Morgunblaðið - 13.12.2012, Qupperneq 56
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 348. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Jón Gnarr sendi bréf til Obama
2. Linda Pé er orðin dökkhærð
3. Spilavíti lokað og 8 handteknir
4. Liggur við að manni verði flökurt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tveir aðalrapparar afró-karabísku
hipphopp-hljómsveitarinnar The
Welfare Poets frá Harlem í New York,
M.I.C og Rayzer Sharp, koma til
landsins í næstu viku og munu þeir
halda tónleika, flytja fyrirlestra og
standa fyrir vinnusmiðjum. Welfare
Poets beita sér fyrir félagslegu rétt-
læti og hafa um 15 ára skeið barist
gegn kúgun, mismunun og ójafnrétti
með tónlistarflutningi sínum. Með
röppurunum kemur kvikmyndatöku-
maður sem mun m.a. skrásetja heim-
ildir um málefni flóttamanna hér á
landi og stendur einnig til að taka
upp myndband.
Rapparar úr Welfare
Poets væntanlegir
Matreiðslubók-
in Heilsuréttir
fjölskyldunnar,
eftir Berglindi
Sigmarsdóttur,
hefur verið til-
nefnd til al-
þjóðlegu Gour-
mand-matreiðslubókaverðlaunanna, í
flokki bóka um heilsu og næringu.
Tilnefnd til Gour-
mand-verðlauna
Ferðafélag Íslands heldur í kvöld kl.
20 Aðventukvöld í sal félagsins í
Mörkinni 6, helgað skáld-
sögu Gunnars Gunnars-
sonar, Aðventu. Sigur-
jón Pétursson sýnir
ljósmyndir af Mývatns-
öræfum og Pétur
Eggerz flytur
einleik sem
byggður
er á Að-
ventu.
Aðventa hjá
Ferðafélagi Íslands
Á föstudag Austan og norðaustan 10-20 m/s, hvassast með
SA-ströndinni. Dálítil él SA- og A-lands. Frost 0 til 12 stig.
Á laugardag Norðaustan 8-18 og áfram hvassast SA-til. Él N-
og A-lands, en bjartviðri SV-til. Frost víða 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-15 m/s, hvassast syðst. Dálitlar
skúrir eða él með SA- og A-ströndinni, en bjartviðri V- og N-lands.
VEÐUR
Keflavíkurkonur
eru óstöðvandi
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari
danska handknattleiksliðsins Viborg,
stóð í ströngu í gær en stíf fundahöld
voru hjá félaginu með leikmönnum
liðsins og þjálfara í kjölfar þeirrar
ákvörðunar stjórnarinnar að allur
kraftur yrði settur í
kvennaliðið en karla-
liðið, sem Óskar
Bjarni stýrir, yrði
hálfpartinn leyst
upp. »3
Óvissa hjá Óskari
Bjarna hjá Viborg
Stefán Rafn Sigurmannsson fór
vel af stað með þýska stórliðinu
Rhein-Neckar Löwen í gærkvöld en
Haukamaðurinn snjalli lék þá sinn
fyrsta leik með liðinu. „Tilfinningin
var rosalega góð,“ sagði Stefán
við Morgunblaðið eftir leikinn en
hann skoraði sigurmarkið þegar
Löwen lagði Magdeburg í fram-
lengdum bikarleik. »1
Stefán Rafn fór vel
af stað með Löwen
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Stekkjarstaur kom til byggða í fyrri-
nótt. Hann lagði leið sína í Þjóðminja-
safnið í gær og hitti þar fyrir stillt og
prúð börn úr Austurbæjarskóla. Á
meðan börnin biðu eftir honum sátu
þau á gólfinu og sungu hástöfum jóla-
lög af mikilli innlifun.
Fagnaðarfundir urðu þegar
Stekkjarstaur lét loksins á sér kræla,
eftir töluverða bið. Hann var í sínu
fínasta pússi; með sauðskinnsskó á
fótum, belgvettlinga og í hlýjum ull-
arflíkum, og að sjálfsögðu með staf í
hendi.
Börnin voru að vonum ánægð að
sjá fyrsta jólasveininn og fóru öll á ið,
svo sá undir iljarnar á nokkrum. Þau
reyndu flestöll að ná tali af Stekkjar-
staur og vildu ólm segja honum frá
glaðningnum sem hafði beðið þeirra
um morguninn.
Stekkjarstaur rifjaði upp með
krökkunum hvaðan nafngift hans
væri komin. Hann sagði þeim að í
gamla daga hefði hann alltaf verið að
laumast í að drekka mjólkina úr án-
um þegar búið var að mjólka þær.
Hann beið ævinlega við stekkinn, eins
og staur, eftir að mjaltakonurnar
hefðu lokið störfum. En þegar hann
ætlaði að hreyfa sig var hann svo
stirður að hann átti erfitt með að
hreyfa sig.
Stekkjarstaur viðurkenndi að hann
væri mjólkursjúkur. Þá spurði eitt
barnanna, af hverju hann héti þá
ekki Mjólkurstaur. Hann var ekki
alveg dús við það og sagðist
kunna ágætlega við nafnið sitt.
Gotterí í skóinn
Margir velta fyrir sér stærð
og lögun gjafanna, sem
liggja í litlu skónum sem
standa núna í gluggasyll-
unum.
Einn af þeim er Gísli
Björgvin Gíslason. Hann
skrifaði opið bréf til jólasveinanna og
fjölskyldu þeirra sem birtist í net-
heimum. Margir facebook-notendur
deildu greininni og miklar umræður
spunnust um innihaldið.
Þar hvetur Gísli jólasveinana til að
stilla gjöfunum í hóf og gleyma sér
ekki í að gefa dýrar gjafir. Hann segir
ennfremur: „Mig langaði bara aðeins
að minna þig á tilganginn með þess-
um gjöfum þínum; að gleðja lítil börn
og stytta biðina eftir jólunum.“
Gleði barnanna í Þjóðminjasafninu
var ósvikin þegar þau veifuðu dótinu
sem Stekkjarstaur hafði gaukað að
þeim yfir nóttina. Eflaust leggja
mörg börn glaðbeitt út í daginn eftir
glaðninginn frá Giljagaur, sem kíkti
við hjá þeim í nótt. Þriðji bróðirinn,
Stúfur litli, kemur næstur.
Stekkjarstaur kominn
Börnin tóku
syngjandi á móti
sveininum
Morgunblaðið/Kristinn
Stekkjarstaur Krakkarnir í öðrum bekk í Austurbæjarskóla tóku Stekkjarstaur fagnandi þegar hann kom í Þjóð-
minjasafnið. Þau furðuðu sig á því að hann héti ekki Mjólkurstaur, því hann sagðist vera sólginn í mjólk.
Þrír krakkar í 2. GÞ í Austurbæjarskóla höfðu fengið frekar nútíma-
legar gjafir í skóinn. Nikolai Daðason fékk risaeðlur í slími, Teresa
Kristinsdóttir fékk pez og sokka og Máni Norðfjörð jólasveina-
pezkarl og voru þau hæstánægð.
Þau sögðust öll hafa verið stillt og prúð að fara að sofa og ætl-
uðu að halda því áfram. Tvö barnanna höfðu fengið kartöflu í skóinn
og hreyktu sér ekki mikið af því.
Þau sögðust ekki vera vitund hrædd við Stekkjarstaur en
„það er soldið mikil fýla af honum,“ sagði Teresa.
Þau voru sammála um að jólasveinarnir væru aðeins hrekkj-
óttir. Þau höfðu öll lent í því að einhverjir þeirra hefðu stolið
hangikjöti og bjúgum frá þeim.
Slímugar risaeðlur og pez
NÚTÍMALEGAR JÓLAGJAFIR FRÁ STEKKJARSTAUR
Teresa
Kristinsdóttir
Keflavíkurkonur geta farið í
jólafríið með bros á vör en
þær unnu í gærkvöld sinn 14.
sigur í jafnmörgum leikjum
og eru með fjögurra stiga
forskot á toppi Dominos-
deildarinnar. Keflavík hafði
betur gegn botnliði Fjölnis.
Snæfell er í öðru sæti en lið-
ið hrósaði sigri gegn KR í
Hólminum og Haukar unnu
góðan sigur á heimavelli sín-
um að Ásvöllum þegar þeir
sigruðu Grindavík. »2