Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 37
Nú brjótast fram úr hugar- skotum óteljandi góðar minning- ar frá þeim tíma er við fylgdumst að í Laugarnesskóla. Kristín var frábær námsmaður, samvisku- söm og dugleg, og tók virkan þátt í skólastarfinu. Ys og þys hins hefðbundna skóladags undir leið- sögn Þóru Melsted kennara, ferðir í Katlagil, hinn daglegi morgunsöngur á sal og krakkal- eikir í Laugarnesinu eru hluti af sameiginlegum minningabrunni. Seinna héldum við áfram náminu í Laugalækjarskóla þar sem Kristín tók þátt í Skrekk, var virk í bókmenntaklúbbi skólans og söng í Gradualekór Langholts- kirkju. Eftir níunda bekk varði hún sumrinu í Danmörku og kom til baka altalandi á dönsku en tungumál lágu mjög vel fyrir henni. Kristín söng í mörgum kórum á lífsleiðinni, naut tónlistar, bók- mennta, útivistar og menningar og hún bjó yfir dýrmætri næmni og stóru hjarta. Um leið og við þökkum samfylgdina sendum við fjölskyldu Kristínar okkar inni- legustu samúðarkveðjur á þess- um erfiða tíma. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast æv- inlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson) Fyrir hönd skólafélaga úr Laugarnes- og Laugalækjar- skóla, Karen Pálsdóttir og Guðbjörg Sandholt. Máría, ljáðu mér möttul þinn, mæðir hretið skýja; tekur mig að kala á kinn, kuldi smýgur í hjartað inn; mér væri skjól að möttlinum þínum hlýja. Máría, ljáðu mér möttul þinn, mærin heiðis sala; að mér sækir eldurinn, yfir mig steypist reykurinn; mér væri þörf á möttlinum þínum svala. Þegar mér sígur svefn á brá síðastur alls í heimi, möttulinn þinn mjúka þá, Móðir, breiddu mig ofan á, svo sofi ég vært og ekkert illt mig dreymi. (Einar Ól. Sveinsson.) Með þakklæti fyrir góðar stundir og samveru á kóræfing- um og -ferðalögum. Hugur okkar er hjá foreldrum, systkinum og öðrum ástvinum Kristínar. Jón Stefánsson og gamlir kórfélagar úr Gradualekór Langholtskirkju. Í dag kveðjum við yndislega vinkonu og félaga okkar úr starfi sjálfboðaliðasamtakanna AUS. Það er sárt að setja saman minn- ingargrein um góða vinkonu sem fellur frá svona skyndilega og svo ung. Kristín vann óeigingjarnt starf í þágu samtakanna til margra ára. Hún gekk til liðs við sam- tökin einungis 18 ára gömul og aðstoðaði þá meðal annars við móttöku á erlendum sjálfboðalið- um sem voru komnir frá öllum heimshornum. Sjálf fór hún sem sjálfboðaliði til Spánar árið 2001, þá 19 ára gömul, og starfaði með munaðarlausum börnum í eitt ár. Eftir að heim kom var hún kosin í stjórn AUS og gegndi þar ýms- um störfum á þeim fjórum árum sem hún sat í stjórninni. Kristín var hlý og góð mann- eskja og með þægilega nærveru. Hún var dugleg og klár og gerði allt af heilum hug og lagði sig ætíð 100% fram. Einnig var hún heiðarleg og traust og var ávallt til staðar ef á þurfti að halda. Í umræðum var hún málefnaleg og gaf sér tíma til þess að hlusta og sýna fólki áhuga. Hún var hógvær en trú og fylgin sjálfri sér og með markmið sín á hreinu. Það er óhætt að segja að hún hafi verið heil og sönn, jafnt í lífi sem starfi. Megi hún hvíla í friði. Foreldrum og systkinum Kristínar sendum við hlýjan hug og samúðarkveðjur sem og að- standendum öllum. Með söknuð í hjarta viljum við láta brot úr 23. Davíðssálmi vera okkar lokaorð. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Kjartan Due Nielsen, Íris Þórarinsdóttir, Ingólfur Pétursson, Anna Lúðvíks- dóttir, Ragnhildur Ein- arsdóttir, Martin L. Sören- sen, Helgi Már Sigurðsson, Þórarinn Ívarsson, Krist- jana H. Kristjánsdóttir, Gunnar Magnússon, Gunn- þór Eyfjörð Gunnarsson og Atli Már Pálsson. Í dag kveðjum við Kristínu, fyrrverandi kórfélaga og vin- konu. Við kveðjum hana með sorg í hjarta og trega. Það er erfitt að horfast í augu við það að hún hafi kvatt þennan heim en það er trú okkar að henni líði betur á þeim stað þar sem hún er núna, án efa syngjandi, með fagra ljósa lokka og björt og hlý augu. Kristín var með okkur í Mót- ettukórnum á árunum 2007 til 2009 og ennfremur með okkur í skemmtinefnd á þeim góða tíma sem við héldum árshátíðina í Skálholti. Við skemmtum okkur dável saman við gerð músastiga og blóma og undirbúning ýmissa atriða. Hún var handlagin, úr- ræðagóð og góðhjörtuð. Sam- verustundirnar voru góðar, bæði innan kórstarfs og utan, á æfing- um og í matarboðum. Saman sungum við einhver fallegustu verk tónbókmenntanna, m.a. H- moll messu Bachs, Vesper Rachmaninoffs, Requiem eftir Fauré, jólatónleika, svo einungis fátt eitt sé nefnt. Kristín söng nú síðast með okkur í 30 ára afmæl- ismessu Mótettukórsins og voru það hugljúfir endurfundir. Við vottum fjölskyldu Kristín- ar okkar dýpstu samúð og kveðj- um hana með þessum fögru orð- um Jónasar Hallgrímssonar í hinsta sinn. Faðir og vinur alls, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! Megi ljóssins englar vaka yfir henni. Sara, Alexandra, Sandra, Sveinn Ingi, Jón Torfi og Sindri. Kór er samfélag þeirra sem hafa unun af því að syngja. Það er gott að tilheyra slíkum hópi. Tengjast saman. Mynda bönd. Kórinn breytist sífellt með nýjum viðfangsefnum og nýjum fé- lögum. Þannig erum við líka hvert og eitt. Hin sömu en samt að breytast. Kristín kom og var um tíð. Sópranrödd í kórnum okkar. Björt og falleg. Glaðleg og í góðu skapi. Liðleg og hjálpfús. Að skottast á æfingar með prjóna- húfuna sína og bakpokann. Alltaf á leiðinni að gera eitthvað sniðugt enda var hún strax komin í skemmtinefndina. Af þeim margvíslegu verkefn- um sem Kristín tók þátt í með Mótettukórnum ber hæst flutn- ing á H-moll messunni eftir Bach með tónleikum í Skálholti og Hallgrímskirkju. Hún tók þátt í upptökum á geisladisk, tónleik- um í Háskólabíói með Sinfóníu- hljómsveitinni og skipulagningu á ævintýralegum og ógleyman- legum æfingabúðum á herragarði í Danmörku. Kristín kom aftur til að syngja með okkur þegar Mótettukórinn hélt upp á 30 ára afmæli sitt hinn 28. október sl. Það er gott að hafa fengið að hitta hana þá þó við vissum ekki að við værum að kveðja. Það er sárt að skilja við Krist- ínu. Hún var ung og góð. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast henni og vera með henni þessa stund. Fjölskyldunni vott- um við djúpa samúð. Falleg minning Kristínar verður ævin- lega geymd í hjarta kórsins henn- ar. Fyrir hönd Mótettukórs Hall- grímskirkju, Guðrún Hólmgeirsdóttir. Við sjáum gleðina drúpa og söknuðinn fella gleðitár bæði leita þau sameiginlegs skjóls í brjóstum okkar. (Þorsteinn frá Hamri) Kristín kom inn í líf okkar með foreldrum sínum Baldri og Kaju, Óli bróðir hennar var fyrir, lest- ina rak litla systirin Þórhildur. Kristín var frá fyrstu tíð björt yf- irlitum og hláturmild svo af bar. Minnisstæð er heimsókn til okk- ar í Fjörðinn; krakkarnir fóru í gönguferð um hverfið, Kristín yngst í kerru. Þetta var ósköp venjulegur dagur, grár, jafnvel drungalegur en er okkur ógleym- anlegur vegna Kristínar sem hló og skríkti alla leiðina. Og fyrr en varði hafði hlátur hennar smitað allan hópinn. Æ síðan er og verð- ur sérstakt hrósyrði á okkar bæ að brosa og hlæja eins og Kristín hennar Kaju og hans Baldurs. Þegar árin liðu var ekki síður gaman að hitta fyrir þá geðþekku ungu konu sem Kristín var, hóg- vær og vönduð til orðs og æðis. Innileiki var áberandi í fari henn- ar, viðmótið svo einstaklega hlýtt og ætíð svo fagnandi að það lét engan ósnortinn. Maður skynjaði eindreginn vilja Kristínar til að láta gott af sér leiða. Hún sýndi því sem aðrir höfðu fyrir stafni einlægan áhuga en tranaði sér ekki fram. Með auknum þroska leitaði hún ögrandi verkefna; störfin sem hún valdi sýna hversu umhugað henni var um aðra, ekki síst þá sem minna mega sín. Það bjó djúp alvara að baki glaðværð- inni, og hugrekki til að fara eigin leiðir. Kristín hélt ung til Spánar þar sem hún starfaði á félagsmiðstöð og leiðbeindi hjálparþurfi ung- mennum með heimanám. Hún náði mjög góðum tökum á spænsku og þá kunnáttu nýtti hún sér í meistaranámi sínu í þýðingarfræði. Sá sem þýðir af einu máli yfir á annað byggir brýr, hann þarf að kunna skil á eigin máli og ann- arra en það er ekki nóg, sá sem þýðir þarf að geta sett sig inn í framandi hugsunarhátt, haft samúð með ólíkum sjónarmiðum og skilið tilfinningar. Þessum kostum var Kristín búin og það fengu allir þeir sem þekktu hana að reyna. Sá eiginleiki að bregða birtu á hversdaginn og gefa öðrum hlut- deild í gleði sinni voru dýrmætar gjafir Kristínar til samferða- fólksins. Þær varðveitum við í hugskoti okkar. Kristín er öllum þeim sem þekktu hana harmdauði en mest- ur er missir foreldra hennar, systkina og nánustu fjölskyldu. Elsku vinir, megi fallegar og bjartar minningar um Kristínu létta ykkur þunga raun. Auður, Ingvar, Kristín og Haukur. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 ✝ Ágústa Sig-urdórsdóttir fæddist að Götu í Hrunamanna- hreppi 23. ágúst 1923. Hún lést að Sólvöllum á Eyr- arbakka 7. desem- ber 2012. Foreldrar Ágústu voru Sig- urdór Stefánsson, bóndi í Götu, f. 1891, d. 1970 og kona hans Katrín Guðmundsdóttir frá Kambi í Holtahreppi og hús- freyja að Götu, f. 1895, d. 1976. Systkini Ágústu voru Sigurgeir, f. 1915, d. 2010, Stefán, f. 1920, d. 2011, Guðfinna, f. 1921, d. 2003, Guðmundur, f. 1921, d. 2004 og Sigurður, f. 1933. Hinn 6. júlí 1947 giftist Ágústa Stefáni Scheving Krist- jánssyni frá Ólafsvík, f. 24. mars 1920, d. 2. ágúst 2010. For- eldrar hans voru María Guð- mundsdóttir, f. 1891, d. 1944 og Kristján Guðmundsson, f. 1884, látinn fyrir 1930, bæði fædd og uppalin í Ólafsvík. Ágústa og Stefán eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Katrín, f. 2.2. 1946, maki Anton Viggósson, f. 14.4. 1953. Synir Katrínar úr fyrra þeirra eru: a) Eggert Már, f. 1981, maki Harpa Sigurðard., f. 1980, þau eiga þrjú börn, fyrir á Eggert einn son, b) Ágústa Arna, f. 1986 og c) Brynjar Örn, f. 1989. Ágústa var Hreppamann- eskja í húð og hár, fædd í Götu og ólst þar upp við hefðbundin sveitastörf þess tíma. Hún kynntist Stefáni eiginmanni sín- um þegar hann var í vinnu- mennsku á nágrannabæ. Ágústa og Stefán tóku við búi í Götu af foreldrum hennar árið 1947 og bjuggu þar alla tíð utan síðustu ár er þau dvöldu við gott atlæti að Sólvöllum á Eyrarbakka. Stefán lést fyrir tveimur árum og fylgir Ágústa honum nú. Í Götu stunduðu þau hefðbundinn búskap með ær og kýr og sinn barnahóp. Þá sóttu systk- inabörn Ágústu og barnabörn mikið í að dvelja hjá þeim og var oft margt um manninn í Götu. Ágústa og Stefán upplifðu miklar breytingar á búskap- arháttum og hýbýlakosti á sinni tíð sem þau tileinkuðu sér. Ágústa var listfeng og mikil hagleikskona og mörg nytja- og listaverk vann hún í gegnum tíðina handa sér og sínum. Þrátt fyrir að hafa alla sína tíð átt heima langt frá hafi þá undi Ágústa sér vel við úfna strönd- ina á Eyrarbakka síðustu ár. Útför Gústu í Götu verður gerð frá Hrepphólakirkju í dag, 13. desember 2012, og hefst at- höfnin kl. 13.30. hjónabandi með Hauki Benedikts- syni eru a) Stefán, f. 1967, maki Dagný Erlendsd., f. 1970, þau eiga þrjú börn og b) Jóhann- es Þór, f. 1968, sambýliskona Ingi- björg Ómarsd., f. 1971, þau eiga sam- tals fimm börn og eitt barnabarn. 2) Sigríður, f. 4.12. 1948, maki Ragnar Óskarsson, f. 4.8. 1942, börn þeirra eru: a) Ágústa, f. 1967, maki Þórarinn F. Gylfa- son, f. 1969, þau hafa eignast þrjár dætur og b) Óskar, f. 1970, maki Helena Helgad., f. 1972, þau eiga einn son. 3) Jón, f. 19.6. 1952, d. 31.10. 2004, maki Ólöf Guðnad., f. 22.7. 1955, þau skildu, börn þeirra eru: a) Lilja Björg, f. 1977, maki Guðni Þór Valþórsson, f. 1976, þau eiga tvö börn, b) María, f. 1980, sam- býlismaður Eymundur Sigurðs- son, f. 1978, þau eiga einn son og barn á leiðinni og c) Ágúst Scheving, f. 1984, sambýliskona Hildur Gylfad., f. 1985, þau eiga von á barni. 4) Sigurdór Már, f. 1.2. 1959, maki Guðbjörg Fríða Guðmundsd., f. 4.5. 1959, börn Amma er farin til afa. Hún var búin að bíða eftir því síðustu misseri og hefur eflaust orðið fagnaðarfundur og hún, lítil, grönn og kvik hefur brosað sínu ljúfa brosi til hans með feimn- isblik í bláum augunum, falleg með há kinnbein og krullaða hvíta hárið, alveg eins og engill. Svo hefur hún líklega athugað hvort það væri nokkuð kaffiblett- ur í bindinu hans. Afskaplega hreinleg og leið ekki að farið væri inn í bæ á úti- fötum, það skyldi skipt frammi í þvottahúsi áður þó stoppið væri stutt. Þá var það líka alveg skýrt að dýr áttu heima í útihúsum en íbúðarhúsið væri fyrir fólk. Hafði afar ákveðnar skoðanir og varð ekki hvikað í sinni vissu, þrjósk- ubelgur sem var svo blíð og góð og traust og allt um kring. Húsfreyja jafnt sem bóndi, gekk í öll störf, sagði seinna að hún myndi ekki velja sér þetta starf aftur hefði hún kost á því. Elskaði þó sveitina sína af öllu hjarta og gerði staðinn svo eft- irsóknarverðan að mörg systk- inabörn hennar sem og barna- börn dvöldu þar löngum stundum við gott atlæti, störf og leik. Það var því oft mannmargt og gestkvæmt á heimilinu, mikið þurfti að eiga og útbúa af mat, þrífa, þvo og þjóna. Hörkupúl og ekki endilega þakklátt. Réttardagurinn ekki hennar uppáhald, margt um manninn eins og svo oft, meira að segja sofið á eldhúsgólfinu sem var svo sem í lagi, en hafði ímugust á brennivíni sem rann afskaplega ljúflega ofan í margan manninn þann dag og varð t.d. til þess að réttarsúpan, sem búið var að de- dúa við, hélst ekki endilega í maga þeirra sem neyttu. Hafði sig ekki mikið í frammi á almannafæri, var lágróma og prívat hugsanlega vegna vöggu- gjafarinnar sem var skarð í vör og holur gómur. Heimafyrir meiri sprelligosi, söng og trallaði við íslensk einsöngslög jafnt sem aríur og þá gjarnan með tusku í hendi, á kafi í kökudeigi eða saumandi, féll aldrei verk úr hendi eins og títt var með hennar kynslóð. Ömmustelpa minnist sérstaklega tiltektar á laugar- dagsmorgnum, báðar syngjandi með Óskalögum sjúklinga, þá var nú gaman. Hreifst með tónlist, dýrkaði dans- og söngvamyndir, bauð litlum stelpukrakka á Sound of Music í bíó. Hafði yndi af því að skapa, listfeng hagleikskona sem saumaði listavel út sem og heilu flíkurnar, teiknaði, föndraði og málaði hvenær sem tími gafst til. Þar var hún í essinu sínu. Og í öðrum frístundum kastaði hún gjarnan fyrir fisk, tók í spil eða flakkaði með karlinum sínum sem var nánast eini bílstjórinn á jarðríki sem hún treysti, líka eft- ir að hann missti sjónina! Og nú geta amma og afi haldið flakkinu áfram saman, bæði heil og frjáls, hann í bílstjórasætinu örugglega með hreint bindi og hún afslöppuð í framsætinu tilbúin með brjóstsykur. Ég kveð þig, elsku amma mín, og óska þér góðrar ferðar um leið og ég þakka fyrir allar góðu stundirn- ar. Ágústa Ragnarsdóttir. Ágústa Sigurdórsdóttir, amma okkar í sveit, er látin. Á okkar heimili var hún kölluð amma í sveit eða amma í Götu í daglegu tali. Ágústa var einstak- lega hlý og góð kona sem tók okkur alltaf opnum örmum. Við vorum sannarlega lánsöm að eiga samleið með þeim ömmu og afa í sveit og eigum margar og skemmtilegar minningar frá Götu. Það að fá ömmutitilinn hjá bræðrunum segir allt sem segja þarf. Að vera amma er svona gæðastimpill í okkar huga. Við kveðjum nú Ágústu ömmu og þökkum fyrir allt gamalt og gott. Sendum börnum hennar og fjöl- dskyldunni allri samúðarkveðj- ur. Þá halla tekur degi og svefninn sigrar brá, en silfrað höfuð voldug árin beygja, skal aldrei – meðan fjöllin í fjarska eru blá – fölna þessi minning eða deyja. (Ó.B.G.) Svavar, Dagrún, Sigurður og Halldór Þór. Ágústa Sigurdórsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG VIGDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR, Bankavegi 5, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 10. desember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 19. desember kl. 13.30. Sigfús Kristinsson, Aldís Sigfúsdóttir, Guðjón Þórir Sigfússon, Guðrún Guðbjartsdóttir, Kristinn Hafliði Sigfússon, Þórður Sigfússon, Selma Jónsdóttir, Sigríður Sigfúsdóttir, Baldur Guðmundsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG HÁLFDÁNARDÓTTIR, Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, Akranesi, áður Háholti 3, lést sunnudaginn 9. desember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 21. desember kl. 14.00. Ólafur H. Þórarinsson, Sigríður B. Ásgeirsdóttir, Þórgunna Þórarinsdóttir, Kristín S. Þórarinsdóttir, Unnþór B. Halldórsson, Þórunn R. Þórarinsdóttir, Kristján Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.