Morgunblaðið - 13.12.2012, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
enn erfiðara fyrir íbúa Álftafjarðar að
treysta á stóra Fjórðungssjúkrahúsið
á Ísafirði og sjúkraflugið þegar þeir
festast í vítahring sem vonlaust er að
brjótast út úr næstu áratugina. Allir
þingmenn Norðvesturkjördæmis ættu
að sjá sóma sinn í því að standa saman
og flytja á Alþingi tillögu um að grafin
verði 6-7 km löng jarðgöng sunnan
Súðavíkur sem kæmu út í Engidal og
myndu tengja Álftafjörð við Ísafjörð
og byggðirnar norðan Hrafns-
eyrarheiðar. Stytting vegalengda,
samgöngubætur í formi jarðganga og
vel uppbyggðir vegir í lítilli hæð yfir
sjávarmáli eru ein forsendan fyrir því
að íbúar litlu sjávarþorpanna geti átt
auðveldara með að sækja vinnu í
næsta kauptún á sem stystum tíma.
Með gerð snjóflóðaskápa í Kirkju-
bólshlíð eru eðlileg samskipti milli
Súðvíkinga og Ísfirðinga endanlega
afskrifuð. Þessi hugmynd styrkir Ísa-
fjörð aldrei sem öflugt atvinnu, þjón-
ustu, samgöngu- og skólasvæði.
Þessu máli verða Einar K Guðfinns-
son og Ólína Þorvarðardóttir að
fylgja eftir í samgöngunefnd Alþingis
þótt búið sé að ákveða að hefja fyrst
framkvæmdir við Dýrafjarðargöng.
Greinarhöfundur ítekar að allar full-
yrðingar í fjölmiðlum um að jarð-
göngin milli Dýrafjarðar og Arn-
arfjarðar verði grafin í 360 m hæð
undir Hrafnseyrarheiði eru tilhæfu-
lausar. Hið rétta er að göngin verða
tekin 14 km frá Þingeyri og um 1 km
frá Mjólkárvirkjun. Undir heiðina
koma jarðgöng aldrei til greina í
þessari hæð yfir sjávarmáli. Þarna
eru jarðfræðilegar aðstæður slæmar
og hætturnar á grjóthruni, aur-
skriðum og snjóflóðum alltof miklar.
Samhliða Dýrafjarðargöngum
verður líka að skoða möguleika á
stuttum veggöngum undir Meðalnes-
fjall sem er fyrsta skrefið til að rjúfa
alla vetrareinangrun Vesturbyggðar
og Barðastrandar við Ísafjörð þótt
meira þurfi til. Hefjum strax fram-
kvæmdir við Dýrafjarðargöng. Flýt-
um undirbúningsrannsóknum á jarð-
gangagerð sunnan Súðavíkur. Megi
Súðvíkingar áfram njóta sannmælis.
» Skammarlegt er
hvernig komið er
fram við Súðvíkinga
sem ekki hafa notið
sannmælis tvo síðustu
áratugina eftir að fram-
kvæmdir hófust í Vest-
fjarðagöngunum sum-
arið 1991.
Höfundur er farandverkamaður.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
PINNAMATUR
Skútan
FYRIR ÚTSKRIFTINA
Við val á veitingum þarf að hafa í hug
a á
hvaða tíma dags móttakan er og hvers
u
lengi hún á að standa. Í “standandi” ve
islum
er vinsælt að bjóða upp á t.d fimm til s
jö
rétta pinnaborð.
HLAÐBORÐ
TAPAS PINNAMATUR
www.veislulist.is Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Pinna og Tapas borð eru afgreidd í ös
kjum þar sem kaupandi sér sjálfur um
að raða þeim á föt eða tilbúnir á á bor
ð á einnota veislufötum. Sé veislan 15
0
manna eða meira eru allar veitingar a
fhentar á einnota veislufötum.
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
Verð frá 2.450 pr. mann
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
35
72
Kynningarafsláttur
www.jonogoskar.is Laugavegur / Smáralind / Kringlan
afsláttur
á svissnesku hágæðaúrunum
frá Maurice Lacroix í desember
www.mauricelacroix.com