Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Spænska lögreglan hefur hand-
tekið konu sem reyndi að smygla
rúmu kílói af kókaíni í brjósta-
fyllingum, að sögn yfirvalda á
Spáni í gær. Konan er frá Pan-
ama og var handtekin á alþjóða-
flugvellinum í Barcelona eftir að
hún kom þangað með flugvél frá
Kólumbíu, að sögn spænsku ríkis-
lögreglunnar.
Tollverðir yfirheyrðu konuna
við venjulegt eftirlit á flugvell-
inum. Þegar þeir leituðu á henni
fundu þeir blóðugar umbúðir á
sárum sem voru undir báðum
brjóstum hennar. Konan var flutt
á sjúkrahús og læknar fjarlægðu
brjóstafyllingarnar. Í ljós kom að
í þeim voru 1,3 kíló af kókaíni, að
sögn lögreglunnar.
SPÁNN
Kona handtekin fyrir að reyna
að smygla kókaíni í brjóstafyllingum
Sænsk stjórnvöld ætla að leggja allt í
sölurnar til þess að verja sérlausn
sem Svíar fengu þegar þeir gengu í
Evrópusambandið fyrir tæpum
tveimur áratugum og heimilar þeim
að framleiða og selja sænskt munn-
tóbak, svonefnt snus, á innanlands-
markaði. Hins vegar er tóbakið
bannað í öðrum ríkjum sambands-
ins.
Svíar lögðu mikla áherslu á sér-
lausnina vegna munntóbaksins á sín-
um tíma þegar þeir sömdu um inn-
göngu í Evrópusambandið en nú
óttast þeir að nýjar reglur innan
sambandsins á sviði heilbrigðismála
muni þýða að ekki verði lengur hægt
að framleiða tóbakið og sérlausnin
þannig gerð að engu.
Því hefur verið haldið fram í
sænskum fjölmiðlum að til að mynda
verði gerð krafa um að allar tóbaks-
vörur sem framleiddar og seldar séu
innan Evrópusambandsins innihaldi
að minnsta kosti 85% tóbak en
sænska munntóbakið inniheldur að-
eins 50%.
Viðskiptaráðherra Svíþjóðar,
Ewa Björling, ræddi við Tonio Borg,
heilbrigðismálastjóra Evrópusam-
bandsins, í fyrradag og sagði eftir
fundinn að allt yrði reynt til þess að
verja munntóbakið. Björling sagði
að Borg hefði hins vegar neitað því
að gera ætti kröfu um 85% hlutfall
tóbaks í tóbaksvörum.
SVÍÞJÓÐ
Óttast um sænska munntóbakið
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar
100% made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Opi
ð
alla s
unnu
daga
fram
að jó
lum
frá 1
3-16