Morgunblaðið - 13.12.2012, Side 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
gengur eiginlega ekki að lesa þessa bók í
skömmtum. Fyrir þá sem hafa ekki nægan
tíma eða gefa sér ekki nægan tíma til lesturs
er bókin því of löng. Annað atriði, sem setja má
út á, eru allar þessar nákvæmu lýsingar á öllu.
Þeir sem allt vita segja að þetta sé með handrit
að kvikmynd í huga en það breytir ekki því að
þetta er of mikið af hinu góða. En bókin er góð,
ein besta spennubókin á jólamarkaðnum.
Ekki er öllum gefið að segja hryllings-sögu og hvað þá þegar um krimmaer jafnframt að ræða en StefánMáni kann þessa list og gerir það
sérlega vel í spennusögunni Húsinu.
Umhverfi okkar er ekki eins saklaust og það
virðist ef til vill vera. Hver
hefur sinn djöful að draga
og í skúmaskotum leynast
víða atvik sem þola illa
dagsljósið. Stefán Máni
grefur upp þennan viðbjóð
og kemur sögunni svo vel
frá sér að varla verður bet-
ur gert.
Stefán Máni leitar víða
fanga. Meðal annars hjá
lögreglunni, á Landspítalanum, hjá Barna-
verndarstofu og víðar og er viðkomandi þakk-
að í sögulok. Víst er að tilgreint fólk hefur veitt
Stefáni Mána góða innsýn í margt sem skiptir
máli í sögunni. Sama má segja um ýmislegt
annað sem höfundur tínir til og fyrir vikið
verður Húsið enn trúverðugra en ella.
Húsið er í raun ógeðsleg saga og örugglega
ekki við hæfi viðkvæmra. Persónusköpunin
hittir í mark og helsti skúrkurinn á hvergi
neitt inni. Maður sem hefur fyrirgert öllum
rétti sínum. Spennan helst allan tímann og því
Morgunblaðið/Kristinn
Stefán Máni „Persónusköpunin hittir í mark
og helsti skúrkurinn á hvergi neitt inni.“
Ein besta
spennubókin
Spennusaga
Húsið b Spennusaga eftir Stefán Mána.
JPV útgáfa 2012. 588.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Óttinn er sterkt hreyfiafl sem stýrirauðveldlega gjörðum okkar og geturjafnvel fengið besta fólk til að vinnavoðaverk. Í Bjarna-Dísu dregur
Kristín Steinsdóttir upp mynd af þjóðfélagi
þar sem óttinn birtist í ýmsum myndum, ótti
vinnufólks við refsingu húsbænda sinna, m.a. í
formi barsmíða eða matar-
missis, ótti barna við að
vera boðin upp hjá hreppn-
um og þar með verða að-
skilin frá foreldrum og
systkinum samtímis því að
vera dæmd til eilífs þræl-
dóms, óttinn um sína nán-
ustu, óttinn við myrkrið og
allt sem þar getur leynst af
óvættum, draugum og öðr-
um myrkraverum.
Í bók sinni vinnur Kristín með þjóðsöguna
um Þórdísi sem ásamt bróður sínum Bjarna
var á ferð yfir Fjarðarheiði skömmu fyrir jóla-
föstu árið 1797. Þar lenda þau í brjáluðu veðri
og verður úr að Bjarni grefur systur sína í
fönn meðan hann reynir sjálfur að komast til
byggða og sækja aðstoð. Rauntími sögunnar
er þeir fimm sólarhringar sem líða frá því
systkinin leggja af stað í ferðalag sitt og er
sagan sögð út frá sjónarhorni systkinanna til
skiptis. Þetta skapar dramatíska spennu þar
sem lesandinn bíður í ofvæni með Þórdísi uppi
á heiði og auðveldlega er hægt að lesa bókina
nánast sem spennusögu þar sem Bjarni er í
kapphlaupi við tímann, enda þekkja allir örlög
þeirra sem villast uppi á heiði: „Allar sögurnar
af fólki á heiðum uppi í snjó og myrki að
vetrarlagi. Fólki sem hné niður hér og hvar ör-
magna af þreytu. Sumir komust til byggða og
stórsá á þeim. Náðu sér aldrei“ (bls. 17).
Það sem gefur bókinni dýpt er hversu lista-
vel Kristín fléttar saman þremur heimum, þ.e.
raunheimi, heimi minninganna og ekki síst
handanheiminum. Þannig rifja systkinin tvö
upp atburði úr fortíðinni í bland við vonir sínar
og þrár. Hugsanir Þórdísar litast mjög af ótta
hennar við myrkrið og allar þær verur sem í
því geta leynst. Höfundur skilur eftir nægt
rými fyrir lesandann til að túlka upplifanir og
sýnir Þórdísar meðan hún bíður í fönninni sem
hugaróra, skynvillu eða raunverulega atburði.
Bjarna-Dísa er áhrifamikil saga um grimm
örlög kvenna og fátæklinga í miskunnarlausu
landi sem alið hefur af sér harðneskjulega
herra. Texti Kristínar er lipurlega og fallega
skrifaður. Höfundi tekst að draga upp sterkar
myndir bæði af aðalpersónum sínum og ýms-
um aukapersónum. Þannig eru örlög Veigu,
móðursystur systkinanna tveggja, undirritaðri
sérlega minnisstæð í þeirri knöppu mynd sem
höfundur dregur upp. Að lokum er ekki hægt
annað en að minnast á kápu bókarinnar sem er
sérlega falleg og hugvitsamlega hönnuð. Þar
getur að líta prófíl af ungri konu sem teiknuð
hefur verið ofan í landakort af sögusviðinu.
Skáldsaga
Bjarna-Dísa bbbbn
Eftir Kristínu Steinsdóttur.
Vaka-Helgafell 2012. 158 bls.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Einar Falur
Örlög Kristín Steinsdóttir skrifar áhrifamikla
sögu um grimm örlög kvenna.
Þegar óttinn tekur völdin
Nilfisk hrein snilld fyrir jólin
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
Handy 2in1, kremuð, ljós 12v
Listaverð 24.200
Tilboð 19.700
Power P40 blá, 2000w, hepasía
Listaverð 49.900
Tilboð 44.900
Power ECO hvít, 1250w, hepasía
Listaverð 45.900
Tilboð 39.900
Bravo Parquet , silfur 2000w, hepasía
Listaverð 39.400
Tilboð 29.900
Coupe NEO parquet silfur, 2000w,
Hepasía
Listaverð 28.800
Tilboð 24.400
Bravo rauð, 2000w, Hepasía
Listaverð 36.400
Tilboð 27.600
Coupe NEO rauð, 2000w, Hepasía
Listaverð 24.800
Tilboð 21.400
Handy 2 in 1, 25v lithium, rauð
Listaverð 31.200
Tilboð 25.900
Extreme Hygienic blá, 2000w, hepasía
Listaverð 68.900
Tilboð 58.900
Extreme Complete, 2100w, Hepasía
Listaverð 79.900
Tilboð 69.900
Handy 2in1, 18v lithium, Svört
Listaverð 27.500
Tilboð 22.800