Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 42

Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Garðar Fánar og fánastangir á tilboði Fánar og fánastangir á 25% afslætti út desember. Frábær gjöf fyrir alla húseigendur. Pantanir í gegnum heimasíðuna flagg.is flagg.is facebook.com/flaggisland Fatnaður Íslensk hönnun á frábæru verði Verð frá 990 til 5990 kr. Peysur, húfur, jakkar, buxur og allt þar á milli. Skip- holti 25, Reykjavík. Opið virka daga 14:00 - 19:00 og laugardaga 12:00 - 16:00. Lokum 23. desember. Gisting Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að hafa hund í Skógarhlíð. Er einnig með fleir sumarbústaði við Akureyri og allir með heitum potti. orlofshus.is Leó 897 5300Snyrting Babaria-snyrtivörur loksins á Íslandi. Babaria er fjölbreytt vörulína sem er unnin úr náttúrulegum hráefnum og hentar þörfum allrar fjölskyldunnar fyrir alla daglega umhirðu húðar. Vörurnar fást í netversluninni www.babaria.is Hljóðfæri Ukulele í úrvali, verð frá kr. 6.900. Gítarinn ehf, Stórhöfði 27 S:552 2125 www.gitarinn.is, gitarinn@gitarinn.is Iðnaðarmenn Alaska ehf. Almennt viðhald hús- eigna. Þarftu að breyta, bæta eða lagfæra? Smíðavinnu, parketlögn, rafvirkjun? Hafið samband, í síma 848 1488, gpEinarsson@gmail.com Tómstundir STIGA-borðtennisborð Fáanlegar ýmsar gerðir fyrir heimili, skóla og fyrirtæki. www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Fótboltaspil 120 cm frá Riley Skemmtilegt spil, svo leggur maður það bara upp að vegg eftir notkun. Kr. 38.100 www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. BÚÐU TIL ÞÍN JÓLAKORT Gleðileg jól! Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT DAGATAL JÚLÍ 20 08 Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!!...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT MYNDA- ALBÚM Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - sími: 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-, eftirlits- og gæslustörfum. Uppl. í s. 861 6164. Ýmislegt Ný sending af tískuúrum Margir litir. Tilvalin jólagjöf. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. TILBOÐ - TILBOÐ -TILBOÐ TILBOÐ: Einkar mjúkir og þægilegir dömuskór úr mjúku leðri, skinnfóðr- aðir. Stakar stærðir Tilboðsverð: 3.500. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Hringtreflar úr silki og bómull 10 litir. Verð kr. 2.900,- Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Hringtreflar margir litir Verð kr. 2.990. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Hárbönd í úrvali margir litir. Verð kr. 2.900. Skarthúsið, Laugavegi 44, sími 562 2466. Bílar Dodge Charger, 2007-árgerð Ekinn aðeins 29 þús. m. Sportleg græja sem kostar ekki of mikið. 20" álfelgur. Eyðsla í blönduðum akstri 11,2 lítr. Hvor vilt þú amerískan fullvaxinn bíl eða Toyota Yaris á svi- puðu verði ? Verð aðeins 2.775.000. . www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið 12-18 virka daga. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Góður í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Er aldur færist yfir mig ég einhvern daginn fæ þig hitt. Ég klappa ögn á kollinn þinn og kannski flyt þér ljóðið mitt. Þér framundan er byggðin breið að baki þeir sem luku för. Þar helst ég kýs að halla mér er horfið verður lífsins fjör. (JE) Þannig kemst móðir mín, Jón- björg Sesselja Eyjólfsdóttir, að orði í ljóðinu „Gamall vinur“ en í því ljóði ávarpar hún stóra stein- inn á Bakkamelnum á Borgar- firði eystra. Í kirkjugarðinum á Bakka- Jónbjörg Sesselja Eyjólfsdóttir ✝ Jónbjörg Sess-elja Eyjólfs- dóttir fæddist á Bjargi, Borgarfirði eystra, 14. ágúst 1931. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 16. nóvember 2012. Útför Jón- bjargar fór fram frá Egilsstaða- kirkju 1. desember 2012. melnum, að baki steinsins, hefur nú móðir mín fengið sinn hinsta hvílu- stað, við hliðina á pabba sem lést í vor. Í fjarska skvaldraði brimið við steina og strönd, golan var köld en nýfullt tunglið lét ekki sjá sig. Þorpið hennar kúrði í snjónum og ljósin kviknuðu eitt af öðru í hús- unum. Á útbæjunum var aðeins eitt ljós, á Framnesi, þar sem systir hennar kærust var komin til að fylgja henni alla leið. Það er af sem áður var þegar ljós var á hverjum bæ út með firðinum. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka og svo ótal margt að þakka. Allar sögurnar sem hún sagði okkur á kvöldin. Bækur lesnar, sumar aftur og aftur og þegar hún dottaði yfir lestrinum eftir langan vinnudag leiðréttum við hana gjarnan og skildum ekkert í því af hverju hún sofnaði svona sitjandi á stólnum. Virðinguna sem hún sýndi, þolinmæðina og þrauseigjuna, hlýjuna og hláturinn, umburðar- lyndið og æðruleysið, hún hlust- aði, gaf ráð, kom með hina hliðina á málum þótt erfitt væri að skilja það á æsku- og unglingsárunum. Skilningurinn kom síðar. Hún var ákaflega stolt af því að músíkin væri afkomendum hennar í blóð borin. „Hún amma ykkar hefði verið ánægð,“ sagði hún gjarnan þegar lítið lag fædd- ist, stundum við texta eftir hana eða pabba. Hún hafði unun af söng og raulaði yfirleitt við vinnu sína heima við. Hún kunni ógrynni laga og texta, þula og ljóðabálka. Þekkti alla gömlu söngvarana sem sungu síðasta lag fyrir fréttir. Síðustu mánuðina var hún far- in að tapa minni og fann mjög fyrir því. Fyrir kom að hún mundi kannski ekki eina línu í heilum kvæðabálki. Þá unni hún sér ekki hvíldar fyrr en hún var búin að finna línuna aftur og setja hana á réttan stað. Ég man hrifningu hennar yfir fyrstu sóleynni á vorin, fallegu steinunum, frostrósunum á gluggunum, hundslappadrífunni, briminu, ilminum af blóðberginu, fegurð náttúrunnar allrar. Hún unni Borgarfirði. Þar voru bönd- in órjúfanleg hvar svo sem henn- ar gististaður var. Hún fór heim á Skriðuból á hverju ári og síðustu skiptin sagði hún ævinlega eftir dvölina þar að hún vonaðist eftir að geta farið þangað aftur, geta fengið að sjá fjöllin sín einu sinni enn. Þá væri hún sátt. Ég er innilega þakklát fyrir að hafa fengið að hafa foreldra mína báða þetta lengi af minni ævi. Þakklát fyrir það veganesti sem þeir létu mig hafa út í lífið og þó ýmislegt væri ógert eða ósagt þegar þeir kvöddu þennan heim þá veit ég að við munum taka upp þráðinn síðar. Hafðu þökk fyrir allt, mamma mín. Sigþrúður Sigurðardóttir. Fyrir tæpum fimmtíu árum er við hjónin keyptum okkar fyrstu íbúð leituðum við til Siddýjar og Tedda í Z-brautum. Hefur þeim hjónum fljótt orðið ljóst að við kunnum lítið til verka á þessu sviði og í góðmennsku sinni buð- ust þau til að koma og setja upp gardínurnar. Það voru okkar fyrstu kynni af þeim ágætu hjón- um. Árið 2000 tengdumst við hjónunum vinaböndum í gegnum Oddfellow og mundu þau að sjálf- sögðu ekki eftir gardínumálum okkar. Áttum við margar góðar og skemmtilegar stundir saman bæði hér heima og erlendis. Teddi var góður maður og tók veikindum sínum með miklu æðruleysi og stóð Siddý sem Theodór Steinar Marinósson ✝ Theodór Stein-ar Marinósson fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1932. Hann lést á heimili sínu 3. október 2012. Útför Theodórs fór fram frá Hall- grímskirkju 10. október 2012. klettur við hlið hans. Í byrjun október sl. kom svo kallið og því miður gátum við hjónin ekki fylgt honum síðasta spöl- inn. Með þessum fá- tæklegu orðum vilj- um við þakka fyrir samfylgdina. Það voru forréttindi að kynnast Tedda. Þessu einstaka ljúf- menni munum við aldrei gleyma. Við vitum að það hefur verið tekið vel á móti honum í Sólarlandinu og hann hefur gengið brosandi á móti skapara sínum. Siddý mín, sárastur er söknuðurinn hjá þér og þinni fjölskyldu og biðjum við Guð að styrkja ykkur í sorginni. Á kveðjustund með harm í hug er huggun fólgin þó svo mikil í hve mæt og ljúf er minning þess, sem dó og drottinn gefur lífi líkn en látnum frið og ró. (Guðmundur Kristjánsson) Ólafur Ingólfsson og Bjarghildur Jósepsdóttir (Óli og Bagga). Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf grein- in að hafa borist á hádegi tveim- ur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.