Morgunblaðið - 14.12.2012, Side 41
Hjálparstarf í Afganistan
„Hún gekk mjög vel, var upp-
byggileg og lærdómsrík. Við vorum
töluvert afskekkt, í norðvesturhluta
landsins, og áttum fyrst og fremst
að halda utan um heilsugæslu fyrir
okkar fólk. Við fórum í þriggja til
fimm daga ferðir frá höfuðstöðvum
okkar, í afskekkt þorp á þessum
slóðum og fljótlega snerist starfið
um það að veita þorpsbúum bráða-
læknisþjónustu og koma sjúkum til
lækna. Við kortlögðum svæði, könn-
uðum vatnsból, uppskeru og heilsu-
far manna og dýra, og vorum með
þeim allra fyrstu til að safna saman
og koma á framfæri upplýsingum
um bráðnauðsynlega þjónustu og
framkvæmdir á þessum slóðum. Við
heimsóttum ýmis þorp sem enginn
hafði áður komið til að vetrarlagi
vegna mikils fannfergis og vorum
þar aufúsugestir enda fólkið með
eindæmum elskulegt og gestrisið.
Í jólafríinu fékk konan mín nem-
endur í Álftanesskóla til að safna
húfum, sokkum, vettlingum og hlífð-
arfötum og ég tók myndir af börn-
unum sem fengu þennan fatnað í
Afganistan og sýndi þær í skólanum.
Lærdómurinn af þessu öllu er
ekki síst sá hvað við megum vera
þakklát fyrir þann frið, öryggi og þá
velferð sem við Íslendingar búum
við – og hvað við ættum að njóta
þessara lífsgæða svo miklu meira en
við oft gerum.“
Þú tókst töluvert af ljósmyndum í
Afganistan, er það ekki?
„Jú, ég hef tekið myndir frá því í
barnaskóla. Á unglingsárunum
komst ég í starfskynningu hjá
Morgunblaðinu og fékk að fylgjast
með Óla Magg og Raxa framkalla.
Það var ógleymanlegt. Rómantíkin
fór svolítið úr þessum bransa með
framkölluninni og myrkvaherberg-
inu en ég hef alltaf gaman af því að
reyna að fanga augnablikið. Ég tók
líka töluvert af myndum fyrir Fjarð-
arpóstinn á sínum tíma.“
Sveinbjörn starfaði í Björg-
unarsveit Hafnarfjarðar frá fimm-
tán ára aldri. Hann er formaður fag-
deildar sjúkraflutningamanna, situr
í stjórn Landssambands slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna, situr í
ýmsum nefndum og ráðum á vegum
sambandsins, í fagráði velferðar-
ráðherra um sjúkraflutninga og í
fagráði Sjúkraflutningaskólans.
Fjölskylda
Eiginkona Sveinbjörns er Auður
Björgvinsdóttir, f. 10.4. 1976, grunn-
skólakennari við Álftanesskóla. Hún
er dóttir Björgvins Guðmundssonar,
sjómanns í Stykkishólmi, og Soffíu
Axelsdóttur sem starfar við umönn-
un í Stykkishólmi.
Börn Sveinbjörns og Auðar eru
Björgvin Hrannar, f. 6.10. 1997;
Símon Ingi, f. 1.11. 2001, og Þor-
björg Helga, f. 23.11. 2006.
Systkini Sveinbjörns eru Jóhanna
Berentsdóttir, f. 23.9. 1974, leik-
skólakennari, búsett í Hafnarfirði;
Hólmfríður Berentsdóttir, f. 27.10.
1975, hjúkrunarfræðingur og lög-
fræðinemi, búsett í Reykjavík, og
Jóhann Berentsson, f. 5.1. 1988,
starfsmaður hjá Vörumerkingu, bú-
settur í Reykjavík.
Foreldrar Sveinbjörns: Berent
Sveinbjörnsson, f. 13.7. 1950, pípu-
lagningameistari, og Guðný Jó-
hannsdóttir, f. 24.9. 1948, d. 23.5.
2007, hússtjórnarkennari.
Úr frændgarði Sveinbjörns Berentssonar
Sveinbjörn
Berentsson
Ingibjörg Gissurardóttir
húsfr. í Rvík
Símon Símonarson
bifreiðastj. í Rvík
Ingunn Símonardóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Jóhann Björnsson
skrifstofum. í Hafnarfirði
Guðný Jóhannsdóttir
hússtjórnarkennari
Guðný Jónsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Björn Jóhannsson
verkam. í Hafnarfirði
Ingibjörg Jónsdóttir
húsfr. í Reynihólum
Björn Guðmundsson
b. á Reynihólum í Miðfirði
Hólmfríður Björnsdóttir
húsfr. í Sandgerði
Sveinbjörn Berentsson
vörubílstj. í Sandgerði
Berent Sveinbjörnsson
pípulagningarmaður
Kristín Þorsteinsdóttir
húsfr. í Sandgerði
Berent Magnússon
b. í Sandgerði
Hjónin Sveinbjörn og Auður.
ÍSLENDINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Ingibjörg H. Bjarnason, alþingis-kona og forstöðumaðurKvennaskólans í Reykjavík,
fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð
14.12. 1867. Hún var dóttir Hákonar
Bjarnasonar, útgerðarmanns og
kaupmanns á Bíldudal og Þingeyri,
og k.h., Jóhönnu Kristínar Þorleifs-
dóttur húsmóður. Hákon var sonur
Bjarna Gíslasonar, pr. á Söndum í
Dýrafirði, og k.h., Helgu Árnadóttur
húsfreyju. Jóhanna Kristín var dótt-
ir Þorleifs Jónssonar, prófasts í
Hvammi í Hvammssveit, og k.h.,
Þorbjargar Hálfdánardóttur hús-
freyju.
Foreldrar Ingibjargar eignuðust
12 börn en einungis fimm þeirra
komust upp. Meðal bræðra Ingi-
bjargar voru Lárus H. Bjarnason,
sýslumaður, bæjarfógeti og hæsta-
réttardómari, og Ágúst H. Bjarna-
son, doktor í heimspeki, rektor Há-
skóla Íslands og fyrsti forseti
Vísindafélags Íslendinga, faðir Jóns
Ólafs Ágústssonar Bjarnasonar
verkfræðings, föður Halldórs Jóns-
sonar, verkfræðings og fyrrv. for-
stjóra Steypustöðvarinnar. Annar
sonur Ágústs var Hákon Bjarnason
skógræktarstjóri.
Ingibjörg þótti vel menntuð á
þeirra tíma mælikvarða. Hún var í
námi hjá Þóru, konu dr. Þorvaldar
Thoroddsens náttúrufræðings og
dóttur Péturs Péturssonar biskups.
Þá stundaði hún nám í Kaupmanna-
höfn 1884-1885 og aftur 1886-1893
auk þess sem hún dvaldi erlendis
1901-1903 og kynnti sér þá m.a.
skólahald í Þýskalandi og Sviss.
Ingibjörg var fyrsta konan sem
kjörin var á Alþingi. Hún sat á þingi
1922-1930, fyrst fyrir Kvennalistann
eldri, þá fyrir Íhaldsflokkinn og loks
Sjálfstæðisflokkinn frá stofnun hans
1929.
Ingibjörg kenndi við Kvennaskól-
ann i Reykjavík frá 1903 en þá var
hann enn til húsa hjá Þóru Melsted í
Thorvaldssenstræti, í húsi sem síðar
var nefnt Sjálfstæðishús eða Sigtún
og loks Nasa. Er skólinn flutti í nýtt
húsnæði við Fríkirkjuveg 1906 tók
Ingibjörg við stjórn skólans og
stýrði honum til æviloka 30.10. 1941.
Merkir Íslendingar
Ingibjörg H.
Bjarnason
85 ára
Ragna E. Samúelsson
80 ára
Gunnar J. Jónsson
Magni E. Guðmundsson
Trausti Sigurðsson
75 ára
Halldór Guðjónsson
Rafn Konráðsson
70 ára
Arsenia Dealca Gomez
Ástráður Hreiðarsson
Guðrún Jóhannsdóttir
Hilmar Þ. Björnsson
Sigurjóna Haraldsdóttir
Þorgils Axelsson
60 ára
Birgir Sveinarsson
Guðrún Inga Sveinsdóttir
Helga Margrét Jónsdóttir
Judith Ann Tran
Kristín Birna Jakobsdóttir
Kristín Ósk Kristinsdóttir
Lilja Guðnadóttir
50 ára
Ásta Baldvinsdóttir
Birna Kristín Pétursdóttir
Einar Magnússon
Harpa Gunnarsdóttir
Lovísa Björk Kristjánsdóttir
Margrét Ingiþórsdóttir
Selma Rut Magnúsdóttir
Sigurður Gunnar Helgason
Sigurlaug Linda
Harðardóttir
Valdís Guðmundsdóttir
40 ára
Anna Bjarney
Guðmundsdóttir
Brynjólfur Gíslason
Einar Ingi Hermannsson
Elín Björk Davíðsdóttir
Elvar Sigurðsson
Halldóra Íris
Sigurgeirsdóttir
Halldóra Steinunn
Gestsdóttir
Kristín Hrund Óladóttir
Mattia Albrizio
Monika Izabela Gebska
Valdimar Valdimarsson
30 ára
Erling Kristinsson
Guðrún Lína
Thoroddsen
Gunnhildur Erla
Þórmundsdóttir
Halldóra Kristín
Unnarsdóttir
Heiðveig Magnúsdóttir
Helga Jónasdóttir
Kristín Lilja Ólafsdóttir
Lilja Bryndís
Sigurbjörnsdóttir
Sigurður Jóhann
Árnason
Urszula Lis
Til hamingju með daginn
30 ára Rósa lauk leiklist-
arprófi frá Kvikmynda-
skóla Íslands og starfar í
leikhópnum Lottu, við
barnaheimili og kaffihús.
Maki: Jón Geir Jóhanns-
son, f. 1975, trommuleik-
ari í Skálmöld.
Stjúpbörn: Úlfhildur
Stefanía, f. 2006; Margrét
Hugrún, f. 2010, og Vil-
helm Bjarnar, f. 2010.
Foreldrar: Þórhalla Þór-
hallsdóttir, f. 1953, og Ás-
geir Baldursson, f. 1949.
Rósa Björg
Ásgeirsdóttir
40 ára Svanhvít ólst upp
í Reykjavík og er nú bú-
sett í Grundarfirði.
Maki: Kjartan Elíasson, f.
1962, verktaki í Grund-
arfirði.
Börn: Hugljúf María, f.
1995; Sigmundur Elías, f.
2000, Kjartan Jón, f.
2003.
Foreldrar: Guðmundur
Þengilsson, f. 1926, d.
2008, múrarameistari, og
Hugljúf Dagbjartsdóttir, f.
1930, d. 1998, húsfreyja.
Svanhvít
Guðmundsdóttir
30 ára Ragnar ólst upp í
Vogunum, vann lengi í
fiskvinnslu hjá Silungi
ehf., starfaði við íþrótta-
miðstöðina í Vogum en
starfar nú hjá Rio Tinto
Alcan í Straumsvík.
Maki: Eva Rún Sigurð-
ardóttir, f. 1985, sjúkraliði.
Börn: Nadía Pinmanee, f.
2008, og Yada Sólborg, f.
2012.
Móðir: Ragnheiður Gunn-
arsdóttir, f. 1954, fisk-
vinnslukona í Vogum.
Ragnar Davíð
Riordan
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
ÆTLAR ÞÚ
AÐ BREYTA
UM LÍFSSTÍL?
HEILSULAUSNIR - Námskeiðið hentar einstaklingum
sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki.
• Mán., mið. og fös. kl. 6:20, 10:00, 14:00 eða 19:30.
• Hefst mánudaginn 21. janúar 2013
• Skráning hafin á næstu námskeið í síma 560 1010
eða á mottaka@heilsuborg.is - Tryggðu þér pláss!
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn tíma og var búin að
vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég hef náð góðum
árangri, náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari og með miklu meiri
orku. Maður verður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að megra
sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“
Helga
Einarsdóttir