Morgunblaðið - 22.12.2012, Qupperneq 4
Hrossaútflutningur 2012
Þýskaland
Svíþjóð
Danmörk
Sviss
Noregur
Bandaríkin
6 lönd af 16 - heildarfjöldi útfluttra hrossa er 1.333
541
148
124
130
80
40
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Í ár voru 1.333 hross flutt út til 16
landa. Fleiri hross voru flutt út í ár
en í fyrra. Hrossaútflutningur hefur
þó ekki náð sér á strik eftir hesta-
pestina sem herjaði á íslenska
hrossastofninn árið 2010. Fyrirhug-
að var að halda Landsmót hesta-
manna það ár en var frestað til árs-
ins 2011. Árið 2010 fóru 1.158 hross
úr landi, á móti 1.588 árið 2009.
Árið 2012 fóru flest hrossanna út
til Þýskalands. Íslenski hesturinn er
einnig eftirsóttur á Norðurlöndun-
um en útflutningur til þeirra landa er
þó langt frá því að vera í líkingu við
árin fyrir hestapestina. Til að mynda
fóru rúmlega 300 hross til Danmerk-
ur fyrir hestapestina en í ár einungis
þriðjungur af þeim fjölda.
Þá fóru 40 hross til Bandaríkjanna
í ár en einungis 15 árið á undan. Sá
markaður fer stækkandi ef marka
má tölurnar. Svisslendingar sækja í
íslenska hestinn í auknum mæli.
Eysteinn Leifsson hrossaútflytj-
andi segir að útflutningurinn sé að
hjarna við eftir hestapestina. „Við-
burður eins og landsmót, sem haldið
var í ár og einnig í fyrra, hefur alltaf
áhrif á hrossaútflutning. Þá komu
margir erlendir gestir og keyptu
hross,“ segir Eysteinn.
Spurður hvort hann greini aukna
eftirspurn eftir íslenska hestinum í
tilteknum löndum segir hann mark-
aðinn í Þýskalandi vera að koma til
baka. „Sviss hefur tekið mikinn kipp
upp á við og ég greini töluverða eft-
irspurn þar. Á móti hefur útflutning-
ur dregist saman til Svíþjóðar sem
var okkar langstærsti markaður,
hálfgert hrun hefur orðið á markaðn-
um þar. Annars held ég að allt sem
fer upp, fari líka niður. Við sjáum
það eins og í Þýskalandi, þar rækt-
uðu þeir mikið og sóttu ekki eins
mikið hingað. Eftir nokkurn tíma
sáu þeir að þeir þurftu að koma hing-
að og ná í eitthvað,“ segir Eysteinn.
Hann bendir á að í löndum eins og
Sviss og Þýskalandi séu efnahagsað-
stæður góðar og hægt sé að finna
samnefnara á milli þess og aukinnar
eftirspurn eftir íslenska hestinum.
Heimsmeistaramót íslenska
hestsins verður haldið í Berlín í
ágúst 2013. Eysteinn segir stemn-
ingu ríkja fyrir mótinu meðal áhuga-
manna um íslenska hestinn og bend-
ir á að það hafi eflaust ýtt undir
útflutninginn í ár. Mótið er haldið í
stórborginni sem er nýlunda.
Útlendingar rækta einnig hross
hér á landi, ýmist flytja þau út eftir
einhvern tíma eða afkvæmin, á með-
an sækja þeir þjónustu hingað.
„Þetta er eitt aðdráttaraflið sem
hesturinn okkar hefur,“ segir Ey-
steinn og bendir á að áhrif íslenska
hestsins séu víðtæk.
Fleiri hross flutt
úr landi í ár
Aukin eftirspurn í Þýskalandi og
Sviss Hrun á markaði í Svíþjóð
Morgunblaðið/RAX
Hrossaútflutningur Íslenski hest-
urinn er eftirsóttur víða um heim.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við gerum ráð fyrir því að tólf mán-
aða verðbólga gangi niður í janúar,
febrúar og mars og verði komin nið-
ur í 2,9% í mars 2013. Þetta eru svo-
lítið óvæntar tölur,“ segir Gústaf
Steingrímsson, sérfræðingur hjá
hagfræðideild Landsbankans, um
verðbólguhorfur næstu mánuði.
Lítil verðbólga á næstu mánuðum
skýrist að miklu leyti vegna svokall-
aðra grunnáhrifa.
„Verðlag hækkaði mikið í febrúar
og mars á þessu ári og vegna þess að
ekki er spáð sambærilegum hækk-
unum sömu mánuði 2013 mun verð-
bólga mælast minni en ella.“
Verðlag hækki um 3,8%
– Gefur minnkun verðbólgu á
næsta ári svigrúm til að lækka vexti?
„Þótt verðbólgan kunni að fara
niður í 2,9% í mars hefur það ekki
breytt sýn okkar á verðbólgu-
þróunina á næsta ári svo neinu nemi
og gerum við áfram ráð fyrir að
verðlag hækki um 3,8% milli 2012 og
2013. Töluverð veiking krónunnar
frá ágúst hefur ekki komið fram í
verðbólgunni með sama hætti og
hefði mátt búast við fyrirfram. Það
þarf þó ekki að þýða að hún eigi það
ekki eftir og sé ég því ekkert sér-
stakt tilefni til þess að Seðlabankinn
slaki á núverandi aðhaldsstigi.“
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Arion
banka, segir bankann spá ríflega 3%
ársverðbólgu í mars.
Horfurnar batna verulega
„Verðbólguhorfur eru að batna
verulega, sérstaklega ef við horfum
á síðustu mælingu. Hún er verulega
jákvæð. Við höfum séð áhrif vegna
veikingar krónunnar frá því í haust í
síðustu mælingum en það eru engin
áhrif í desember. Á fyrstu mánuðum
næsta árs munum við sjá árs-
verðbólgu ganga hratt niður og
spáum við því að hún verði ríflega
3% í mars. Við erum þó ekki að end-
urskoða langtímaspá okkar niður á
við,“ segir Ásdís sem telur hækkandi
fasteignaverð munu ýta undir verð-
bólguna á árinu 2013.
„Við erum bjartsýn um þróun
fasteignamarkaðarins. Á næsta ári
mun húsnæðisliðurinn spila stærra
hlutverk í verðbólgutölum. Ef krón-
an fer að veikjast smitast áhrifin um
leið inn í verðbólgutölur. Auðvitað
gætu kjarasamningarnir líka haft
áhrif. Það er veruleg óvissa um þá.
Ef það verða verulegar launahækk-
anir umfram það sem nú er gert
ráð fyrir munu þess strax sjást
merki í verðlagi,“ segir Ásdís sem
telur aðspurð að þessi þróun
muni ekki leiða til þess að
stýrivextir Seðlabankans
lækki. Fremur auki þessi
þróun líkur á að það verði
lengra í næstu vaxtahækkun.
Verðbólgan talin
minnka á nýju ári
Greining sérfræðinga Landsbankans og Arion banka
Þeim sem leituðu til Læknavakt-
arinnar vegna magakveisu fjölgaði
talsvert síðustu tvær vikur en alls
voru 33 greindir með niðurgang,
maga- eða garnabólgu í síðustu
viku, 22 vikuna þar á undan og 11
síðustu vikuna í nóvember.
„Við höfum merkt það að það
hefur verið aukning í magapestum,“
segir Þórður Ólafsson, yfirlæknir
Læknavaktarinnar, en hann segist
ekki vita til þess að ein ákveðin
pest sé að ganga frekar en aðrar.
„Þetta eru oft uppköst í byrjun með
niðurgangi og svo hætta uppköstin
en niðurgangurinn er heldur leng-
ur,“ segir Þórður.
Tilfellum inflúensu fjölgaði einnig
í síðustu viku, úr tveimur í átta, en
Þórður segir tilfellin það fá að
ómögulegt sé að draga af þeim
ályktanir. „Hins vegar hefur verið
mikið um kvefpestir, með miklum
hósta sérstaklega og fylgikvillum;
eyrnabólgu, ennis- og kinn-
holubólgum, og langvarandi hósta
jafnvel.“
Þórður segir aðsóknina á Lækna-
vaktina hafa verið nokkuð meiri á
þessum tíma í ár en á sama tíma
árin á undan. Á því sé þó engin ein-
hlít skýring. „Álagið í nóvember og
desember hefur verið töluvert
meira en undanfarin ár,“ segir
hann.
Samkvæmt aðsóknartölum
Læknavaktarinnar sóttu 1.566
þjónustu hennar í síðustu viku, viku
50, en 1.364 að meðaltali síðustu
tólf vikur. Alls voru 62 greindir
með hálsbólgu, samanborið við 50,4
að meðaltali síðustu tólf vikur, og
122 með miðeyrnabólgu, sam-
anborið við 90,7. holmfridur@mbl.is
Fleiri leita til Læknavakt-
arinnar vegna magapesta
Veikindi Þórður segir að svo virðist
sem RS-vírusinn sé í uppsveiflu.
Margir með
kvef og hósta
Fram kemur í Morgunkorni
greiningardeildar Íslandsbanka
að verðbólguþróunin kæmi sér-
fræðingum bankans á óvart.
Sagði þar orðrétt:
„Samkvæmt nýbirtri mæl-
ingu Hagstofu Íslands hækkaði
vísitala neysluverðs um 0,05%
á milli nóvember og desember.
Er þetta verulega undir þeirri
hækkun sem við, sem og aðrir
sem birta verðbólguspá opin-
berlega, bjuggumst við að yrði.
Gerðu opinberar spár ráð fyrir
0,3% til 0,4% hækkun milli
mánaða, og reiknuðum við með
0,4% hækkun,“ segir í Morgun-
korninu og er tekið fram að
tólf mánaða taktur
verðbólgu lækki úr
4,5% í 4,2% á
milli nóvember
og desember.
Ekki náðist í
Ingólf Bender,
forstöðumann
greiningardeildar
Íslandsbanka.
Óvænt
þróun
SÝN ÍSLANDSBANKA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhrifavaldur Ef gengi krónu veikist á nýju ári mun það ýta undir verðbólguna. Nú er verðbólgan að minnka.
YFIR 50 GERÐIR
GRILLA
Á TILBOÐISmiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
JÓLATILBOÐ
Er frá Þýskalandi
FULLT VERÐ
149.900
114.900 18,7kw/h
www.grillbudin.is
Opið kl. 11 - 18 laugardag
Opið kl. 13 - 18 sunnudag