Morgunblaðið - 15.12.2012, Page 1

Morgunblaðið - 15.12.2012, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 5. D E S E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  295. tölublað  100. árgangur  HEFUR KLÆÐST SAMA JÓLAKJÓL Í ÁRARAÐIR RETRO STEFSON ÚR STRESSI Í FRIÐ HELGA ARNALDS HLAUT BJARTSÝNIS- VERÐLAUNIN SUNNUDAGUR MYNDIR OG BRÚÐUR 16INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR 10  Engir af eig- endum um tutt- ugu sumarhúsa í Heiðmörk eru farnir að búa sig undir að fjarlægja húsin, en um áramótin rennur út frest- ur sem Orku- veitan gaf þeim til að fjarlægja öll mannvirki af lóðunum. Fyrirtækið ætlar ekki að endurnýja lóðarleigusamn- ingana. Ragna Þorsteins segist enn halda í þá von að sumarhús henn- ar í Heiðmörk fái að standa, en húsið hefur verið í eigu fjölskyld- unnar í rúm sjötíu ár. Hún segir húsið hafa mikið tilfinningalegt gildi. »26 Vona að húsin fái að standa í Heiðmörk Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Ef hjúkrunarfræðingar fá kjaraleið- réttingu verður einnig að leiðrétta kjör annarra heilbrigðisstarfsmanna á Landspítalanum. Það er skoðun Kristínar Á. Guðmundsdóttur, for- manns Sjúkraliðafélags Íslands. Stjórnendur Landspítalans eru í stöðugum samskiptum við stjórn- völd um meiri fjármuni en fjöldi hjúkrunarfræðinga hefur sagt upp störfum vegna óánægju með kjörin. Niðurstaða er ekki fengin. Sjúkraliðar áskilja sér fullan rétt til að fara fram á leiðréttingu launa, hvort sem það verður í gegnum breytingu á stofnanasamningi eða með öðrum hætti, að því er fram kemur í ályktun kjaramálanefndar félagsins sem samþykkt var í gær. „Það er inni í kjarasamningum okkar og hjá fleirum að ef einhverjir aðrir fá eitthvað umfram það sem samið var um á það að ganga yfir til okkar líka. Of ef hjúkrunarfræðing- ar fá lagfæringu á stofnanasamningi og fjármagn inn í hann er það um- fram gerða samninga,“ segir Krist- ín. Í ályktun sjúkraliða kemur fram að álag hafi aukist gríðarlega og fyr- ir löngu komið að hættumörkum. „Það eru allir að kikna undan álagi,“ segir Kristín. Sjúkraliðafélagið hef- ur meðal annars leitað til Vinnueft- irlitsins vegna langvinnra veikinda sjúkraliða sem rakin eru til álags í starfi. Óöryggi hjá starfsfólki Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans, segir ljóst að ákveðins óör- yggis gæti meðal starfsfólksins hvað sé framundan en stjórnendur finni fyrir þreytu meðal fólksins, sérstak- lega frá hausti, enda hafi verið óvenjumikið að gera. Allar heilbrigðisstéttir krefjast leiðréttingar  Allir að kikna undan álagi, segir formaður sjúkraliða MFlókin staða »4 Mikið hefur verið um barneignir í Fjallabyggð á árinu; á Siglufirði hafa fæðst rúmlega 20 börn og í Ólafsfirði um 10. Þess má geta að í sveitar- félaginu öllu eru ekki nema um 2.000 íbúar. Eins og gefur að skilja er erfitt að ná saman 30 börn- um og foreldrum þeirra til myndatöku, en hér má sjá hluta þeirra barna sem fæðst hafa þetta árið á Siglufirði. Að sögn Sigurðar Ægissonar sóknarprests er að auki vitað um nokkrar sigl- firskar barnafjölskyldur sem eru að flytja til Siglufjarðar á næstunni, „enda hvergi betra að vera en á landsbyggðinni“. Árið 2011 fjölgaði um ellefu íbúa á Siglufirði. Konum fjölgaði um tólf en körlunum fækkaði um einn. Þetta er mesta fjölgun á Siglufirði í tvo áratugi. Einnig er þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem íbúum í Fjalla- byggð fjölgar. Áður hafði fækkað um 36-85 á ári, minnst 2010-2011 en mest 2007-2008. Fjölgun og mikil frjósemi í Fjallabyggð Morgunblaðið/Sigurður Ægisson  „Við hyggjumst styðja við menn- inguna eins og við getum og höfum hug á því að styðja við og standa fyrir fleiri menningarviðburðum á vori en við náðum að gera í haust,“ segir Birna Þórarinsdóttir, fram- kvæmdastýra Evrópustofu, um verkefni sem bíða næsta árs. Stefnt er að fundahöldum víða um landið líkt og á þessu ári. »14 Aukinn þungi færist í kynningu á ESB Hlé var gert á annarri umræðu um rammaáætl- unina á Alþingi í gærkvöldi. Þann- ig var hægt að mæla fyrir nokkrum öðrum frumvörpum í gærkvöldi og koma þeim til nefndar. Því var ekki fundað fram á nótt á Alþingi eins og allt stefndi í. Samkomulag þingflokkanna um þinglok liggur ekki fyrir en fulltrúar flokkanna munu hittast og ræða málin um helgina að sögn Illuga Gunnarssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. Rammaáætlun verður væntanlega tekin aftur til umræðu á mánudag nema viðræður þingflokkanna leiði annað í ljós. Óljóst um þinglok Frá Alþingi. dagar til jóla 9 Pottaskefill kemur í kvöld www.jolamjolk.is Ragna Þorsteins  Talsverður hvati hefur myndast hjá erlendum kröfuhöfum að selja krónueignir mjög hratt fyrir gjald- eyri. Slíkt kemur til í kjölfar þess að kröfuhafar hafa í auknum mæli reynt að nýta sérstakt ákvæði um fyrirframgreiðslu skulda í lána- samningum til að hraða útgreiðslu gjaldeyris á grundvelli undanþágu frá höftum. Seðlabankinn hefur hins vegar ekki veitt neinar slíkar stefnumarkandi undanþágur. »32 Hvati til að selja krónueignir hratt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.