Morgunblaðið - 13.12.2012, Side 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Ég hef áður bent á að
ætihvönn (SagaPro er
framleitt úr henni) inni-
heldur m.a. svokallaða
fúrókúmarína (Frétta-
blaðið 10.7.2012; Morg-
unblaðið 19.11.2012 og
27.11.2012). Þetta eru
efnasambönd, sem fyrir
löngu hafa m.a. sannast
vera ljóseitur (photo-
toxic), lifrareitur (he-
patotoxic) og krabbameinsvakar
(carcinogenic); sjá t.d. Pharmakogno-
sie-Phytopharmazie, Springer, 2010,
bls. 1074-1088. Á það er þó að líta að
mörg þessara efna eru nærri hættu-
laus. Þau varasömustu eru svokall-
aðir línulegir (linear) fúrókúmarínar
svo sem imperatórín og xantótoxín
en það eru einmitt aðalfúrókúmar-
ínarnir í ætihvönn (Angelica arc-
hangelica).
Einna beztar upplýsingar um regl-
ur (regulatory aspects) varðandi æti-
hvönn og innihaldsefni hennar er að
finna í gagnagrunnum FDA (Food
and Drug Administration – Banda-
ríska matvæla og lyfjastofnunin) og
NIH (National Insti-
tute of Health – Banda-
ríska heilbrigðisstofn-
unin). Þar kemur fram
að ætihvönn er til-
greind á skrá FDA yfir
eitraðar plöntur (FDA
Poisonous Plant Data-
base) (http://www.ac-
cessdata.fda.gov/
scripts/plantox/
detail.cfm?id=30061).
Hvað snertir einstök
innihaldsefni ætihvann-
ar mun ég hér aðeins
fjalla um þrjú, þ.e. líneru fúrókúmar-
ínana tvo imperatórín og xantótoxín
svo og fenýlprópeninn safról. Þessi
efni eru öll tilgreind í gagnagrunni
NIH um hættuleg efni (Hazardous
Substances Data Bank;
HSDB;http://www.tox-
net.nlm.nih.gov/cgi-bin/sis/
htmlgen?HSDB) með eftirfarandi at-
hugasemdum:
Imperatórín: Ljóseitur (phototox-
ic) í músum. FDA-krafa: Notkun ein-
ungis leyfð í áfengum drykkjum.
Xantótoxín: Efnið er krabbameins-
vaki (cancerogenic) í mönnum. FDA-
krafa: Efnið er einungis heimilað í
lyfjum.
Safról: Efnið er krabbameinsvaki
(cancerogenic) í nagdýrum og má
réttlilega búast við að það sé það
einnig í mönnum. FDA-krafa: Öll
notkun bönnuð.
Um það að krabbameinsvakar séu
það ekki ef „lítið magn“ er tekið inn
af þeim má benda á að 0,04 mg af
xantótoxíni innheldur 1,1 sinnum 10 í
17. veldi af xantótoxín-sameindum.
Þetta er miklu hærri tala en allar
frumur mannslíkamans til samans.
Krabbamein byrja með skemmd á
einni frumu.
Xantótoxín (methoxsalen) er sem
sagt skilgreint sem lyf og gæðakröf-
ur (monograph) fyrir það eru í
bandarísku lyfjaskránni (USP). Met-
hoxsalen er skráð í Bandaríkjunum í
formi lausnar, 20 míkróg/ml og
hylkja 10 mg og 20 mg, sömuleiðis í
Þýzkalandi í formi lausnar, 20 mík-
róg/ml og tafla 10 mg. Hins vegar eru
engin lyf af þessu tagi skráð í Eng-
landi (UK) eða á Íslandi. Lyf þessi
eru ætluð til meðferðar á sóríasis,
sem einatt getur verið erfiður við-
ureignar. Þau eru vitaskuld öll lyf-
seðilsskyld og þeim fylgja mikil og
mörg varnaðarorð um notkun og
aukaverkanir, þ. á m. möguleika á
krabbameinsmyndun.
Að því er ég bezt veit hafa fæðu-
bótarefni sem innihalda lyfseð-
ilsskyld lyf (óháð magni) ekki verið
heimiluð hér á landi. Það má því til
sanns vegar færa að öll „fæðubót-
ar“efni unnin úr ættihvönn séu brot á
Lyfjalögum.
Það er auðvitað deginum ljósara að
ef einhver minnsti vafi leikur á um
öryggi einhverra „fæðubótar“efna
eigi almenningur að njóta hans. Hér
er því ákalli beint til heilbrigðisyf-
irvalda að nákvæmt og gagnrýnt mat
verði framkvæmt sem fyrst á „fæðu-
bótar“efnum unnum úr ætihvönn.
Að lokum: Engar klínískar rann-
sóknir liggja fyrir sem benda til þess
að vörur unnar úr ætihvönn komi að
gagni við neinum sjúkdómum.
SagaPro – Náttúru-
meðal eða della IV
Eftir Reyni
Eyjólfsson »Hér er því ákallibeint til heilbrigðis-
yfirvalda að nákvæmt
og gagnrýnt mat verði
framkvæmt sem fyrst á
„fæðubótar“efnum unn-
um úr ætihvönn.
Reynir Eyjólfsson
Höfundur er lyfjafræðingur, PhD í
náttúruefnafræði.
Eins langt aftur og
ég man hafa stjórnvöld
verið að berjast við
verðbólguna. Mörg
meðul hafa verið reynd
gegn „vágestinum“.
Fyrst man ég eftir
fasta genginu. Ekki
mátti breyta genginu,
það myndi leiða til
verðbólgu. Unglingum
var jafnvel ljóst að
gengið væri í raun fall-
ið. Verðstöðvanir voru vinsælar til að
halda aftur af skrímslinu. Þær dugðu
vitanlega ekki. Þá var gripið til hertr-
ar verðstöðvunar. En ekkert af ráð-
unum dugði, fyrst og fremst vegna
þess að verðbólgan sem slík var ekki
vandinn heldur efnahagslegar að-
stæður sem bjuggu hana til.
Þessi langa barátta hefur auðgað
orðaforðann. Verðbólgudraugurinn,
óðaverðbólga, undirliggjandi verð-
bólga, þensluverðbólga, verðbólgubál-
ið, þessi sem er í pípunum og svo fram-
vegis. Verðbólguorðaforðinn hefur
haft áhrif á hvernig við hugsum um
verðbólgu og hefur gríðarleg áhrif á
þjóðarsálina. Verðbólgan hefur verið
hlutgerð, allar hækkanir eru sami
vandinn, Verðbólguvandinn. Verðbólg-
an er hættulegur draugur sem lúrir
undir niðri tilbúinn að geysast fram ef
ekki er stöðugt barið á honum. Í dag er
hlutverk Seðlabankans að halda verð-
bólgu í skefjum. Hækkanir eru af ýms-
um toga.
Tókum til dæmis hækkanir sem
verða vegna gengisfalls eða hækkana á
olíu á erlendum mörkuðum. Frétt frá
Seðlabankanum hljóðaði: „Vegna verð-
bólgu verður Seðlabankinn að hækka
vexti.“ Við umorðuðum svo fréttina á
þessa leið: „Vegna hækkana á olíu og
fallandi gengis ætlar Seðlabankinn að
hækka vexti.“ Breytt orðalag og verð-
bólgudraugurinn er dauður. Vald
Seðlabankans til að hækka vexti að
engu orðið. Seðlabankinn segist þurfa
beittari vopn á drauginn. Hvaða vopn
væri mögulegt að láta Seðlabankann
hafa sem dygðu til að koma í veg fyrir
að hækkanir á olíu, á heimsmarkaði,
komi fram hér á landi?
Þó peningar séu ekki hlutabréf þá
eru þeir ávísun á hlut, hlut í þjóðarkök-
unni. Þegar kakan minnkar fellur virði
peninganna. Markaðurinn aðlagar
verðmæti hennar að raunveruleik-
anum. Flestir átta sig á því að fyrir
hrun var krónan orðin of mikils virði.
Hrunið færði verð hennar nær raun-
veruleikanum. Verðtrygging sem
vinnur gegn og gerir suma peninga
ónæma fyrir markaðsaðstæðum er
ekki bara ranglát, hún er hættuleg.
Stór hluti vísitöluupp-
bótar, sem fólk er látið
greiða í dag, kemur til
vegna verðfalls krón-
unnar ekki verðbólgu.
Markmið Seðlabank-
ans með hækkun stýri-
vaxta gætu verið allt
önnur en til að halda
aftur af hækkunum.
Hugsum okkur að
Seðlabankinn lækkaði
vexti í 0,5-1%, sem væri
í samræmi við það sem
er víða annarstaðar og
ætlað til að ýta undir fjárfestingar. Þá
yrði hrópandi ósamræmi á milli láns-
kjara. Húsnæðislán með 5% vexti of-
an á verðbólguna yrðu óverjandi.
Undanfarið hafa háir vextir Seðla-
bankans aukið hækkanir, en þeir auð-
velda kerfinu að blóðmjólka skuldara.
Þetta hefur líka þær hliðarverkanir
að hengjan stækkar. Lífeyrissjóðirnir
stuðla líka að því að hengjan stækki
með því að hjálpa beint og óbeint við
að breyta eignum bankana í peninga.
Það stefnir í að verulegur hluti
óreiðuskulda bankana geti lenti á al-
menningi. Með hverjum mánuðinum
sem líður fjarlægjumst við það mark-
mið að aflétta gjaldeyrishöftunum.
Ég velti því fyrir mér hvernig hefði
farið fyrir okkur eftir hrun með hag-
stjórn eins og hún var hvað verst milli
1970 og 1980. Þetta var fyrir verð-
trygginguna. Með þannig hagstjórn
frá hruni hefði í dag, þrátt fyrir allt,
verið miklu auðveldara að koma hag-
kerfinu aftur á rétta braut heldur en
það verður núna. Verðbólgan hefði
læknað meinin og skrúfað verðgildi
peninga að raunhagkerfinu. Lagað
skuldastöðu heimilanna, breytt
hengjunni í viðráðanlegan skafl.
Þannig að tiltölulega frjáls gjaldeyr-
isviðskipti væru innan seilingar.
Hækkanir á verðlagi og jafnvel
verðbólga geta verið fullkomlega eðli-
legar, slæmar, góðar og allt þetta í
einu en sú einhæfa sýn sem tíðkast
hefur hér á landi verður endilega að
breytast, annars lendum við Íslend-
ingar í enn verri ógöngum en við er-
um í í dag.
Verðbólgan, óvætt-
urinn skelfilegi
Eftir Gunnar
Einarsson
Gunnar
Einarsson
» Stór hluti þeirrar
vísitöluuppbótar
sem fólk er að borga í
dag kemur til vegna
verðfalls krónunnar og
hækkana erlendis – ekki
vegna verðbólgu.
Höfundur er bóndi á Daðastöðum í
Núpasveit.
Slæmt ástand í sam-
göngumálum Vest-
fjarða er ekki í fréttum
á hverjum degi þegar
hart er deilt um hvort
skynsamlegt sé að fjár-
magna tvöföldun Suð-
urlands- og Vest-
urlandsvegar og gerð
Vaðlaheiðarganga með
innheimtu veggjalda.
Því ber að fagna að Bol-
víkingar skuli nú eftir
harða baráttu hafa losnað við slysa-
gildruna í Óshlíðinni með tilkomu nýju
jarðganganna sem tryggja öryggi
heimamanna á Ísafjarðarsvæðinu um
ókomin ár. Greinarhöfundur óskar
heimamönnum til hamingju með þessa
samgöngubót sem hefði átt að ákveða í
fyrsta áfanga með jarðgöngunum milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Megi Súðvíkingar líka sitja við sama
borð og losna sem fyrst
við tilefnislausar árásir
og slysagildruna í hlíð-
inni milli Álftafjarðar og
Skutulsfjarðar hvort
sem það verður þing-
mönnum Norðvest-
urkjördæmis að þakka
eða ekki. Skammarlegt
er hvernig komið er
fram við Súðvíkinga sem
ekki hafa notið sann-
mælis tvo síðustu ára-
tugina eftir að fram-
kvæmdir hófust í
Vestfjarðagöngunum
sumarið 1991. Á þessu vandamáli ætti
Vegagerðin frekar að taka í stað þess
að nota opnun Héðinsfjarðarganga
sem vopn gegn Sauðárkróksfluginu.
Einu ári eftir að framkvæmdir hóf-
ust við Austfjarðagöngin komu hug-
myndir um ný jarðgöng við Ísafjarð-
ardjúp til alvarlegrar umræðu þegar
fyrrverandi þingmenn Vestfjarða
neituðu að flytja tillögu um að flýta
undirbúningsrannsóknum á jarð-
gangagerð milli Álftafjarðar og Skut-
ulsfjarðar. Eftir öðrum leiðum er sam-
eining Súðavíkur og Ísafjarðar
útilokuð. Mestu máli skiptir að heima-
menn á þessu svæði losni endanlega
við hætturnar á aurskriðum, snjóflóð-
um og grjóthruni. Tvo síðustu áratug-
ina hafa Súðvíkingar án árangurs sent
þingmönnum Vestfirðinga skýr skila-
boð um að ástandið í Súðavíkurhlíð
sem verður alltaf slysagildra sé engum
bjóðandi. Þetta hafa sveitarstjórn-
irnar á Ísafjarðarsvæðinu ítrekað
hvað eftir annað þegar þingmenn
Norðvesturkjördæmis sjá enga
ástæðu til að bregðast við áhyggjum
heimamanna sem krefjast þess að rík-
isstjórnin taki á þessu vandamáli.
Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra hefur viðurkennt að full
ástæða sé til að koma samgöngu-
málum Vestfirðinga í viðunandi horf
áður en ákvörðun er tekin um lagfær-
ingar í öðrum landshlutum. Með stutt-
um veggöngum í Súðavíkurhlíð verður
Snjóflóðahættur
í Súðavíkurhlíð
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
Flott CUBE AIM DISC 2013 árgerð á flottu verði
Verð: 109.990 kr.
Frí heimsending á
höfuðborgarsvæðinu
og á allar afgreiðslustöðvar
Flytjanda á landsbyggðinni.