Morgunblaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Red Dawn
Norður-Kóreumenn ráðast inn í
Bandaríkin í þessari endurgerð á
samnefndri kvikmynd frá árinu
1984. Í þeirri mynd voru það Sov-
étmenn sem gerðu innrás. Í endur-
gerðinni þurfa íbúar ónefndrar
borgar að snúa bökum saman og
verjast innrásarliðinu sem heldur
þeim föngnum innan borgarmark-
anna. Hópi ungra föðurlandsvina
tekst að flýja út í skóg og hefst þar
mikil herþjálfun. Hann snýr aftur
til borgarinnar og hefst þá mikill
skæruhernaður.
Leikstjóri er Dan Bradley og í aðal-
hlutverkum Chris Hemsworth, Josh
Peck og Isabel Lucas.
Rotten Tomatoes: 11%
Hausu
Japanska fantasíuhrollvekjan
Hausu, eða Hús, verður sýnd á
sunnudaginn í Bíó Paradís á vegum
kvikmyndaklúbbsins Svartir sunnu-
dagar. Myndin er frá árinu 1977 og
var upphaflega framleidd sem ein-
hvers konar svar Japana við Jaws,
að því er fram kemur í tilkynningu.
Leikstjórinn, Nobuhiko Obayashi,
hafi fengið aðeins of frjálsar hend-
ur, að mati framleiðendanna, og úr
hafi orðið einhver sérstakasta
hrollvekja allra tíma. Í myndinni
koma við sögu andsetið hús, jap-
anskar skólastúlkur og hvítur an-
góraköttur sem reynist vera kölski
sjálfur. Hausu fellur í flokk sk.
„cult“-mynda, þ.e. kvikmynda sem
eiga sér stóran, afmarkaðan og
dyggan aðdáendahóp. Myndin
verður sýnd kl. 20 og verður sýn-
ingin jafnframt sú síðasta á vegum
Svartra sunnudaga fyrir jól.
Með aðalhlutverk í myndinni fara
Kimiko Ikegami, Kumiko Oba,
Masayo Miyako, Eriko Tanaka, Ai
Matsubara og Miki Jinbo.
Rotten Tomatoes: 90%
Bíófrumsýningar
Stríð og hrollur
Hasar Úr kvikmyndinni Red Dawn sem verður frumsýnd í dag.
bolaprentun
gluggamerkingar
rúllustandar
Smiðjuvegur 42 Rauð gata 200 Kópavogur Sími:544 4545 www.signa.is signa@signa.is
signa.is
Inniljósaskilti
prentun
Inniljósaskilti 117x68cm
Einnig til í öðrum stærðum
29,950-
án vsk.