við: „Við höfum verið með gamlan graðhest að heiman, Nökkva frá Vestra-Geldingaholti, Angason frá Laugarvatni og undan Hrafn- hettu, undan Hrafni frá Holts- múla. Hún er heimaræktuð frá pabba og mömmu. Nökkvi er fað- ir sjö þessara mera. Þetta voru bara merar sem ég sýndi og fimm af þeim fengu 1. verðlaun. Svo er hann móðurafi þeirrar áttundu. Svo það er gaman að því.“ Þorleifur segist hafa byrjað að rækta hross fyrir hálfgerða til- viljun fyrir tíu árum. „Pabbi og mamma ákváðu að selja Nökkva en vildu helst ekki selja hann út úr fjölskyldunni svo það varð úr að ég keypti hann. Þar með átti ég graðhest en ekki merar. Ég sá að ég var með góðan graðhest, en umdeildan eins og algengt er og því var hann ekki mikið notaður. Ég náði mér í góðar merar og fékk fimm og sex folöld á ári úr eigin merum, sem ég keypti ódýrt, meðal annars Hrafns- dóttur og lánsmerum. Svo fékk ég eina í gjöf frá foreldrum mín- um undan Mána frá Ketils- stöðum. Ég á orðið tólf alsystkini undan Nökkva og henni,“ segir Þorleifur. Af þeim eru fimm sýnd og fjögur hlutu 1. verðlaun. „Hann er hér úti í hesthúsi og ætlar að verða heiðursverðlauna- hestur á næsta ári. Hann er með 45 fulldæmd afkvæmi og ennþá með 120 í PLUB [kynbótamati]. Svo við þurfum bara að sýna fimm í viðbót og þá hljótum við heiðursverðlaun,“ segir hann og bætir við: „Ég á þau sjálfur. Ef allt fer að óskum þá ætti það að lukkast.“ Af góðum íslenskum ættum Þorleifur segir að flestar hryssurnar hans séu með lágt kynbótamat en þær séu af góðum íslenskum ættum og gefi, ásamt Nökkva, góðan grunn til rækt- unar. „Ég fékk lánaða hryssu fyrir nokkrum árum undan Stíg frá Kjartansstöðum, Von frá Vigra, sem varð heimsmeistari í fyrra. Við ræktuðum hana,“ segir Þor- leifur. Hann segir næsta ár verða spennandi. „Það er ekki þannig að maður setjist í helgan stein af því að maður átti heimsmeistara í fyrra og er ræktunarmaður í ár. Þetta gefur manni vítamín- sprautu og nú vill maður meira. Maður selur afburðagóða hesta og þá fer að verða smá arður af þessu líka.“ Fjölskylda og vinir eiga sitt Þorleifur segir að árangurinn sé ekki einungis hans verk. „Fjöl- skyldan er með í gegnum súrt og sætt í að ala upp þessa hesta, konan mín og börnin. Grunnurinn er að heiman úr foreldrahúsum og síðan höfum við frábæra samstarfsaðila í Dan- mörku sem þjálfa og sýna fyrir okkur, Agnar og Anne Stine. Svona hópvinna skilar árangri, en grunnurinn er að hestarnir eru góðir. Síðan er ég mjög þakklátur öll- um í kringum mig sem eru með í þessu og bróðir minn kom mér á sporið þegar hann sýndi fyrstu merarnar fyrir mig. Þetta er ekki egótripp, þetta er hópvinna,“ seg- ir Þorleifur að lokum. „Þetta gefur manni vítamínsprautu“  Íslendingur er ræktunarmaður ársins í Svíþjóð 2012  Byrjaði að rækta hross fyrir tíu árum  Fimm af átta hryssum úr eigin ræktun í 1. verðlaun í ár  Fær heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á næsta ári Heiðurshross Þorleifur og Nökkvi frá Vestra-Geldingaholti þegar Nökkvi fékk verðlaunin Elitpremie á sænska meistaramótinu. Alsystur Þorleifur með fimm systur til reiðar undan Dimmu og Nökkva. Fjórar þeirra, Nótt, Drottning, Fáséð og Lipurtá eru í fyrstu verðlaunum en sú fimmta, Hugmynd, fjórgangshryssa með 7,81. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 Sænska félagið á Íslandi stendur að venju fyrir Lúsíuhátíð 13. desember með tónleikum í Seltjarnarneskirkju í kvöld kl. 18.30. Lúsíuhátíð náði fótfestu á Norð- urlöndum, fyrst í Värmland í Svíþjóð á 18. öld, en breiddist síðan út um alla Svíþjóð og víðar á Norður- löndum. Heilög Lúsía á hins vegar uppruna sinn í borginni Syracusa á Sikiley, Sænska félagið á Íslandi hef- ur frá stofnun 1954 haldið Lús- íuhátíð innan sinna raða en frá 1991 hafa verið haldnir tónleikar í tilefni hátíðarinnar þar sem Lúsía, prýdd kórónu með kertum, fer fremst í flokki kórs hvítklæddra meyja, jóla- sveina og piparkökukarla sem bera birtu í skammdegið. Miðaverð er 2.500 krónur en frítt er á tónleikana fyrir börn yngri en tólf ára. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lúsía Lúsíuhátíð verður í kvöld. Lúsíuhátíð í Seltjarnarneskirkju Piotr Rom- anowski, pró- fessor við enskudeild Krosno- háskólans í Póllandi, flytur fyrirlestur á vegum Stofn- unar Vigdísar Finnbogadótt- ur í erlendum tungumálum á morgun, fimmtu- daginn 13. desember, kl. 16 í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla Ís- lands. Fyrirlesturinn ber yfirskrift- ina: Intercultural Approach in Foreign Language Teaching og fer fram á ensku. Allir eru vel- komnir. Pólskur prófessor með fyrirlestur Prófessor Piotr Romanowski. Fjórar Kristínar lesa upp úr ný- útkomnum verkum sínum í kvöld í húsnæði Femínistafélags Ís- lands, Hallveigarstöðum við Tún- götu. Lesturinn hefst klukkan 20. Þessar lesa úr verkum sínum: Kristín Eiríksdóttir: Hvítfeld - fjölskyldusaga, Kristín Ómars- dóttir: Milla, Kristín Steinsdóttir: Bjarna-Dísa og Kristín Tóm- asdóttir: Stelpur geta allt. Fjórar Kristínar lesa úr bókum sínum STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.