Morgunblaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Hyldýpi nefnist nýtt sviðsverk sem
frumsýnt verður í Petersen-svítunni
í Gamla bíói í kvöld kl. 20. Flytjandi,
leikstjóri og höfundur verksins er
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, en
hún útskrifaðist úr Listaháskólanum
vorið 2011 af brautinni fræði og
framkvæmd.
„Lokaverkefnið mitt í skólanum
fjallaði um eldingar. Í framhaldinu
var ég beðin að vinna sýningu upp úr
því verki sem sýnt hefur verið á leik-
listarhátíðum í Danmörku og Finn-
landi,“ segir Ragnheiður og tekur
fram að hún hlakki til að sýna verkið
hér heima, en sýnt verður í Reykja-
vík í desember og á Akureyri í jan-
úar. „Þetta er sannkölluð farandsýn-
ing og við höfum þurft að aðlaga
hana að mjög svo ólíkum sýningar-
rýmum á hverjum stað,“ segir Ragn-
heiður.
Aðspurð segir hún verkið m.a.
fjalla um myrkrið, geimryk, ókönn-
uð djúp og kafbáta. „Í raun má segja
að um sé að ræða dagskrá um
dýpsta dýpi sjávar og endaleysu
himingeimsins, sorgina og sköp-
unarkraftinn,“ segir Ragnheiður og
tekur fram að sér finnist sérlega
spennandi að taka stóra óáþreifan-
lega hluti og miðla þeim á hvers-
dagslegan og skiljanlegan hátt. „Ég
heillast af því sem ég skil ekki til
fullnustu og sé dulúð í spurningar-
merkjunum,“ segir Ragnheiður.
Spurð hvernig hún hafi nálgast við-
fangsefni sitt segist Ragnheiður
beita vísindalegum vinnubrögðum í
viðleitni sinni til að skilja hið óá-
þreifanlega. „Ég kafa ofan í tilfinn-
ingu til að skynja ástand og leita að
því að skapa augnablik og upplifun.“
Tónlistarflytjendur sýningarinnar
eru Þórður Hermannsson og Helene
Inga Stankiewicz. Hljóðheim verks-
ins skapar Albert Finnbogason, en
dramatúrgía var í höndum Leifs
Þórs Þorvaldssonar og Bjarna Jóns-
sonar. Aðeins eru fyrirhugaðar fjór-
ar sýningar á næstu fjórum dögum,
en þess ber að geta að sætaframboð-
ið er takmarkað. Miða má nálgast á
midi.is. Þess má að lokum geta að
verkefnið var styrkt af Evrópu unga
fólksins.
Verk um dýpsta dýpi
sjávar og sorgina
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir frumsýnir Hyldýpi
Hátíð Frá sýningu Hyldýpis á leiklistarhátíðinni Baltic circle í Helsinki.
Hugljúfir jólatónar munu hljóma á hádegistónleikum í Há-
teigskirkju í dag kl. 12.30. Um er að ræða styrktartónleika
fyrir Hjálparstarf kirkjunnar, en aðgangseyrir er 1.000
krónur. Fram koma söngvararnir Ragnhildur Dóra Þór-
hallsdóttir sópran, Halla Marinósdóttir messósópran,
Bjartmar Sigurðsson tenór, Árni Geir Sigurbjörnsson ten-
ór, Gunnar Björn Jónsson tenór og Kristján Jóhannesson barítón ásamt
Kammerhópnum Stillu.
Styrktartónleikar í Háteigskirkju
Hrím er yfirskrift tónleika sem Þórhildur Örvarsdóttir
og Karl Olgeirsson halda í Hlöðunni, Litla-Garði, sunnu-
daginn 16. desember kl. 21. Á efnisskránni eru jóla- og
vetrarlög úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. „Til-
gangurinn er sá einn að laða fram ljúfa vetrartóna og
hver veit nema það náist að vinda aðeins ofan af jóla-
stressinu,“ segir m.a. í tilkynningu. Aðgangseyrir er
1.500 kr.
Hrím í Hlöðunni
Þórhildur
Örvarsdóttir
Sirkushátíðin VOL.CAN.O verður
haldin við Norræna húsið í Vatns-
mýri 4.-14.júlí á næsta ári. Mun þar
rísa sirkusþorp með fjórum tjöldum
þar sem hinar ýmsu sirkuslistir
verða leiknar. Norræna húsið, Cirk-
us Xanti og Cirkus Cirkör standa að
hátíðinni.
„Við erum ótrúlega spennt fyrir
þessu verkefni enda er það eitt það
stærsta sem Norræna húsið hefur
tekið sér fyrir hendur. Það hlaut að
koma að þessu enda er forstjórinn
okkar, Max Dager, fyrrverandi
sirkustjóri, ef svo má að orði komast,
hann er einn af stofnendum Cirkus
Cirkör sem verða með aðalsýn-
inguna á sirkuslistahátíðinni í sum-
ar,“ segir Ilmur Dögg Gísladóttir,
verkefnastjóri Norræna hússins, um
hátíðina. „Við erum að halda hátíð-
ina í samstarfi með helstu sirkus-
listamönnum Norðurlandanna,
Cirkus Cirkör frá Svíþjóð og Cirkus
Xanti frá Noregi, sem koma með
heilt sirkusþorp með sér hingað í
Vatnsmýrina. Fyrr á þessu ári ósk-
uðum við eftir umsóknum frá sirkus-
listamönnum sem vildu taka þátt í
hátíðinni. Við sitjum nú með heilt
fjall af umsóknum frá framúrskar-
andi hæfileikafólki víðsvegar að úr
heiminum svo áhuginn fyrir hátíð-
inni er gríðarmikill.“
Cirkus Cirkör hefur farið víða um
heim með sýningar sínar. Sirkusinn
sýndi hér á landi árið 2005, sýn-
inguna 99% Unknown og var uppselt
á allar sýningar. Wear it Like a
Crown er síðasti hluti þríleiks um
líkamann og möguleika hans. Tilde
Björfors, leikstjóri sýningarinnar,
kannar í sýningunni óreiðu, skipulag
og áhættu sem umbreytist í tæki-
færi. Ilmur segir sýninguna fjalla
um það að velja að bera galla okkar
og mistök, hræðslu okkar og van-
kanta sem kórónu eða djásn.
helgisnaer@mbl.is
Sirkushátíð í
Reykjavík
Sveigjanleg Liðsmaður Cirkus
cirkör sýnir listir sínar.
Sirkusþorp mun rísa í Vatnsmýrinni
SO UNDERCOVER Sýndkl.4- 6
GOÐSAGNIRNAR FIMM 3D Sýndkl.4- 6
KILLING THEM SOFTLY Sýndkl.8
SKYFALL Sýndkl.10
NIKO 2 : BRÆÐURNIR FLJÚGANDI Sýndkl.4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Bráðskemmtileg
gamanmynd
í anda
MISS CONGENIALITY
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
12
7
16
L
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÍSLENSKT TAL
NÁNAR Á MIÐI.IS
-S.G.S., MBL
-H.V.A., FBL
SO UNDERCOVER KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L
SKYFALL KL. 6 - 9 12
SKYFALL LÚXUS KL. 6 - 9 12
GOÐSAGNIRNAR FIMM 2D KL. 3.40 - 5.50 L
GOÐSAGNIRNAR FIMM 3D KL. 3.40 L
KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10.15 16
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 10.20 16
HERE COMES THE BOOM KL. 5.50 - 8 7
NIKO 2 KL. 3.40 L
LIFE OF PI FORSÝNING KL. 8 12
SO UNDERCOVER KL. 8 - 10 L
KILLING THEM SOFTLY KL. 10.20 16
HERE COMES THE BOOM KL. 5.50 / SKYFALL KL. 5.20
LIFE OF PI FORSÝNING KL. 9 12
JACKPOT KL. 6 - 8 - 10 16
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 9
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 8 16
DJÚPIÐ KL. 5.50 10
GOLDEN GLOBE TILNEFNINGAR
BESTA MYND
BESTI LEIKSTJÓRI