Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna,
bókmenntaverðlauna kvenna, voru
kynntar í Aðalsafni Borgarbóka-
safns Reykjavíkur í gær. Alls eru
níu bækur tilnefndar til verðlaun-
anna, þrjár í hverjum flokki, þ.e.
flokki fagurbókmennta, fræðibóka
og barna- og unglingabóka. Fjöru-
verðlaunin voru fyrst veitt árið 2007
að frumkvæði hóps kvenna innan
Rithöfundasambands Íslands og
hafa verið veitt árlega síðan.
Í flokki fagurbókmennta eru til-
nefndar bækurnar Hvítfeld - fjöl-
skyldusaga eftir Kristínu Eiríks-
dóttur sem JPV gefur út, Ljós-
móðirin eftir Eyrúnu Ingadóttur
sem Veröld gefur út og Ósjálfrátt
eftir Auði Jónsdóttur sem Mál og
menning gefur út. Í umsögn dóm-
nefndar um Hvítfeld segir m.a.:
„Sagan er vönduð, vel heppnuð og
sérlega skemmtileg. Uppbyggingin
er snjöll og persónurnar ljóslifandi.
Stíllinn og textinn eru hnitmiðaðir
og táldraga lesandann.“ Um Ljós-
móðurina segir: „Persónusköpun er
lífleg og sannfærandi, sagan er efn-
ismikil og frásögn höfundar mynd-
ræn og lifandi.“ Um Ósjálfrátt segir:
„Stíllinn er áreynslulaus og léttur en
með þungri undiröldu, fullur af lág-
stemmdri kímni svo úr verður eins-
konar gleðilegur harmleikur.“
Í flokki fræðibóka eru tilnefndar
bækurnar Við góða heilsu? Konur og
nútímaheilbrigði í nútímasamfélagi í
ritstjórn Helgu Gottfreðsdóttur og
Herdísar Sveinsdóttur sem Há-
skólaútgáfan gefur út, Sagan af
Klaustrinu á Skriðu eftir Steinunni
Kristjánsdóttur sem Sögufélagið
gefur út og Reykholt: Archaeologi-
cal Investigations at a high status
farm in Western Iceland eftir Guð-
rúnu Sveinbjörnsdóttur sem Þjóð-
minjasafn Íslands gefur út. Í um-
sögn dómnefndar um Við góða
heilsu? segir m.a.: „Hér er fjallað á
hispurslausan en jafnframt nærfær-
inn hátt um persónuleg og oft við-
kvæm mál tengd heilsu kvenna.“
Um Söguna af Klaustrinu á Skriðu
segir: „Steinunn varpar ljósi á líf
þeirra sem lifðu og dóu í klaustrinu,
hún veltir fyrir sér hlutskipti þeirra
og þjáningum af næmni og á per-
sónulegan hátt sem þó verður aldrei
of rúmfrekur í frásögninni.“ Um
Reykholt segir: „Meginstyrkur bók-
arinnar liggur í ítarlegum lýsingum
á hinum víðfeðmu og margþættu
rannsóknum sem Reykholtsverk-
efnið náði yfir.“
Í flokki barna- og unglingabóka
eru tilnefndar bækurnar Gríms-
ævintýri eftir Kristínu Helgu Gunn-
arsdóttur sem Mál og menning gef-
ur út, Mitt eigið Harmagedón eftir
Önnu Heiðu Pálsdóttur sem Salka
gefur út og Randalín og Mundi eftir
Þórdísi Gísladóttur sem Bjartur gef-
ur út. Í umsögn dómnefndar um
Grímsævintýri segir m.a.: „Það er
frásagnarmáti bókarinnar sem gerir
hana eftirminnilega og sérstaklega
skemmtilega.“ Um Mitt eigið Har-
magedón segir: „Bók sem allir ung-
lingar ættu að geta fundið samhljóm
í varðandi það að taka ákvarðanir,
standa með sjálfum sér og bera
ábyrgð á eigin lífi.“ Um Randalín og
Munda segir: „Þetta er bráð-
skemmtileg og lipurlega skrifuð
saga með spaugilegum myndum,
skemmtilegum persónum og að-
stæðum sem vekja kátínu og gleði.“
Morgunblaðið/Ómar
Höfundar F.v Anna Heiður Pálsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Þórdís Gísladóttir, Steinunn Kristjánsdóttir,
Auður Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Eyrún Ingadóttir, Helga Gottfreðsdóttir og Bryndís Sverrisdóttir.
Níu bækur tilnefndar
til Fjöruverðlaunanna
Bókmenntaverðlaun kvenna afhent í febrúar á næsta ári
Rússneska sópransöngkonan Galína
Vishnevskaja er látin, 86 ára að
aldri. Hún ólst upp í sárri fátækt,
lifði af 900 daga umsátur Þjóðverja
um St. Pétursborg í seinni heims-
styrjöldinni og þreytti frumraun
sína á óperusviðinu aðeins 18 ára
gömul. Árið 1952 var hún ráðin til
starfa hjá Bolshoj-leikhúsinu í
Moskvu og starfaði þar til ársins
1974, en þá flúði hún Sovétríkin
ásamt eiginmanni, sellóleikaranum
Mstislav Rostropovitsj, og tveimur
dætrum eftir áralangar og linnu-
lausar árásir sovéskra stjórnvalda á
þau hjónin.
Tónskáldið Dmitri Shostakovitsj
var mikill vinur þeirra hjóna og
samdi m.a. óperuna Lady Macbeth
of Mtsensk fyrir Vishnevskaju. Ann-
ar góður vinur var rithöfundurinn
Alexander Solzhenítsyn en hjónin
skutu yfir hann skjólshúsi árin sem
hann vann við að skrifa sinn mikla
bálk um Gúlag-eyjarnar.
Vishnevskaja og Shostakovitsj
sneru heim úr útlegð árið 1990 og
endurheimtu rússneskan ríkisborg-
arrétt sinn. Galína Vishnevskaja
verður jarðsett í Moskvu við hlið eig-
inmanns síns sem lést árið 2007.
Rússneska sópransöng-
konan Vishnevskaja látin
Látin Galína Vishnevskaja.
Indverski sítarleikarinn Ravi
Shankar er látinn, 92 ára að
aldri. Á löngum og gifturíkum
ferli kom hann sítarnum á heims-
kortið og hefur áratugum saman
verið einn kunnasti og vinsælasti
heimstónlistarmaðurinn. Bítillinn
George Harrison kallaði hann
„guðföður heimstónlistarinnar“.
Shankar kom fyrst fram árið
1939 og þótti fljótlega ná óvið-
jafnanlegum tökum á hljóðfærið.
Þrátt fyrir sterkar rætur í ind-
verskri tónlist lék hann mikið
með vestrænum listamönnum og
árið 1966 kynntist hann með-
limum Bítlanna og kenndi hann
Harrison á sítar. Shankar lék
einnig með listamönnum í öðrum
geirum, til að mynda André Pre-
vin og John Coltrane.
Tvær dætra Shankars eru
heimsþekktir tónlistarmenn,
söngkonan Norah Jones og sítar-
leikarinn Anoushka Shankar.
Meistari sítarsins látinn
AFP
Goðsögn Ravi Shankar tekur hér
sítarinn til kostanna árið 2009.
Öldungaráð Kraums hefur tilnefnt
tuttugu plötur á Úrvalslista Kraums
en eftir viku kemur í ljós hvaða plöt-
ur skipa munu Kraumslistann 2012.
Tilnefndar plötur í stafrófsröð flytj-
enda eru: adhd með adhd4, Ásgeir
Trausti með Dýrð í dauðaþögn,
Borko með Born To Be Free, Davíð
Þór Jónsson með Improvised Piano
Works 1, Duo Harpverk með Green-
house Sessions, Futuregrapher með
LP, Ghostigital með Division of
Culture & Tourism, Hilmar Örn
Hilmarsson & Steindór Andersen
með Stafnbúa, Hjaltalín með Enter
4, Moses Hightower með Aðra
Mósebók, Muck
með Slaves, Nóra
með Himinbrim,
Ojba Rasta með
Ojba Rasta, Pas-
cal Pinon með
Twosomeness,
Pétur Ben með
God’s Lonely
Man, Retro Stef-
son með Retro
Stefson, Sin Fang með Half Dreams
EP, The Heavy Experience með
Slowscope, Tilbury með Exorcise og
Þórir Georg með I Will Die and You
Will Die and it Will be Alright.
Tilnefningar hjá Kraumi
Ásgeir Trausti
Ný skáldsaga Péturs Gunn-arssonar, Íslendinga-blokk, ber undirtitilinn(Tíðarandasaga). Og
vissulega er þetta saga um tíðarand-
ann og samtímann, eins og höfundur-
inn birtir okkur hann í tengdum frá-
sögnum af íbúum blokkar við
Miklubraut í Reykjavík. Höfundur
slær tóninn með einkunnarorðum
verksins, sem annars vegar eru sótt í
Ummyndanir Óvíds, um að heimur-
inn haldi áfram að breytast og ekkert
haldi mynd sinni, og hinsvegar í
Fyrra bréf Páls til Korintumanna,
einnig um að lífið haldi áfram: „Því að
heimurinn í núverandi mynd líður
undir lok, en ég vil
að þið séuð
áhyggjulaus.“ Það
er sem höfundur-
inn vilji minna
okkur, íbúana í Ís-
lendingablokk
hinni stærri, á að
við og allt hitt
verðum fljótlega
farin og að við getum ekkert gert við
því. Annað en að lifa lífinu.
Bókin skiptist í fjóra hluta, kennda
við árstíðirnar, og hefst (og reyndar
endar einnig) með Indriða Einars-
syni, fyrrverandi tollverði, þar sem
hann er staddur í snjóhvítum Foss-
vogskirkjugarði. Rauða ljósaseríu
sem hringar sig um legstein sem eig-
inkona Indriða hvílir undir tengir
hann rafgeymi bílsins og gefur bíln-
um síðan inn svo glaðnar yfir serí-
unni. Þarna í garðinum eru margir
samferðamenn tollarans, „… sváfu
undir moldarsængum með tandur-
hreinu veri, skroppnir saman í bók-
stafi og tölustafi sem standa fyrir
daginn og árið sem einstaklingurinn
kemur í heiminn og dagsetninguna
þegar nafnið manns hverfur úr þjóð-
skránni. Þarna var rakarinn hans
gamli og þarna skipstjórinn sem
hann hafði í tvígang tekið með toll-
skyldan varning, leikari og sauma-
kona – hvert og eitt í svefninum langa
uns Vekjarinn mikli myndi hringja
við endalok tímans.“
Höfundur minnir iðulega á það í
bókinni hvernig tíminn líður og
mennirnir hverfa, en við lesendur
kynnumst um leið fólki sem býr í
blokkinni eða tengist íbúum hennar
og það er eftirminnilegt persónugall-
erí. Indriði og Hreggviður svili hans
eru sannkallaðir hornsteinar frásagn-
arinnar, báðir ekklar, og samtöl
þeirra og samskipti frábærlega skrif-
uð. Addi rakari er annar ekkill og fer
einnig með stóra rullu, Kata skáld-
kona er komin á níu mánaða starfs-
laun sem ramma inn sögutímann,
Hansi er starfsmaður Fríhafnarinnar
og gamall poppari sem vill halda í
æskuminningarnar og ganga í augun
á fleiri konum en eiginkonunni. Fleiri
birtast á síðunum, eins og séra Flóki,
prestur sem er genginn af trúnni, og
Máni Ísaksson sem hefur starfað að
góðgerðarmálum í þriðja heiminum
og ákveður að bjóða sig fram til for-
seta með eftirminnilegum árangri.
Síðan er það röddin sem segir söguna
og er að kenna Gleðileik Dantes á
endurmenntunarnámskeiði, en ferða-
lagið innan Gleðileiksins er látið kall-
ast á við sögu fólksins á blokkinni á
athyglisverðan hátt.
Frásögnin sveiflast milli þessara
persóna og byggir höfundurinn í afar
vel stíluðum og stórskemmtilegum
textanum upp heildstæða mynd af
þessu fólki, tilveru þess, löngunum og
þrám. Pétur er hér í essinu sínu.
Samskipti persóna varpa á þær ljósi
og samtöl eru oft og tíðum drepfynd-
in og sýna sitthvað úr samtímanum á
spaugilegan hátt; gömlu svilarnir
eiga til að mynda erfitt með að halda í
við flug tímans, hvort sem það snýst
um samkynhneigða ættingja sem
koma út úr skápnum eða rafræn skil
á minningargreinum í Morgunblaðið.
Í þessari blokk er einhvernveginn allt
að finna: ást og svik, káf og framhjá-
hald, drauma og langanir, misskiln-
ing og vináttu, líf og dauða.
Pétri heppnast frábærlega að
koma vel byggðum og skemmtilegum
heimi fyrir í þessari blokk við Miklu-
brautina; þessu samfélagi þar sem
svo margt breytist á einu ári og tím-
inn flýgur. En svona geta snjallir höf-
undar skrifað; sagan um Íslend-
ingablokkina er bæði djúp og
skemmtileg – helsti gallinn er hvað
hún er stutt.
Heimurinn breytist og ekkert heldur mynd sinni
Skáldsaga
Íslendingablokk bbbbm
Eftir Pétur Gunnarsson.
JPV útgáfa, 2012. 180 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Golli
Pétur „Sagan um Íslendingablokk-
ina er bæði djúp og skemmtileg .“