Morgunblaðið - 13.12.2012, Qupperneq 25
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Hong Kong. AFP. | Þúsundir para gengu í hjónaband í
Asíulöndum í gær í von um að dagsetningin 12/12/12
myndi færa þeim farsæld og eilífa hjónabandssælu.
Yfirvöld í Hong Kong sögðu að 696 pör hefðu staðfest
ráð sitt þar þennan dag, fjórum sinnum fleiri en að
meðaltali á öðrum dögum. Um 540 pör gengu í hjóna-
band í Singapúr, um átta sinnum fleiri en á meðaldegi.
Biðraðir mynduðust einnig við hjónavígsluskrifstof-
ur í borgum á meginlandi Kína, að sögn kínversku
fréttastofunnar Xinhua. Hún segir eina af ástæðunum
þá að dagsetningin 12/12/12 hljómi eins og „mun elska/
mun elska/mun elska“ á kínversku.
Einn brúðgumanna í Hong Kong kvaðst hafa pantað
hjónavígsluna fyrir sex mánuðum til að vera öruggur
um að geta gift sig þennan dag. „Þetta er síðasti dagur
aldarinnar með sömu stafina í dagsetningunni, þannig
að þetta er mjög sérstakt,“ sagði hann.
Enn fleiri pör giftust í mörgum Asíuríkjum 11. nóv-
ember 2011. Í Hong Kong gengu 1.002 pör í hjónabönd
11/11/11, enda á talan að tákna „eilífa ást“. 859 pör
staðfestu ráð sitt í Hong Kong 10. október 2010, eða 10/
10/10, en sú tala á að tákna „fullkomnun“.
Á myndinni er par sem var gefið saman á hjóna-
vígsluskrifstofu í Singapúr.
AFP
Þúsundir gengu í hjónaband 12/12/12
M
bl
13
87
42
5
Glæsilegar jólagjafir Undirföt • NáttfötNáttkjólar • Sloppar
Bláu húsin v/Faxafen - Suðurlandsbraut 50 - Sími 553 7355 - www.selena.is
Opið alla daga til jóla: mán. til lau. opið kl. 11-18, sun. opið kl. 13-18 - Póstsendum - Nýtt kortatímabil
Njótum aðventunnar saman
Allt til
sundiðkunar !
Sundfatnaður, sundfit,
sundhettur, sundgleraugu,
korka, kúta.
Einnig sundbuxur og
leikföng fyrir yngri börnin.
Neoprene sundhettur,
hanska og sokka fyrir
sjósundfólk
Bæjarlind 1-3 - 201 Kópavogur - s: 5640035
aquasport@aquasport.is - www.aquasport.is