Morgunblaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Samfara fjölgun nýskráninga fyr-
irtækja á hlutabréfamarkað síðustu
tólf mánuði þá virðist áhugi almenn-
ings á því að fjárfesta í hlutabréfum
hafa aukist umtalsvert. Heildareign
heimila í hlutabréfasjóðum nam
tæplega 7,3 milljörðum króna í lok
októbermánaðar, sem er tvöfalt
hærri upphæð en á sama tíma fyrir
ári.
Frá þessu er greint í fréttabréfi
Júpiters rekstrarfélags, en þar seg-
ir að þessi þróun sé til marks um að
íslensk heimili séu óðum að taka
hlutabréf í sátt sem fjárfestingar-
kost og sparnaðarform.
Hrein eign hlutabréfasjóða, sam-
kvæmt tölum Seðlabankans, nam
samtals 28,5 milljörðum í lok októ-
ber. Hlutfall eignar heimila í slíkum
sjóðum, 7,3 milljarðar, er því um
26%. Í þeim tölum er hins vegar
ekki tekið tillit beins eignarhalds
heimila og einstaklinga á skráðum
hlutabréfum, heldur aðeins hlut-
deildarskírteina í hlutabréfasjóðum.
Á það er bent í fréttabréfi Júpi-
ters að aukin eign heimila í hluta-
bréfum megi að einhverju marki
rekja til hækkana á hlutabréfaverði
á árinu sem er að líða. Hlutabréfa-
vísitala Kauphallarinnar hefur
hækkað um 13% það sem af er ári,
en hins vegar hefur gengi einstakra
félaga, meðal annars Haga og Ice-
landair, hækkað umtalsvert meira.
Slíkar hækkanir á gengi hlutabréfa
einskorðast þó ekki við íslenska
markaðinn, en erlendar hlutabréfa-
vísitölur hafa í flestum tilfellum
hækkað meira en sú íslenska.
Velta með hlutabréf á Íslandi hef-
ur smám saman aukist frá árinu
2009 – þegar hún nam aðeins 50
milljörðum – og á þessu ári virðist
flest benda til að hún verði hátt í 90
milljarðar. Fastlega má gera ráð
fyrir því að velta muni halda áfram
að aukast á næsta ári, ekki síst í
ljósi þess að ekki er gert ráð fyrir
stórum skuldabréfaútgáfum ríkis-
sjóðs og Íbúðalánasjóðs.
Eign heimila í hluta-
bréfasjóðum tvöfaldast
Hækkar úr 3,5 milljörðum króna í 7,3 milljarða á einu ári
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Uppbygging Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar. Íslensk heimili
virðast óðum hafa meiri áhuga á að fjárfesta í hlutabréfum.
Sókn í hlutabréf
» Áhugi íslenskra heimila á að
fjárfesta í hlutabréfum er óð-
um að aukast.
» Eign heimila í hlutabréfa-
sjóðum nam tæplega 7,3 millj-
örðum í lok október á þessu
ári. Á sama tíma fyrir ári var
hún aðeins 3,5 milljarðar.
» Hlutabréfavísitala Kauphall-
arinnar hefur hækkað um 13%
það sem af er ári.
Hækkunin á vísi-
tölu neysluverðs
í desember í ár
er minnsta
hækkun vísitöl-
unnar í desem-
bermánuði frá
aldamótum. En
frá þeim tíma
hefur vísitalan
að jafnaði hækk-
að um rúm 0,4% í
mánuðinum.
Þetta kemur fram í Morgunkorni
greiningar Íslandsbanka en sam-
kvæmt mælingu Hagstofu Íslands,
sem birtist í gær, hækkaði vísitala
neysluverðs um 0,05% á milli nóv-
ember og desember. Er þetta veru-
lega undir þeirri hækkun sem Ís-
landsbanki, sem og aðrir
greinendur, gerðu ráð fyrir.
Gerðu opinberar spár ráð fyrir
0,3% til 0,4% hækkun milli mánaða.
Í desember í fyrra hækkaði vísital-
an um 0,4% frá fyrri mánuði, og
lækkar því tólf mánaða taktur verð-
bólgunnar úr 4,5% í 4,2% á milli
nóvember og desember.
Greining Íslandsbanka bendir á
að óvænt lækkun á flugfargjöldum
til útlanda skýri að mestu leyti frá-
vik frá spám greiningaraðila.
Lækkuðu flugfargjöld um 3,7%, en
á síðustu fjórum árum hafa þau að
jafnaði hækkað á bilinu 12%-25%
milli nóvember og desember.
Minnsta
hækkun
á öldinni
Verðbólgan var
0,05% í desember
Verslun 12 mánaða
verðbólga er 4,2%.
Samþykkt var á hluthafafundi hjá
Eyri Invest í gær að auka hlutafé
félagsins um 231 milljón hluti. Til-
gangur hlutafjáraukningar er að
styrkja fjárhag félagsins og auka
sveigjanleika í rekstri, að því er
fram kemur í tilkynningu til Kaup-
hallar Íslands, en miðað er við
gengið 26 og því er heildarupphæð
hlutafjáraukningarinnar um 6 millj-
arðar króna. Stjórn Eyris hefur
ráðið Arctica Finance sem ráðgjafa
við hlutafjáraukninguna.
Í samtali við mbl.is sagði Árni
Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris,
að hlutafjáraukningin yrði notuð til
að styrkja frekar vöxt Stork BV,
sem Eyrir á 17% eignahlut í, en það
á og rekur iðnfyrirtækin Stork
Technical Services og Fokker Tec-
hnologies. Auk þess muni Eyrir
áfram styðja við sprotafyrirtæki í
gegnum Eyrir Sprotar, sem er
sjálfstætt félag um fjárfestingar í
nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum.
Fyrir ári jók Eyrir hlutafé sitt
um 10% með útgáfu á rúmlega 101
milljón nýrra hluta. Þau bréf voru
seld fyrir rúmlega 2,4 milljarða
króna. Í sumar var ennfremur til-
kynnt að Eyrir hefði tryggt sér
langtímafjármögnun hjá íslenskum
bönkum fyrir 2,1 milljarð króna.
Í tilkynningu til Kauphallar kem-
ur fram að á fundi stjórnar Eyris
hafi verið samþykkt að auka hlutafé
félagsins um allt að 231 milljón
hluta með útgáfu hluta í nýjum
flokki hlutabréfa, B-flokki, en það
eru forgangshlutabréf sem hafa
forgangsrétt að arðgreiðslum og
eru ávallt breytanleg í A-hluti. Slík
bréf eru hins vegar án atkvæðis-
réttar nema í þeim málum er varða
breytingar á arðgreiðslustefnu og
öllum málefnum er snúa að rétt-
indum B-hluta. Á fundinum var
einnig samþykkt að arðgreiðslu-
stefna félagsins verði hluti af sam-
þykktum.
Eyrir eykur hlutafé um 6 milljarða
Hlutafjáraukningin notuð til að styðja
við vöxt Stork og sprotafjárfestingar
Morgunblaðið/Golli
Fjármögnun Árni Oddur Þórð-
arson, forstjórir Eyrir Invest.
● Samkeppniseftirlitið hefur lagt 45
milljóna króna sekt á Sorpu fyrir brot á
samkeppnislögum. Telur eftirlitið að
Sorpa hafi brotið gegn samkeppn-
islögum með því að misnota markaðs-
ráðandi stöðu sína á markaði fyrir
flokkun og meðhöndlun úrgangs.
Þetta gerði Sorpa með því að veita
eigendum sínum, sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu, hærri afslætti en
öðrum viðskiptavinum, jafnvel þótt fyr-
irtækin kæmu með meira magn af sorpi
en sveitarfélögin í móttökustöð Sorpu.
Sorpa sektuð um 45
milljónir króna
● Sænska ríkis-
stjórnin lækkaði í
gær hagvaxtarspá
sína fyrir árið í ár
og næsta ár. Er nú
talið að hagvöxt-
urinn verði 0,9% í
ár í stað 1,6% sam-
kvæmt fyrri spá.
Á næsta ári
hljóðar spáin upp á
1,1% hagvöxt en
áður hafði sænska fjármálaráðuneytið
gert ráð fyrir því að hagvöxturinn yrði
2,7%.
Að sögn Anders Borg, fjármála-
ráðherra Svíþjóðar, er ástæðan verri
horfur í Evrópu og óvissa í ríkisfjár-
málum Bandaríkjanna. „Við getum
vænst erfiðs árs 2013,“ segir Anders.
Lækka hagvaxtarspána
Fjármálaráðherra
Anders Borg.
● Matsfyrirtækið Standard & Poor’s
hefur lækkað lánshæfiseinkunn Kýpur
um tvö stig niður í CCC+. Einkunn ey-
ríkisins var þegar komin í svonefndan
ruslflokk og fer nú enn neðar í þeim
efnum með lækkuninni.
Fram kemur á fréttavefnum Eu-
observer.com að lækkunin sé tilkomin
vegna þess að hættan á að Kýpur geti
ekki staðið við skuldbindingar sínar og
kunni að lenda í greiðsluþroti hafi auk-
ist.
Óttast gjaldþrot Kýpur
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,/1.2,
+,3.+
,,.0+4
,,.-,-
+4.000
+03.22
+.143-
+41.1+
+--.51
+,-.00
,/5.0,
+,3.13
,,.021
,,.-40
+4.04
+02.,3
+.5/,
+41.44
+-3./+
,,2.2110
+,-.-0
,/5.2,
+,3.21
,,.114
,,.3-
+4.113
+02.--
+.5/-1
+45.53
+-3.12
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á