Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Nýlega voru um 30 tonn af viði úr
Vaglaskógi í Fnjóskadal flutt suður
á Grundartanga til járnblendiverk-
smiðju Elkem. Trjábolirnir frá
Skógrækt ríkisins eru kurlaðir en
kurlið síðan notað sem kolefnisgjafi
fyrir ofna verksmiðjunnar og kemur
í stað jarðefnaeldsneytis.
Á vef Skógræktarinnar kemur
fram að flutningarnir, lestun og af-
lestun hafi gengið mjög vel. Fluttir
voru um 70 rúmmetrar staflað og 40
rúmmetrar fast. Stærstur hluti við-
arins sem var fluttur var stafafura
en einnig var eitthvað af lerki og
rauðgreni.
Skógrækt ríkisins og Elkem
gerðu samning árið 2009 um að
kurla niður alls um 1.000 tonn af
grisjunarviði úr íslenskum skógum í
tilraunaverkefni þar sem ferskt við-
arkurl er notað sem kolefnisgjafi í
stað jarðefnaeldsneytis á Grund-
artanga. Einar Þorsteinsson, for-
stjóri Elkem á Íslandi, segir þetta
tilraunaverkefni hafa gengið mjög
vel og fljótlega hafi þessi 1.000 tonn
verið kláruð. Verksmiðjan notar að
mestu innflutt kurl frá Kanada sem
kolefnisgjafa í stað kola. Alls eru 10-
15 þúsund tonn notuð á ári, þannig
að íslenska skógarkurlið er bara lítið
brot af því.
Flutningurinn úr Vaglaskógi
tengist rammasamkomulagi sem
gert var við Skógræktina, í fram-
haldi af tilraunaverkefninu. „Þetta
hefur gefist mjög vel og við gerðum
samkomulag um að taka það kurl
sem hentar þeim hverju sinni. En
framboðið hér á landi er ekki nóg til
að anna okkar eftirspurn á kurlinu,“
segir Einar.
Auk Skógræktar ríkisins stóðu
Landssamtök skógareigenda, Skóg-
ræktarfélag Íslands og skógræktar-
félögin í nágrenni verksmiðjunnar
að samningsgerðinni. Þótti samning-
urinn marka tímamót í íslenskri
skógrækt, þar sem staðfest var að
íslenskir skógar væru arðsöm auð-
lind og sköpuðu ný störf við grisjun,
fllutning og úrvinnslu viðarins.
30 tonn af viði úr Vagla-
skógi til Grundartanga
Ljósmynd/Skógrækt ríkisins
Viður Trjábolirnir úr Vaglaskógi settir á flutningabíl, sem flutti þá suður.
Trén kurluð niður og notuð í ofna verksmiðju Elkem
Grundartangi
» Járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga hefur frá árinu
2003 að fullu verið í eigu El-
kem í Noregi.
» Verksmiðjan hóf starfsemi
árið 1979 og hét þá Íslenska
járnblendifélagið. Ríkið var
meðeigandi fyrstu árin, ásamt
japönsku fyrirtæki um tíma.
Af þeim sem tóku afstöðu í könnun
MMR sögðust 43% vera frekar eða
mjög ánægð með niðurstöður þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar í október um
tillögur stjórnlagaráðs.
29,9% sögðust vera frekar eða
mjög óánægð og 27,1% hvorki
ánægð né óánægð.
Alls svöruðu 879 og hlutfall þeirra
sem tóku afstöðu til spurningarinnar
var 79,9%.
Af þeim sem tóku afstöðu voru
74,5% þeirra sem sögðust styðja rík-
isstjórnina ánægð með niðurstöð-
urnar borið saman við 24,9% þeirra
sem sögðust ekki styðja ríkisstjórn-
ina. Ánægja með niðurstöðurnar var
hlutfallslega minnst meðal þeirra
sem sögðust styðja Framsóknar-
flokkinn (16,8%) og Sjálfstæðisflokk-
inn (12,6%). Ánægja með niðurstöð-
urnar var hlutfallslega mest á meðal
þeirra sem sögðust styðja Samfylk-
inguna (85,%), Dögun (75,8%) og
Vinstri græna (73,2%).
Þá jókst ánægja með niðurstöð-
urnar með hækkandi aldri. Einnig
voru íbúar á höfuðborgarsvæðinu
ánægðari en íbúar landsbyggðarinn-
ar með niðurstöðurnar.
43% ánægð með niður-
stöður atkvæðagreiðslu
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir og
Þórður Björn Sigurðsson hafa
ákveðið að gefa kost á sér í framboð
fyrir Dögun fyrir næstu alþingis-
kosningar.
Fram kemur í tilkynningu frá
Dögun að Þórður Björn hafi um
langa hríð barist fyrir almanna-
hagsmunum og verið ötull tals-
maður lýðræðisumbóta, gegnsæis,
valddreifingar, ábyrgrar fjármála-
stefnu og velferðarmála, meðal
annars sem varabæjarfulltrúi Íbúa-
hreyfingarinnar í Mosfellsbæ og
sem starfsmaður þinghóps Hreyf-
ingarinnar. Þórður var einn stofn-
enda og formaður Hagsmuna-
samtaka heimilanna.
Andrea hefur starfað í stjórn
Hagsmunasamtaka heimilanna frá
upphafi og var formaður þeirra á
síðasta starfsári. Í tilkynningunni
segir, að Andrea hafi barist fyrir
leiðréttingu á lánamálum lands-
manna og afnámi verðtryggingar
um árabil. Hún bauð sig fram í emb-
ætti forseta Íslands í sumar. Andr-
ea starfaði áður sem verkefnastjóri
á frístundaheimili hjá Reykjavíkur-
borg og hefur sinnt ýmsum sam-
félagsmálum í sjálfboðavinnu.
Í tilkynningunni segir, að Andrea
og Þórður muni taka áherslur um
kjarabætur og lýðræðisumbætur
fyrir fólkið með sér inn á Alþingi,
fái þau umboð til. Það sé í anda bar-
áttunnar sem þau hafa leitt undan-
farin ár.
Gefa kost á sér í framboð fyrir Dögun
Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir
Þórður Björn
Sigurðsson
2012
Lifandi tónlist og stemning fram eftir kvöldi.
Jólabærinn á Ingólfstorgi verður formlega opnaður á morgun,
föstudaginn 14. desember, kl. 15:30.
Jón Gnarr, borgarstjóri, opnar Jólabæinn
og nýtur atfylgis jólavætta, lúðrasveitar,
kórs og hljómsveitar!
Verum, verslum og njótum
— þar sem jólahjartað slær.
www.midborgin.is Bra
nd
en
bu
rg
Jólaopnun miðborgar hefst í dag!
Opið til kl. 22:00 öll kvöld til jóla
og til 23:00 á Þorláksmessu.