Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Golfhermir
DOUBLE EAGLE 2000
Frábær aðstaða til að spila golf.
Þú getur valið um 9 golfvelli,
St. Andrew´s, Coeurd Alene,
Firestone, Pebble Beach,
Druids Glen,
Doral Resort,
Emirates.
Óþarfi að týna
sveiflunni í vetur
Hægt er að bóka
fasta tíma í vetur
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Í dag er gott að kaupa hluti fyrir
heimilið eða fjölskylduna. Hvort sem þú vilt
draga úr kostnaði eða auka tekjur þínar lofa
hugmyndir þínar góðu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér líður eins og tilfinningabrunnur
þinn sé á þrotum. Treystu á orðsnilld þína og
vertu umfram allt sannur í framkomu. Fólk er
farið að taka eftir þér og lítur á þig sem fyr-
irmynd.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur alltaf notið þess mjög mik-
ið að veita öðrum hjálp. Mundu að halda þig
við upphaflega áætlun, hreyfing a.m.k. þrisv-
ar í viku.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert gæddur góðum hæfileikum en
hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta
þér þá. Láttu samt ekki á neinu bera, þú ferð
langt á þrautseigjunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vendu þig á að setja hvern hlut á sinn
stað og umfram allt að leggja á minnið hvar
sá staður er. Treystu skilningarvitunum frek-
ar en upplýsingum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst athygli annarra beinast að
þér í of ríkum mæli. Ef þú heldur að enginn sé
að horfa, hefurðu rangt fyrir þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vinnufélagi þinn kemur þér á óvart og þú
skalt vera jákvæður í hans garð, þegar undr-
unin rennur af þér. Mundu að hver er sinnar
gæfu smiður.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert afslappaður og í góðu
jafnvægi og ættir því að vera í stakk búinn til
að sýna hvað í þér býr. Taktu því vel eftir og
reyndu að skilja kjarnann frá hisminu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Stundum verður bara að kýla á
hlutina en ekki bíða þess að þeirra tími sé
kominn. Sama hvort er, þá ert þú rétta mann-
eskjan til að ná meiriháttar árangri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er mikil hætta á átökum og
því ættirðu að forðast að lenda í deilum við
lögreglu, yfirmenn þína eða foreldra. Hvað-
eina sem þú gerir færir þér ávinning.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert fyrirmynd margra. Hvað er
það í fari vinnufélaga sem kemur þér svona
úr jafnvægi? Gerðu eitt góðverk á dag til jóla.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það mun gleðja þig að geta hjálpað
vini þínum í dag. Einhver lumbra er í þér
þessa dagana, en það klárast vel fyrir jól.
Taktu gleði þína.
Í klípu
„NÚ JÁ? ÞÚ MÁTT SEMSAGT BLAÐRA ENDA-
LAUST UM EKKI NEITT, EN EF ÉG GELTI
EINU SINNI ER ÉG ÓÞÆGUR HVUTTI?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ERU ÞEIR EITTHVAÐ AÐ BÍTA Í DAG,
HÓFÍ MÍN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... logi sem aldrei
brennur út.
Stefnu-móta-þjónusta
HENT ÚT ÚR
KRINGLUNNI! ... AFTUR!
ÉG VONA AÐ ÞÚ SÉRT
ÁNÆGÐUR MEÐ SJÁLFAN ÞIG!
ÞÚ GLEYMDIR AFTUR
AÐ KAUPA AFMÆLIS-
GJÖF FYRIR MIG, ER
ÞAÐ EKKI?
ÉG GLEYMDI
HENNI EKKI,
HELGA ...
... EN HVAÐ
GETUR MAÐUR
GEFIÐ KONU
SEM Á ALLT?!
HÚN ER ALLAVEGA EKKI
REIÐ LENGUR.
Víkverji er ekki frá því að hannskynji aukið stress í umferðinni
í höfuðborginni þessa dagana. Ítrek-
að finnst honum bílstjórar taka
glannalega framúr, jafnt vinstra sem
hægra megin. Óþolinmæði bílstjóra
kemur meðal annars fram í því að
ekið er upp að næsta bíl þannig að
varla kemst frímerki á milli. Slíkt
aksturslag gefur vitaskuld ekki mik-
ið svigrúm og komi eitthvað upp á er
aftanákeyrsla nánast óhjákvæmileg.
x x x
Þá hefur Víkverji tekið eftir því aðsumum ökumönnum liggur svo
á þessa dagana að þeir gefa í þegar
kemur gult ljós þótt þeir séu allt of
seinir og enda með að fara yfir á
rauðu, sem er auðvitað stór-
hættulegt.
x x x
Víkverji hefur áttað sig á því á tíð-um ferðum úr og í vinnu að á
umferðaræðum á borð við Miklu-
brautina vinnst ekkert með því að
gefa í. Ljósin sjá til þess að halda
meðalhraðanum niðri hversu hratt
sem ekið er á milli þeirra. Margir
ökumenn virðast hins vegar halda að
þeir séu í stórsvigi, sérstaklega þeir
sem eru á jeppum, skjótast milli bíla
til að ná örugglega rauða ljósinu
fjórum metrum framar en hefðu þeir
ekið í takt við umferðina. Þeir halda
kannski að þeir séu frábærir öku-
þórar, en aksturslag þeirra byggist
á því að aðrir geri ekkert óvænt.
Þeir geta hins vegar verið vissir um
að hafa eytt meira bensíni en þeir
hefðu þurft að gera og það er ekki
skynsamlegt á þessum tímum dýrs
eldsneytis, sem ekkert bendir til að
muni lækka í verði á næstunni.
x x x
Víkverji er með mæli í bíl sínumsem segir honum hvað hann
eyðir miklu bensíni. Þessi ágæti
eyðslumælir er auðvitað að vissu
leyti óþolandi, stöðug áminning um
að peningarnir fuðri upp í hvert
skipti sem ýtt er á bensíngjöfina, en
um leið aðhald, sem verður til þess
að Víkverji gætir þess að halda jöfn-
um hraða og reynir að komast sem
lengst á dropanum. En tankurinn
tæmist nógu hratt samt.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Engill Drottins setur vörð kringum þá
sem óttast hann og frelsar þá.
(Sálmarnir 34:8)
Pétur Stefánsson ákvað að slátvær flugur í einu höggi eða
raunar miklu fleiri en það. Hann
sendi þeim fjölmörgu sem eiga af-
mæli í desember kveðju:
Í ruslinu þó að ljóð mitt lendi
læt ég það flakka hvort eð er:
Afmæliskveðju öllum sendi
sem eru fæddir í desember.
Ármann Þorgrímsson bregður á
leik með limru:
Flest hef ég boðorðin brotið
þess besta í lífinu notið
það segi ég satt
þó sigldi oft bratt
ég alltaf hef ofaná flotið.
Margt er forvitnilegra bóka sem
koma út fyrir jólin og ættu að
gleðja hagyrðinga, þó að eiginlegur
tilgangur þeirra ritverka sé ekki
endilega að breiða út fagnaðar-
erindi skáldskaparins. Þar á meðal
er Hjartarættin með niðjatali
hjónanna Steinunnar Guðlaugs-
dóttur og Hjartar Bjarnasonar. Í
bókinni er getið um Jón Oddsson
Hjaltalín, sem tók fyrstur upp
Hjaltalínsnafnið og var annar af
tveimur síðustu ábúendum í Vík og
hvarf þaðan að öllum líkindum vor-
ið 1752. Svo er vitnað í Sögu
Reykjavíkur um eftirfarandi frá-
sögn:
Jón var annálaður fjörkálfur og
oft var glatt á hjalla á heimili hans,
dans, vikivakar og drykkjuskapur.
Lyktir mála urðu þær að hann varð
að segja af sér embætti árið 1749
vegna óreglu og skulda. Til er viki-
vakakvæði, eignað séra Gunnari
Pálssyni, sem fjallar um óstjórnlegt
fjörið á hinum fornfræga land-
námsbæ meðan Jón og dönsk kona
hans, Mette Hansdóttir, réðu þar
ríkjum. Þetta skopkvæði var líkast
til ort í vandlætingarskyni af því að
guðsmanninum hefur þótt nóg um
léttúðina:
Hjá honum Jóni Hjaltalín
hoppa menn sér til vansa.
Allan veturinn eru þeir að dansa.
og
Þar er farið í vikivaka,
vita bæði frúr og menn,
sínum höndum saman taka,
síðan byrja dansleikinn.“
Að síðustu skemmtileg vísa Páls
Jónassonar úr bókinni Vísnagátum,
sem kom út fyrir jólin:
Ærslabelgur öllum þekk,
eftir henni Johnny gekk,
líka er hún lögð í sjó,
liggur alltaf meðfram snjó.
Lausnarorðið birtist á morgun.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af afmæliskveðju, dansi,
Hjaltalín og vísnagátu