Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Virðing Al-þingis erlágreist um þessar mundir. Um það er hvorki efast né deilt. En hins vegar bítast menn um af hverju virðing- arleysið stafar. Sú staða minnir á til- vitnun í leikrit Holbergs um Jeppa á Fjalli. Jeppi var ekki með mótbárur gegn sögum um að hann væri ekki alveg laus við að vera veikur fyrir víni. En óþarft væri að fjasa ein- göngu um að Jeppi drykki. Stóra spurningin væri: Af hverju drekkur Jeppi? Nú er rétt að taka fram að leikritið um Jeppa naut bæði vinsælda og virðingar sem slíkt, öfugt við löggjaf- arþingið. En þó er spurt þar eftir forskrift Jeppa. Af hverju er ris þess svona lágt? Stjórnarflokkarnir og fréttastofa þeirra leitast við, með síendurteknum fullyrðingum, að koma því inn að það sé vegna svo- kallaðs „málþófs“ stjórn- arandstöðunnar. Það er ekki heil brú í þeirri kenn- ingu. Virðingarleysi Al- þingis var fyrir löngu kom- ið niður á núverandi stig áður en nokkurt málþóf kom til. Að auki hefur það fyrirbæri verið mun fyrirferðarminna þetta kjörtímabil en oftast endra nær. Ríkisstjórnarmeirihluti ræður mestu um upplit þingsins. Verkstjóri af hans hálfu er forsætisráð- herrann á hverjum tíma. Það er ekkert að því að rík- isstjórnarmeirihluti hafi ríkara frumkvæði og meiri atbeina að dagskrá þings- ins en þeir sem fara fyrir stjórnarandstöðunni. Sag- an sýnir að það eru mál stjórnar sem flest „fara í gegn“ að lokum, en mál stjórnarandstöðu fá í besta falli einhverja kynningu og sú kynning getur verið góð vísbending um hvað koma muni breytist valdahlutföll á þinginu við kosningar. En þar sem að jafnan stefnir í að mál stjórnarliðs verði ráðandi og eftir lög- festingu bindandi fyrir þjóðina, jafnvel íþyngjandi mjög, er þing- forseta beinlínis skylt að tryggja að stjórnarand- staðan hafi fulla aðkomu að af- greiðslu stjórn- arfrumvarpa. Stjórnarfrumvörp eru iðulega vikum og mánuðum saman í umræðu í þing- flokkum stjórnarliðsins og þar fer hin raunverulega efnisumræða fram af þess hálfu. En það gerist fyrir luktum dyrum, ofurþungi er lagður á að ágreiningur berist ekki út og almenn- ingur fær því ekkert að heyra um viðhorf þeirra þingmanna um kost og löst viðkomandi máls. Þegar málið kemur loks í þingsalinn þegir stjórnar- liðið þunnu hljóði. Það lítur svo á að sinni umræðu sé lokið í leynum og upplýsir ekki almenning um hvaða ásteytingarsteinar voru mest ræddir í hópnum og hvað var helst gagnrýnt. Þær upplýsingar þyrfti al- menningur að fá til að geta lagt raunsætt mat á mál sem hann verður bundinn af, jafnvel áratugum sam- an, nái þau fram að ganga. Við þessar aðstæður er fráleitt með öllu að reyna að takmarka umræður stjórnarandstöðu með því að koma með mál fram seint og um síðir, neita að taka þátt í málefnalegum umræðum við stjórnarand- stöðuna, með vísun til þess að klára verði þetta málið eða hitt fyrir þinglok. Slík framkoma er furðuleg og hlýtur að vekja tortryggni hjá fólkinu í landinu. Og það dregur ekki úr þeirri tortryggni að gefa stjórnarandstöðunni ein- göngu tækifæri til að ræða stórmál um miðja nótt, þar sem enginn er til andsvara og nánast enginn tekur þátt í umræðum af hálfu stjórnarliðsins. Mála- tilbúnaður af þessari gerð endurspeglar mikinn hroka gagnvart almenn- ingi, er andstæður for- sendum þess að lýðræði virki. Hann ýtir undir tor- tryggni og allt þetta verð- ur til þess að virðing Al- þingis endar í ræsinu. Og það er nákvæmlega sú staða sem er uppi núna. Upptalning „RÚV“ á hverjir tali í málþófi og að sleppa að nefna þá sem mæta ekki til umræðu er ómerkileg þjónkun} Af hverju svona aumt? S tuðningsmenn ríkisstjórnarinnar halda því fram að þjóðarinnar vegna sé brýnt að viðhalda núver- andi stjórnarsamstarfi. Samkvæmt þessu mætti ætla að ríkisstjórnin hefði af einhverjum afrekum að státa. En hvað hefur ríkisstjórnin helst fært þessari þjóð? Svarið er einfalt: Stöðugar skattahækkanir og álögur. Í þeim efnum verður ríkisstjórnin seint sökuð um aðgerðaleysi. Það er helst að sjá á henni kæti þegar hún uppgötvar nýja leið til skattpíningar. Þá finnst henni að hún standi al- gjörlega í stykkinu. „Við erum að leiðrétta mis- skiptingu og jafna kjörin,“ gala stjórnarliðar þá, og ætlast til þakklætis og endurkjörs. Of lengi hefur ríkisstjórnin komist upp með mál- flutning eins og þennan og fótgönguliðar henn- ar halda ótrauðir áfram að básúna boðskapinn um nauðsynlegt framhaldslíf ríkisstjórnarinnar. Og það er svosem ekki nema von að þeir haldi áfram að gala því þeir mæta engri verulegri mótstöðu. Halló, stjórnarandstaða, er ekki kominn tími til að vakna! Það er ekki nóg að einn þingmaður stjórnarand- stöðu, Guðlaugur Þór Þórðarson, haldi vöku sinni og beini óþægilegum spurningum til ráðherra ríkisstjórnarinnar um auknar álögur. Fleiri verða að gera slíkt hið sama. Það er sannarlega af nógu að taka. Það þarf ekki fund- vísan stjórnarandstæðing til að spyrja ráðherra ríkis- stjórnarinnar gagnrýnna spurninga. Það þarf einungis stjórnarandstæðing sem er vakandi. Endalausar verð- og skattahækkanir dynja á þessari þjóð. En stjórnvöld sem standa fyrir þessum hækkunum láta eins og þau séu að þjóna almenningi og setja þunga og dramatík í röddina þegar þau segjast hafa endurreist ís- lenskt þjóðfélag eftir hrun. Hver eru eiginlega afrek þessarar ríkis- stjórnar? Skattar hækka, matvara hækkar, þjónusta hækkar, lánin hækka. Ætlar al- menningur að viðurkenna og blessa þessar hækkanir allar með því að tölta á kjörstað og kjósa stjórnarflokkana á ný? Þetta er ríkis- stjórn sem stendur ekki við orð sín. Dramb hennar og yfirlæti endurspeglast í því að hún kallar sjálfa sig norræna velferðarstjórn. Sér er nú hver velferðin. Sjáið bara ástandið á Landspítalanum. Þar er starfsfólki boðið upp á gömul og úrelt tæki og vesæl kjör. Sjúkling- ar þurfa að liggja á göngum. Starfsfólkið er við að gefast upp. Sjúklingarnir geta hins vegar ekkert farið – nema enn lengra fram á gang. Er velferðarstjórnin stolt af þessu? Velferðarráðherrann mætir svo í hvert fjölmiðla- viðtalið á fætur öðru og lýsir yfir áhyggjum og lofar úr- bótum. Hann er í framboði til formennsku í stjórnmála- flokki. Ríkisstjórn á ekki að skattapína þegnana og ekki leggja á ofurgjöld. Hún á að vinna að því að létta almenningi lífið en ekki þyngja byrðarnar. Núverandi ríkisstjórn hefur staðið sig afleitlega og það á ekki að klappa hana upp. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Hvaða velferð? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is H ugmyndir um sam- starf Landsvirkjunar og Skógræktar rík- isins við nýskógrækt á fjórum jörðum Skógræktarinnar í fjórum lands- fjórðungum urðu til þess að unnin var skýrsla um mat á kolefnisbind- ingu og arðsemi slíkrar ræktunar á jörðunum. Landsvirkjun mun fjár- magna nýskógræktina og geta í staðinn talið kolefnisbindinguna sem hlýst af skógræktinni sér til tekna í 50 ár eftir gróðursetningu. Þegar er byrjað að gróðursetja tré í þessu skyni á Laxaborg í Dölum. Þröstur Eysteinsson, sviðs- stjóri þjóðskóga hjá Skógrækt rík- isins, sagði að fyrsta gróðursetn- ingin samkvæmt samkomulagi við Landsvirkjun hefði farið fram á Laxaborg á liðnu sumri. Búið er að gera áætlanir um hvernig skóg sé best að rækta á hin- um jörðunum þremur. Einnig er bú- ið að gera kostnaðaráætlanir fyrir nýskóginn sem mun þekja 642 hekt- ara verði plantað í allt landið sem ætlað er til skógræktar á jörðunum fjórum. Höfundur skýrslunnar, Arn- ór Snorrason, sérfræðingur á Mó- gilsá, hefur einnig reiknað út hve mikil kolefnisbindingin verður á hverjum stað og á hverjum tíma. Þröstur sagði þetta samstarf stuðla að því að Skógræktin gæti gegnt því lögbundna hlutverki sínu að rækta meiri skóg. Hann sagði að fram til ársins 2020 væri kolefnis- binding í skógrækt ekki inni í kerfi ESB sem stjórnvöld hefðu ákveðið að Ísland tæki þátt í. Kolefnislosun frá jarðvarmavirkjunum væri ekki heldur komin inn í kerfið. „Enn sem komið er er varla hægt að kalla þetta meira en æfing- ar,“ sagði Þröstur um plöntun skóga til kolefnisbindingar hér á landi. „Þetta er í raun og veru tilrauna- starfsemi hjá Landsvirkjun og enn í smáum stíl. Framhaldið ræðst vænt- anlega af því hvernig þetta gengur og eins því hvernig loftslagsmálin þróast í heiminum.“ Þröstur sagði að Skógræktin hefði reiknað út að um 200 hektarar af nýskógi dygðu til að jafna kolefn- islosun stofnunarinnar, m.a. frá öku- tækjum, vinnuvélum og flugferðum. Skógræktin hefði hins vegar ræktað 4-5 þúsund hektara af nýskógi svo stofnunin stæði vel að vígi. Stefnan að jafna CO2-losun Það er stefna Landsvirkjunar að jafna kolefnislosun sína, að sögn Hákons Aðalsteinssonar, líffræðings hjá Landsvirkjun. Hann sagði búist við því að losun frá jarðvarmavirkj- unum yrði tekin með í losunar- útreikningum í framtíðinni. Það gæti tekið tíu ár áður en skógrækt færi að skila árangri í kolefnisbindingu og því væri Landsvirkjun að búa sig undir framtíðina í þessum efnum. Hákon sagði að kolefnislosun Landsvirkjunar væri aðallega ann- ars vegar frá uppistöðulónum og hins vegar frá jarðvarmavirkjunum. „Losunin í heild núna er líklega um 55.000 tonn koltvíoxíðígildis á ári. Í þeirri skógrækt og uppgræðslu sem Landsvirkjun hefur stundað er verið að binda á móti um 20.000 tonn á ári nú þegar,“ sagði Hákon. Hann sagði að skógrækt á virkjunar- svæðum hefði byrjað til skrauts en fengið annan sess eftir að farið var að reikna kolefnisbúskap. Fyrir- tækið hefur einnig sinnt uppgræðslu til þess að verja mannvirki og til að bæta fyrir gróðurlendi sem tapaðist undir uppistöðulón. Landsvirkjun mun halda áfram við skógrækt til að binda kolefni, en rólega til að byrja með. Einnig er gert ráð fyrir upp- græðslu, að sögn Hákons. Rækta skóg til að binda gróðurhúsaloft Morgunblaðið/Jim Smart Skógur Binda má mikið af gróðurhúsalofttegundum með því að planta skógi. Landsvirkjun og Skógræktin hyggja að samstarfi um slíka ræktun. Lesa má skýrslu Arnórs Snorra- sonar, sérfræðings hjá Rann- sóknastöð skógræktar á Mó- gilsá, um mat á kolefnis- bindingu og arðsemi nýskógræktar á vef Skógrækt- arinnar (www.skogur.is). Jarðirnar sem voru skoðaðar eru Laxaborg í Haukadal á Vest- urlandi, Belgsá í Fnjóskadal á Norðurlandi, Ormsstaðir í Breiðdal á Austurlandi og Skarfanes í Landsveit á Suður- landi. Meðalársbinding CO2 var metin vera um 4.400 tonn á ári. Hún nær ekki hámarki fyrr en á árabilinu 2043-2052 og verður þá að meðaltali um 8.000 tonn CO2 á hverju ári. Allt að 8.000 tonn af CO2 Skógar eru til margs nytsamlegir. MAT Á KOLEFNISBINDINGU VEGNA SKÓGRÆKTAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.