Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 Í byrjun desembermánaðar lést góður granni okkar á Greni- melnum, Jóhannes Kjarval. Þau hjónin, hann og Gerður Helga- dóttir, hafa búið í húsinu gegnt okkur í nær tvo áratugi. Margoft hefur maður mætt þeim á leið heim úr vinnu eða úr Melabúð- inni, sérstaklega á sumrin, átt miklar og stundum talsvert ákaf- ar viðræður um ástandið í þjóð- félaginu við garðvegginn þar sem fyrir kemur að safnist saman tals- verður mannfjöldi. En stundum var sest yfir kaffisopa í garðinum hjá þeim, sem er einn sá fallegasti í allri götunni, og við svo ævin- týralega heppin að búa beint á móti. Jóhannes var góður fagmaður og var hlutskipti hans lengstum að sinna skipulagsmálum. Var fróðlegt að kynnast hugmyndum hans í þeim efnum enda átti hann ekki langt að sækja smekkvísi og handlagni, og hann benti manni oft á ýmislegt sem betur mætti fara í nærumhverfinu. En hann var líka fastur fyrir og kostaði það hann m.a. starfið þegar hann reyndi að koma í veg fyrir skipu- lagsslys í miðbæ Hafnarfjarðar, sem raunar tókst ekki. Annað lít- ið dæmi er þegar hann eitt sumar stóð dag eftir dag yfir gömlum bíl, sem hann átti, skrapaði ryð, kítt- aði og menjaði og málaði þar til bíllinn varð sem nýr. Lengi barðist hann við krabba- meinið af miklu æðruleysi en vissi að hverju dró. Hann gekk frá öll- um sínum málum af kostgæfni og þrátt fyrir veikindin týndi hann ekki kímnigáfunni. Þannig héldu þau Gerður upp á sextugsafmæli hennar í sumar og fór stór hluti samkomunnar fram úti í garðin- um í mjög góðu veðri. Systkini Gerðar eru mörg og sum nokkuð hávær og hafði Jó- hannes orð á því daginn eftir að það væri heppilegt að geta haft þau úti, því þegar þau sætu öll inni í stofu og allir töluðu í einu heyrðist ekki neitt í neinum. Jóhannes og Gerður voru mjög samrýmd og maður hugsaði oft- ast um þau saman. Við sendum Gerði, Sveini og Þóru, börnum þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Sigríður Kristinsdóttir og Jón Torfason. „Sæll Jói minn, hvað segir þú gott?“ „Allt djöfullegt, en þú?“ Þetta var oftar en ekki svar Jóa, þegar hann fékk þessa alíslensku kurteisisspurningu. Viðmæland- inn hrökk í kút og og samtalið fékk óvæntan inngangsvinkil. Þetta var auðvitað húmor Jóa og leið hans til að hrista upp í hlut- Jóhannes S. Kjarval ✝ Jóhannes S.Kjarval fæddist í Reykjavík 26. júní 1943. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 1. desember 2012. Útför Jóhann- esar fór fram frá Fossvogskirkju 12. desember 2012. unum og samtalið varð oftar en ekki annað og meira en kurteisishjal í fram- haldinu. Ég kynntist Jóa árið 1984 þegar ég kom heim að af- loknu arkitektanámi og hóf störf á Borg- arskipulagi Reykja- víkur þar sem hann starfaði. Ég ungur og óreyndur, hann eldri og reyndari og varð hann eiginlega minn leiðbeinandi næstu nokkur árin. Við urðum strax góðir mátar og unnum vel saman að ýmsum verkefnum á þeim tíma. Eitt af okkar skemmtilegustu verkefnum á Borgarskipulagsárunum var end- urgerð yfirborðs Laugavegar í tveimur áföngum frá Banka- stræti að Frakkastíg. Verkefnið átti hug okkar allan og vorum við innviklaðir í alla þætti verksins, frá stýringu, yfir í hönnun, sam- vinnu við tæknimenn gatnadeild- ar, veitustofnana og við fram- kvæmdaraðilann. Við hönnuðum trjágrindur, trjáristar, völdum götuljós, mátuðum granít og hellur og fórum austur fyrir fjall til að velja götutrén. Jói tók við skipulagsdeild Hafnarfjarðar- bæjar árið 1987 og varð það úr að hann lokkaði mig í Fjörðinn árið 1988 þar sem við unnum saman næstu fimm árin er ég hóf minn eiginn stofurekstur og hef stund- að síðan ásamt Jakobi Líndal. Á þessum árum unnum við Jói sam- an að mörgum áhugaverðum verkefnum í Hafnarfirði og mynduðum tveggja manna skipu- lagsdeild bæjarins. Auk verkefna á vegum bæjarins tókum við þátt í samkeppni um framtíðarskipu- lag Geldinganess í Reykjavík og unnum að því verkefni heima hjá Jóa og Gerðu á Ásvallagötu. Þetta veitti okkur ákveðinn innblástur við okkar daglegu störf og ekki skemmdi að við unn- um til verðlauna fyrir tillöguna. Ég var alltaf að suða í Jóa um að hann gæfi mér áritaða teikningu, svo ég gæti státað af því að eiga Jóhannes S. Kjarval á vegg, en tókst aldrei að lokka hann til þess. Eftir að samstarfi okkar lauk héldum við ávallt sambandi, hitt- umst oft á skipulagssviði borgar- innar eftir að hann hóf störf þar að nýju og töluðumst við í síma, oft um fagið eða Kidda kött, sem hann lét mig stundum halda að hefði verið nefndur eftir mér, en oftar um börnin okkar, en Sveinn og Þóra, börn Jóa, voru honum ávallt ofarlega í huga. Þegar ég spurði Jóa skömmu áður en hann lést, hvort Þóra væri ekki ánægð í nýja starfinu, svaraði hann neit- andi. Ég hváði og endurtók spurninguna þar sem ég trúði vart eigin eyrum og hann endur- tók neitunina, svo bætti hann við: „Hún er ekki ánægð Kiddi minn, hún er alsæl,“ svo hló hann. Hann fékk viðmælandann enn og aftur til að hrökkva í kút. Þetta voru okkar síðustu samskipti, ég náði því miður ekki að kveðja minn góða vin og mentor eins og ég hefði viljað, en hann gluggar kannski í þessi fátæklegu kveðju- orð mín frá nýjum vistarverum. Elsku Gerða, Svenni og Þóra, ég votta ykkur mína dýpstu samúð, megi minningin um einstakan mann verða ykkur stoð í sorginni. Kristján Ásgeirsson. Kveðja. Ég vil þakka vini mínum Jó- hannesi S. Kjarval, arkitekt, sam- fylgdina á lífsgöngunni og kveð hann með ljóði Ágústs Böðvars- sonar. Sá einn, sem reynir skynjar best og skilur, hve skin frá vinarhug er gott að finna. Í hjarta þér bjó fegurð ást og ylur, sem innstu lífsins rætur saman tvinna, en kærleikurinn er það ljós á leið, sem lýsir skærast mannsins æviskeið. Jón Kr. Ólafsson, söngvari, Bíldudal. Fallinn er frá frá góður sam- starfsmaður og kær vinur, Jó- hannes Kjarval arkitekt. Jóhannes tókst á við illvígt krabbamein um nokkurt skeið og sýndi í þeirri baráttu aðdáunar- verðan styrkleika. Ég kynntist Jóhannesi fyrst fyrir tuttugu árum þegar ég og fleiri arkitektanemar frá Noregi sóttum námskeið á Íslandi, nánar tiltekið í Hafnarfirði, þar sem Jó- hannes var skipulagsstjóri. Jói útvegaði okkur húsnæði og sinnti einnig gagnrýni og kennslu. Fljótt kom í ljós að þar var góð manneskja og ástríðufullur fag- maður á ferð eins og ég sann- reyndi síðar þegar við urðum samstarfsfólk á Borgarskipulagi. Jóhannes var mikilvægur hlekkur í öllum ákvörðunum um skipulag miðborgarinnar frá því hann varð deildarstjóri á þróun- arstofnun borgarinnar sem svo varð Borgarskipulag árið 1980. Nokkrum árum síðar tók hann við stöðu skipulagsstjóra Hafnar- fjarðar og átti þar farsælan starfsferil en sneri svo aftur til Reykjavíkurborgar árið 1999 til að sinna skipulagsmálum mið- borgarinnar sem hann hafði óþrjótandi áhuga á. Jóhannes stýrði fjölmörgum verkefnum á vettvangi skipulags- mála og hönnunar hjá Reykjavík- urborg. Hann var leiðandi í allri stefnumótun en kom einnig að fjölmörgum hönnunarverkefnum í miðborginni og þar naut hann sín vel. Jóhannes var gefandi vinnu- félagi með sterkar skoðanir en átti auðvelt með að hlusta á sjón- armið annarra. Hann var glað- lyndur húmoristi, mikill smekk- maður og hafði eitt skemmtilegasta orðafar sem ég þekki. Áttum við einstakt sam- starf og deildum áhuganum á fag- inu okkar. Í seinni tíð hvatti ég Jóa mjög til að skrifa um skipu- lagsmál borgarinnar auk þess sem við stefndum á að gera leið- arvísi um hugtök og skilgreining- ar sem tengjast skipulagsmálum og borgarmótun. Jóhannes átti skilið eftir sitt óeigingjarna starf í þágu betra borgarumhverfis að fá tíma til að miðla áfram þekkingu sinni eins og hugur stóð til. Sá tími gafst því miður ekki. Sjálf fann ég dýrmætan vin í Jóhannesi. Við töluðum um vinn- una en líka um tilveruna. Jói kunni að hrósa og hvatti mig áfram með sönnum vinarhug. Hann bar umhyggju fyrir sam- starfsfólki sínu, var skilningsrík- ur, víðsýnn og vel lesinn. Jói var mikill fjölskyldumaður sem var stoltur af börnunum sínum Þóru og Sveini og skotinn í konunni sinni henni Gerðu. Hann ljómaði þegar hann talaði um fólkið sitt. Lífið hafði kennt honum hvað mestu máli skiptir. Mér er þungt um hjartarætur vegna fráfalls Jóa. Hann var flott- ur maður sem mikill missir er að. Það er sárt að hugsa til þess að hann sé ekki lengur meðal okkar og þrátt fyrir langan aðdraganda er erfitt að sætta sig við orðinn hlut. Efst í huga mér er þó þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa þekkt Jó- hannes, þakklæti fyrir störf hans á vettvangi skipulagsmála í Reykjavík, þakklæti fyrir hvatn- inguna, það sem hann kenndi mér og allar góðu stundirnar. Ég ber ómælda virðingu fyrir æðru- leysinu sem einkenndi hann fram á síðasta dag. Einstakur sómamaður hefur kvatt okkur. Hugur minn er hjá fjölskyldu Jóhannesar. Með virðingu og söknuði. Ólöf Örvarsdóttir. Kær samstarfsfélagi og góður vinur okkar Jóhannes Kjarval er fallinn frá. Við vorum svo sann- arlega að vona að við fengjum að hafa hann lengur hjá okkur en, eins og hann sagði sjálfur, „svona vildi ég fara“ og hann gerði það nákvæmlega þannig alveg til enda. Hann fékk góðan tíma með Gerðu og krökkunum til að fara í gegnum lífið og tilveruna, eins og allir ættu að gefa sér tíma til að gera með sínum nánustu. Jóhann- es var einstakur vinnufélagi og verður sárt saknað. Eftir að hann veiktist aftur af þessum erfiða sjúkdómi sagði hann okkur að hann hefði verið að deyja á hverjum degi, svo tók hann sig til og breytti um hug- arfar og fór að lifa á hverjum degi. Í þessu felst svo óendanlega mikill lærdómur fyrir okkur hin. Þannig var Jóhannes, endalaus viskubrunnur, ekki bara í skipu- lagsmálum heldur á alla kanta. Við erum fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þess að hafa átt hann að sem sam- starfsfélaga og vin. „Einstakur“ er orð „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðm- lagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Við sendum Gerðu, Sveini, Þóru og þeirra nánustu okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. samstarfsfélaga á skipu- lags- og byggingarsviði Reykja- víkurborgar, Margrét Leifsdóttir. Sárt er þín saknað, engillinn minn, og sorgin hér okkur lamar. Nærveru þinni fyrir ég finn þó faðmað þig geti ei framar. Ég sit hérna og stari á myndina af þér Ólafur Felix Haraldsson ✝ Ólafur FelixHaraldsson fæddist á Patreks- firði 14. október 1970. Hann lést af slysförum 20. októ- ber 2012. Útför Felix fór fram frá Patreks- fjarðarkirkju 3. nóvember 2012. svo glöðum og fullum af lífi. Almættið einn og bros- ið þitt sér, það eflaust hann gleð- ur og hrífi. Kveð ég þig nú, mitt ljúfa ljós, því lífið áfram gengur. Legg ég á leiðið þitt hvíta rós, þú ljúfi, fallegi drengur . (Heiða Jóns.) Kveðja frá Margréti Guðlaugsdóttur frænku.Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, ÞÓRU JÓHÖNNU HÓLM. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans við Hringbraut fyrir frábæra umönnun. Magnús G. Pálsson, Karl Óskar Magnússon, Guðný Bjarnarsdóttir, Þóra Margrét Karlsdóttir, Magnús Gunnar Karlsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru GERÐU R. JÓNSDÓTTUR, Hvassaleiti 147, Reykjavík. Sveinn B. Hálfdánarson, Hjalti Jón Sveinsson, Soffía Lárusdóttir, Óttar Sveinsson, Alda Gunnlaugsdóttir, Hanna Friðriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL MAGNÚS JÓNSSON frá Klettstíu, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 14. desember kl. 11.00. Lára Margrét Benediktsdóttir, Jón Karlsson, Ingrid Karlsson, Áslaug Lára Jónsdóttir, Scott Lamb, Axl, Lilý, Birgitta Sif Jónsdóttir, Bergþór Ásgeirsson, Sóley Sif, Louise Karlsson Jónsdóttir, Deisa G. Karlsdóttir, Tommy Holl, Hanna Närhi. Elsku mamma mín. Það er ljúf- sárt að kveðja þig þennan desem- berdag. Minningarnar streyma fram og ég er hissa á því að tárin virðast eiga endalausa uppsprettu. Mamma mín, ég vissi þegar ég komst til vits og ára að líf þitt ein- kenndist af miklum erfiðleikum allt frá þeim degi er þú misstir pabba þinn og í raun mömmu þína líka, einungis þriggja ára gömul. Í kjöl- farið varstu send í fóstur og þótt margir hafi reynst þér vel skorti þig ávallt hlýju og elsku þá sem maður einungis fær frá foreldrum sínum. Atburður sem þessi getur ekki annað en haft djúp áhrif á þann sem verður fyrir honum og þar varst þú ekki undanskilin. Framan af gerðir þú þitt besta í lífinu, þú varst fyrirmynd dætra þinna, ótrúlega dugleg og eljusöm, skemmtileg, hannyrðakona mikil og fluggáfuð. Húmorinn, eljuna og dugnaðinn gafstu okkur systrum og það er ég þakklát fyrir enda varstu stolt af okkur öllum fjórum og öllu því sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Oft á tíðum einkenndist líf þitt af erfiðleikum og þú varst eirðarlaus. Við Hulda fylgdum þér um margt í lífinu bæði landfræðilega og and- lega ef svo má að orði komast. Þeg- ar ég var sex ára kynntist þú Bjarna, sem varð síðar annar eig- inmaður þinn. Sá gekk okkur Kristín Guðmundsdóttir ✝ Kristín Guð-mundsdóttir fæddist í Neskaup- stað 31. janúar 1949. Hún lést á heimili sínu 26. nóvember 2012. Útför Kristínar fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 10. desember 2012. Huldu í föðurstað og um árabil komst nokkur ró og ham- ingja inn í líf þitt, sem óhjákvæmilega gerði okkur Huldu ham- ingjusamar líka, ver- andi litlu stelpurnar þínar. Þú gafst okkur Huldu bestu gjöf í líf- inu á þessum tíma, tvær yngri systur þær Birnu Dís og Fjólu – hvernig þakkar maður fyrir slíkt ríkidæmi? En svo tók að halla undan fæti, sjúkdómur þinn ágerðist og eftir skilnaðinn skildi leiðir okkar oft. Það er von mín, mamma mín, að þú vitir núna að reiði mín og vonbrigði voru tilfinningar fram sprottnar vegna umhyggju fyrir þér, um- hyggju fyrir betra lífi þér til handa. Mér mistókst að hjálpa þér og kannski valdi ég ekki réttar leiðir til þess. En eins og góð manneskja benti mér á hjálpar enginn þeim sem ekki vill hjálpa sér sjálfur. Elsku mamma mín, elsku kell- ingin mín, fröken fix eins og þú kallaðir mig svo oft. Nú ertu á betri stað, nú ertu litla barnið, litla barn- ið sem þráði ekkert annað en að kúra í hálsakoti pabba síns og mömmu. Þau hafa tekið vel á móti þér og nú verður allt bjart og fal- legt hjá þér, það áttu svo skilið. Ég kveð þig mamma mín með bæninni sem þú kenndir mér með þakklæti fyrir allt sem þú gafst mér og kenndir í lífinu Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Þín elskandi dóttir, Þyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.