Morgunblaðið - 13.12.2012, Page 39

Morgunblaðið - 13.12.2012, Page 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 ✝ IngibjörgKristín Björns- dóttir fæddist á Þengilbakka við Grenivík 9. maí 1934. Hún lést 7. desember síðastlið- inn. Ingibjörg var dóttir hjónanna Ingu Vilfríðar Gunnarsdóttur f. 1898, d. 1977 og Björns Kristjáns- sonar f. 1886, d. 1946. Börn þeirra hjóna auk Ingibjargar voru Jónína Ragnheiður f. 1919, Jóhanna f. 1921 og Kristmundur f. 1925, þau eru öll látin. Ingibjörg giftist Reimari Sigurpálssyni f. 20. nóvember 1931, d. 12. nóv- ember 1994. Reimar var son- Hafþór Daði, dóttir Halldórs er Anna Rut, barnabörnin eru 3. Hlynur f. 19.6. 1964, hans kona er Kristín Árnadóttir, þau eiga soninn Inga Rafn. Kristín á dótturina Birgittu Rut, þau eiga eitt barnabarn. Sigurbjörn Ingi f. 24.4. 1967, hans kona er Elísabet Lilja, þeirra börn eru Heiðdís Dögg, Lilja Rós og Reimar Ingi, barnabörnin eru 2. Ingi- björg og Reimar tóku við búi á Steindyrum í Svarfaðardal af foreldrum Reimars. Þau bjuggu á Steindyrum til árs- ins 1977 þegar þau fluttu til Akureyrar. Ingibjörg hóf störf hjá Súkkulaðiverksmiðj- unni Lindu árið 1977 og vann þar þar til Linda hætti rekstri. Þá fór Ingibjörg að vinna í eldhúsinu á öldr- unarheimilinu Hlíð og vann þar til starfsloka. Útför Ingibjargar Kristínar fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag, fimmtudaginn 13. des- ember 2012, og hefst athöfnin kl. 12.30. ur hjónanna Ingibjargar Jónsdóttur og Sigurpáls Sig- urðssonar frá Steindyrum í Svarfaðardal. Ingibjörg og Reimar eign- uðust börnin Inga Rafn f. 1.10. 1953, d. 11.12. 1953, Ellý Sæunni f. 31.1. 1956, hennar maður er Örn Þórisson. Ellý á dæturnar Ingu Kristínu, Írisi Ölmu og Lindu Rós, barnabörnin eru 7. Örn á einn son og 4 barna- börn. Halldór f. 18.9. 1958, hans kona er Guðrún Snorra- dóttir, þeirra börn eru Ingi- björg Elín, Halldór Rafn og Elsku amma. Ég elska þig alla leið út í geim og aftur til baka, himinn- inn er okkar. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr.) Þín Ingibjörg Elín Halldórsdóttir. Í dag kveð ég hana elskulegu ömmu mína, þá yndislegustu sem til var. Það rifjast upp svo margar minningar sem ég átti með henni ömmu. En ég var mikil ömmu- og afastelpa. Allt byrjaði þetta víst þegar ég var pínulítil og var hjá ykkur meira og minna heilan vetur þegar ég var rétt orðin 1 árs, en þá var sveit- in staðurinn sem ég var frískust á og til þess að mamma gæti nú stundað sína vinnu fékk ég bara að vera í sveitinni. Og veit fyrir víst að það þótti ykkur afa ekk- ert leiðinlegt. Þegar ég var svo 2 ára fluttuð þið í Langholtið á Akureyri og er mín fyrsta minn- ing þessi líka alveg rosalega græna eldavél. En úr Langholtinu á ég margar minningar, kleinu- og snúðabakstur, sláttur á stóru lóðinni, hoppa af svölunum í snjóskafla, þvottur á bíl á plan- inu og svo margt, margt fleira. Þegar við fluttum svo til Reykjavíkur fékk ég að koma á sumrin og eyða þeim hjá ykkur og var þá ýmislegt brallað. Þar stendur hæst upp úr þegar ég fékk að koma með ykkur afa í vinnuna og þú varst að vinna í Lindu. Þvílíkur draumaheimur sem það var að vera barn og fá að koma með þér, sitja við konfekt- bandið og skoða molana, setja þá í kassa og passa að allt væri eins og það átti að vera, pakka inn kaffisúkkulaði og lindor, krembrauði og ískexi. Þetta voru yndislegir tímar. Ég á svo margar minningar um þig, ynd- islega amma mín, að ég gæti skrifað heilu bindin. Bíltúrar, búðaferðir, ferðalög og heim- sóknir í sveitina. Tíminn sem ég bjó hjá þér og afa. Þá þurfti ég svo mikið á ykkur að halda og þarna voruð þið, tókuð á móti mér og gáfuð mér það sem ég þurfti, ást ykk- ar og umhyggju, alveg sama hversu erfið ég var. Fyrir það verð ég þér að eilífu þakklát. Það var ekki og er ekki hægt að hugsa sér betri ömmu en þig. Með brostið hjarta og augun full af tárum kveð ég þig, vitandi að núna ertu komin á betri stað, þar sem þér líður svo miklu bet- ur, dansandi með afa og knús- andi Inga Rafn. Ég hef eignast annan engil á himni og á þá fal- legustu. Hverfur margt huganum förlast sýn þó er bjart þegar ég minnist þín. Allt er geymt allt er á vísum stað engu gleymt, ekkert er fullþakkað. (Oddný Kristjánsdóttir í Ferjunesi) Með ástarkveðju, þín Inga Kristín. Myndin er svarthvít og komin til ára sinna. Á henni er ung stúlka í hvítum fermingarkjól. Hún brosir breitt og gleðin skín úr andlitinu. Í fangi hennar er strákhnokki á fyrsta ári í skírn- arkjól. Hún stendur á grasbala, líklega við fæðingarheimili sitt, Þengilbakka á Grenivík. Myndin var tekin á sameiginlegum degi okkar, skírnardegi mínum og fermingardegi hennar. Nína föðursystir mín var yngst fjögurra systkina sinna sem nú eru öll látin. Hún missti föður sinn, Björn Kristjánsson, þegar hún var á tólfta ári, eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Það hefur eflaust haft áhrif á barnssálina þó ekki hafi mátt merkja það í fari hennar. Móðir hennar, Inga Gunnars- dóttir, fór fljótlega að vinna fyr- ir sér í vist hjá fólki og ætla má að sú breyting hafi einnig haft áhrif með einum eða öðrum hætti. Nína minntist aldrei á þessi ár við mig en faðir minn sagði mér í örfáum orðum frá þessum erfiða tíma. Nína giftist ung Reimari manni sínum og þau hófu bú- skap að Steindyrum í Svarfaðar- dal. Þar tóku þau við jörð sem heita má að hafi verið eins og ónumið land. Byggja varð íbúð- arhús og brjóta þurfti land til ræktunar. Hætt er við að dagar þeirra hjóna hafi oft verið lang- ir. Þau stunduðu búskapinn í 20 ár en fluttu þá til Akureyrar þar sem Nína vann hjá sælgætis- gerðinni Lindu þar til það fyr- irtæki var lagt niður. Eftir það vann hún hjá vistheimili aldr- aðra á Akureyri. Þau Reimar höfðu komið upp börnum sínum er hann andaðist fyrir aldur fram. Það var sár missir. Nína var glaðsinna og hlý kona. Ég var ætíð velkominn á heimili þeirra hjóna, en heim- sóknir voru strjálli en ég hefði viljað, enda var það nokkurt mál á þeim dögum að keyra frá Ak- ureyri út í Svarfaðardal, ekki síst þegar enginn var bíllinn. Góðhjartaðir menn lánuðu strák stundum bíl og þá skaust hann úteftir og hitti þar Nínu, fjöl- skyldu hennar og Ingu ömmu, sem bjó hjá dóttur sinni um nokkurra ára skeið. Það var alltaf stutt í bros og spaugsemi hjá Nínu og stundum örlaði á stríðni. Hún gat haft sterkar skoðanir, einkum ef henni fannst brotið á þeim sem minni máttar voru. Þá átti hún ekki erfitt með að færa rök fyrir máli sínu, oftast með þeim ár- angri að sá sem nærstaddur var féllst á röksemdina. Fyrir nokkrum árum fór Nína að finna fyrir þeim skelfilega sjúkdómi alzheimer, sem lagði hana að velli. Hún var kær frænka sem skilur eftir sig ljúf- ar minningar. Ég votta börnum hennar og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Guðmundur B. Kristmundsson. Ingibjörg Kristín Björnsdóttir HINSTA KVEÐJA Við rúm þitt sat ég móðir mín, og mörgu vildi segja frá, sá þig hlusta og höndin þín hafði líka margt að tjá. Frá mér hvarfstu hægt um dyr í heim sem sól ei fær að sjá, vegir allir afskekktir allt svo tómt og sálin smá. Á borði þínu er blóma rós, blíðar minningarnar streyma. Í hjarta mínu logar ljós, í ljósi mínu átt þú heima. Hvíl í friði elsku mamma mín. Þín dóttir, Ellý Sæunn. Mig langar með fáeinum orð- um að minnast góðrar vinkonu og samstarfskonu, Helgu Dan eins og við kölluðum hana. Góð kynni okkar Helgu hófust við mjög sérstakar aðstæður þeg- ar sameiginleg vinkona okkar missti son sinn. Við Helga stóð- um saman í uppvaskinu og ég hafði orð á því hversu öflug hún væri og bauð henni vinnu hjá mér í Café Flóru. Helga var heyrn- Jónína Helga Daníelsdóttir ✝ (Jónína) HelgaDaníelsdóttir fæddist í Reykjavík 3. september 1940. Hún lést á líknar- deildinni í Kópa- vogi 29. nóvember 2012. Útför Helgu fór fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 7. desember 2012. arskert og hafði átt erfitt með að fá vinnu en fyrir Café Flóru var hún mikill fengur. Það var sama hvenær ég kallaði eftir henni, hún var alltaf tilbúin og stóð vaktina und- ir miklu álagi oft á tíðum en kvartaði aldrei. Samskipti okkar fóru fram á sms þar sem Helga gat ekki talað í síma vegna heyrnarskerðingar og þegar allt var á floti í Flórunni og ég þurfti á henni að halda, oft með stuttum fyrirvara, sendi ég henni sms og alltaf kom sama svarið: „Er á leiðinni.“ Það var einstakt hvað hún átti gott samband við yngri kynslóð- ina, hún hafði svo jákvæð áhrif með sínum groddalega húmor, stóð fyrir ýmsum óvæntum og ógleymanlegum uppákomum og þegar haldin voru starfsmanna- partí var hún Helga okkar hrók- ur alls fagnaðar. Helga var skemmtilega stjórnsöm og oft var gaman að fylgjast með því hvernig hún sá til þess að allir ynnu samkvæmt hennar skipu- lagi en af því leiddi að borin var mikil virðing fyrir henni á vinnu- staðnum. Við Helga áttum ein- stakt samband, við vorum afar góðar og nánar vinkonur og átt- um margt sameiginlegt. Helga tengdist eyjunum mínum grænu og töluðum við oft saman á fær- eysku, þannig gátum við spjallað um okkar eigin leyndarmál innan um aðra. Það var svo gott að faðma hana Helgu mína, hlýjan og góðvildin streymdi frá henni og er ég svo mikið þakklát fyrir að hafa náð að hitta hana og eiga með henni góða stund stuttu áður en hún kvaddi. Við fjölskyldan, sem og starfs- fólk Café Flóru, viljum þakka Helgu Daníelsdóttur samferða- sporin, hennar er og verður sárt saknað, en minning um trygga, hlýja og umfram allt skemmti- lega konu lifir. Við sendum fjöl- skyldu Helgu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Marentza Poulsen. Þá er komið að kveðjustund- inni. Margar minningar koma upp í huga okkar þegar við rifjum upp allar samverustundirnar sem við áttum með Helgu á Flórunni. Það var alveg sama hvað hún var beðin um, hún reddaði því. Hún var alltaf glöð og jákvæð, sama hvað gekk á. Hún var ósérhlífin, góð manneskja og skemmtileg. Við vissum að vaktin yrði góð ef hún var á staðnum. Allir sem þekktu hana nutu góðmennsku hennar. Hún dekraði við okkur Flórubörnin, skutlaði okkur heim og kom við í ísbúðinni eftir erfiða vakt. Þá var alltaf tilhlökkun hvaða skemmtiatriði Helga kæmi með í Flóruboðunum okkar, þau vöktu ávallt lukku. Það sem við hlógum. Við minnumst Helgu með hlý- hug og þökk í hjarta. Við vottum aðstandendum hennar samúð okkar. Þórunn, Rakel, Anna Björk, Hildur Úa, Hrafnkell og Guðmundur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, lést á Landspítalanum laugardaginn 1. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Kristján Freyr Karlsson, Úlfar Karlsson, Erna Sæbjörnsdóttir, Steinunn, Alda og Þórey. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og tengdasonur, WILLIAM ÞÓR HAGALÍN, Háeyrarvöllum 54, Eyrarbakka, sem lést fimmtudaginn 6. desember, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugar- daginn 15. desember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög. Sigríður Óskarsdóttir, Unnur Huld Hagalín, Elías Ívarsson, Þórhildur Ósk Hagalín, Tobias Fuchs, Guðmundur Gísli Hagalín, Ívar Þór, Rúnar Orri, Ari Hrafn og Karítas, Óskar Magnússon, Þórunn Vilbergsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRYGGVI SIGURGEIRSSON, Þrúðvangi 22, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 9. desember á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 19. desember kl. 13.00. Sigrún Jóna Marelsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Þóranna Tryggvadóttir, Ingi Óskarsson, Jón Ásgeir Tryggvason, Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, Líney Tryggvadóttir, Jónatan S. Svavarsson, Sigurgeir Tryggvason, Ásta S. Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Maðurinn minn og faðir okkar, ADÓLF ADÓLFSSON, lést mánudaginn 10. desember. Mónika Magnúsdóttir, Ragnheiður María Adólfsdóttir, Magnús Már Adólfsson, Steinunn Adólfsdóttir, Soffía Adólfsdóttir. ✝ MATTHÍAS RAGNARSSON sem lést á Sjúkrahúsi Ísafjarðar 8. desember verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 15. desember kl. 14.00. Vinir hins látna. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, sonur, stjúpi, afi , bróðir og mágur, INGVAR RAGNAR HÁRLAUGSSON Brekkugötu 45, Akureyri, er látinn. Svala Hjaltadóttir Guðrún Guðmundsdóttir, Halldór Haraldsson Íris Björg Helgadóttir, Aníta Ósk Einarsdótir, Helga Guðrún Þorbjörnsdóttir, Guðrún S. Hárlaugsdóttir, Kristján Kristjánsson Guðmundur Hárlaugsson, Margrét Ragnarsdóttir Elín M. Hárlaugsdóttir, Garðar Sigursteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.