Morgunblaðið - 13.12.2012, Side 24
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Talið er að stjórnvöld í Norður-Kór-
eu stefni að því að þróa langdræga
eldflaug sem gæti borið kjarnavopn
og hægt væri að skjóta á vestur-
strönd Bandaríkjanna. Líkurnar á
að Norður-Kóreumenn nái þessu
markmiði eru taldar hafa aukist til
muna þegar þeim tókst að skjóta
langdrægri eldflaug í geiminn í gær.
Sérfræðingar í öryggismálum
segja að Norður-Kóreumenn eigi
enn eftir að leysa ýmis erfið tæknileg
vandamál áður en þeir geti búið til
kjarnaodda sem séu nógu litlir til að
hægt verði að koma þeim fyrir í lang-
drægum eldflaugum. Þótt þeim hafi
tekist að koma eldflaug á braut um
jörðu sé ólíklegt að eldflaugatækni
þeirra sé orðin nógu nákvæm til að
þeir geti skotið eldflaug á fjarlægt
skotmark, til að mynda á vestur-
strönd Bandaríkjanna.
Geimskotið í gær er þó talið stórt
skref í þessa átt og sýna að taka
þurfi hættuna sem stafi af kjarn-
orku- og eldflaugaáætlunum
Norður-Kóreu alvarlega.
Talið er að Norður-Kóreumenn
eigi sex til átta kjarnorkusprengjur
með plútoni og séu að vinna að
sprengju með úrani. Þeir hafa
sprengt tvær kjarnorkusprengjur í
tilraunaskyni, fyrst 2006 og síðan
aftur þremur árum síðar. Frétta-
skýrendur Financial Times segja að
óttast sé að Norður-Kóreumenn
þurfi aðeins eina kjarnorkutilraun í
viðbót til að geta búið til kjarnaodd í
langdræga eldflaug.
Ógna ekki aðeins grannríkjum
Norður-Kóreumenn fullyrtu í
október að þeir réðu yfir eldflaug
sem hægt væri að skjóta á Bandarík-
in en margir fréttaskýrendur tóku
lítið mark á þeirri fullyrðingu.
James Schoff, bandarískur sér-
fræðingur í varnarmálum, segir að
geimskotið sýni að taka þurfi hætt-
una alvarlega. „Þetta geimskot eyk-
ur vissulega trúverðugleika þeirra
þegar þeir segjast eiga eldflaugar
sem hægt væri að skjóta á Bandarík-
in. Það er erfiðara að banda þessu
frá sér eftir vel heppnaða tilraun
eins og þessa,“ hefur fréttaveitan
AFP eftir Schoff.
Masao Okonogi, sérfræðingur í
stjórnmálum Kóreuríkjanna, tekur í
sama streng og segir að Bandaríkja-
stjórn þurfi að taka hættuna mjög al-
varlega. „Þetta sýnir að Norður--
Kórea ógnar ekki aðeins
grannríkjunum, heldur stafar
Bandaríkjunum einnig hernaðarleg
ógn af landinu.“
Ógnin sem stafar af N-Kóreu eykst
AFP
Reiðir út í Kim Suður-Kóreumenn mótmæla geimskoti Norður-Kóreumanna í Seoul. Mótmælendurnir héldu á
myndum af Kim Jong-Un, leiðtoga kommúnistastjórnarinnar í N-Kóreu, og brenndu eftirlíkingar hans.
Geimskot Norður-Kóreumanna talið stórt skref í þá átt að þróa langdræga eldflaug sem gæti borið
kjarnavopn og hægt væri að skjóta á Bandaríkin Eiga þó enn eftir að leysa erfið tæknileg vandamál
Hefðu getað bundið
enda á hungursneyðina
» Talið er að Norður-
Kóreumenn hafi eytt sem svar-
ar alls 168 milljörðum króna í
eldflaugaáætlun sína í ár, að
því er fram kemur í nýlegri
skýrslu Suður-Kóreustjórnar.
» Suðurkóreskir embættis-
menn segja að fyrir þessa fjár-
hæð hefðu Norður-Kóreumenn
getað keypt 4,6 milljónir tonna
af korni og bundið þar með
enda á matvælaskortinn í land-
inu. Norður-Kóreumenn hefðu
ekki þurft að hafa áhyggjur af
matarskorti næstu fjögur til
fimm árin.
» Tæp milljón manna hefur
dáið úr hungri í Norður-Kóreu
frá síðasta áratug aldarinnar
sem leið og milljónir manna
þjást enn af vannæringu vegna
viðvarandi matvælaskorts í
landinu.
Flaugin kom gervihnettinum Kwangmyongsong-3 á braut um jörðu
að sögn fjölmiðla í Norður-Kóreu
Bandaríska eldflaugavarnakerfið
NORAD staðfesti að flaugin
hefði komist á braut um jörðu
TAÍVAN
FILIPPSEYJARKÍNA
JAPAN
NORÐUR-
KÓREA Okinawa(Japan)
Heimild: Alþjóðasiglingamálastofnunin/Geimferðastofnun N-Kóreu/varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu/varnarmálaráðuneyti Japans/NORAD
SUÐUR-KÓREA
N-KÓREUMENN SKJÓTA ELDFLAUG Í GEIMINN
Leiðtogar margra ríkja fordæmdu geimskotið og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
var kallað saman vegna málsins
1. þrep
2. þrep
3. þrep
Hæð:
30 m
N-KÓREA
S-KÓREA
KÍNA
TAÍVAN
JAPAN
Annað
þrep
FILIPPSEYJAR
Fyrsta
þrep
féll í sjóinn
Gervi-
hnattahlíf
Skotstöð fyrir langdrægar
eldflaugar
*að staðartíma
Áætluð braut
500 km
Pjongjang
Peking
Seoul
Tókýó
Okinawa
Ishigaki
Manila
Skotið á loft kl. 9:51
f.h.*
í gær
10:01 f.h.*
Unha-3:
(Vetrarbraut 3)
Drægi flaugar:
6.700 km
Byggist á
hönnun
Taepodong-2
eldflauga
Reynt var
að skjóta
sams konar
flaug í
geiminn
í apríl en
geimskotið
mistókst
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Fender kassagít
arpakki
Rafpíanó
Hljóðkort m
eð
Kassagítar
ar
Tilboðsver
ð
Rafgítarpakki 4
9.990
26.990
frá 105.99
0
hugbúnaði frá
18.990
frá 18.99
0
á trommuset
tum
Rafbassapakki
59.990
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is