Morgunblaðið - 22.12.2012, Síða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
✝ Helgi JúlíusHálfdánarson
fæddist í Valdarás-
seli í Víðidal 19. júlí
1927 og lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 14. desember
2012.
Hann fluttist
fjögurra ára með
foreldrum sínum að
Litlu-Þverá í Mið-
firði, en þegar hann
var ellefu ára gamall flutti fjöl-
skyldan að Valshamri, Mýra-
sýslu. Foreldrar hans voru hjón-
in Hálfdán Árnason bóndi, f. 15.
mars 1897, d. 20. desember 1959
og Elín Jónsdóttir húsfreyja, f.
11. október 1888, d. 29. maí
1982. Systur Helga voru Sigríð-
ur, f. 12. febrúar 1920, Jóhanna,
f. 23. janúar 1921. Þær eru báðar
látnar. Þriðja systirin er Júlíana
Svanhildur, f. 4. maí 1932, og býr
hún í Borgarnesi. Helgi kvæntist
eftirlifandi eiginkonu sinni
Sveinfríði Sigurðardóttur hús-
freyju, f. 18. nóvember 1939,
þann 8. desember 1957. For-
urð Svein Jónsson, f. 29. mars
1974 og Ástbjörgu Rut Jóns-
dóttur, f. 8. júlí 1978. Hálfdán
gekk þeim í föðurstað. 2) Valur
Þór bóndi, f. 26. október 1962; 3)
Hafdís Elín íþróttafræðingur, f.
23. janúar 1965; gift Guðna Jóns-
syni verslunarmanni, f. 15. júlí
1965. Börn þeirra eru Heiðdís
Helga, f. 19. desember 1983, El-
ísabet Björk, f. 5. apríl 1992 og
Guðni Valur f. 11. október 1995.
4) Gunnar Geir, f. 7. maí 1966, d.
21. maí 1966. Uppeldissonur
Helga frá sex ára aldri og bróðir
Sveinu er Ólafur Emil Sigurðs-
son búfræðingur, f. 14. desem-
ber 1950. Hann er kvæntur Vig-
dísi Þorsteinsdóttur, f. 12. apríl
1957. Þau eignuðust fjögur börn,
en þrjú þeirra létust á unga
aldri. Sonur þeirra er Stefán
Ingi, f. 18. maí 1978. Barna-
barnabörn Helga og Sveinu eru
níu talsins. Helgi og Sveina tóku
við blönduðu búi foreldra Helga
að Valshamri, fyrrum Álftanes-
hreppi, Mýrum, nú Borgarbyggð
og ráku það allt þar til Valur Þór
sonur þeirra tók við búrekstr-
inum fyrir nokkrum árum. Þau
bjuggu áfram á Valshamri ásamt
Val.
Úför Helga verður gerð frá
Borgarneskirkju laugardaginn
22. desember 2012 og hefst at-
höfnin klukkan 14.
eldrar Sveinfríðar
voru Sigurður
Helgason, f. 29. apr-
íl 1913, d. 19. mars
1998 og Ágústa
Sumarliðadóttir, f.
12. október 1920, d.
5. febrúar 2000. Al-
systkini Sveinfríðar
eru Sigurlín Jóna
Margrét, f. 11. maí
1943; Ingibjörg, f.
21. maí 1944, en
hún er látin; Guðrún, f. 6. nóv-
ember 1945; Sigurjón, f. 17. júní
1947 og Ólafur Emil, f. 14. des-
ember 1950. Hálfsystir þeirra
sammæðra er María Alexand-
ersdóttir, f. 8. september 1953.
Helgi og Sveina eignuðust
fjögur börn. Þau eru: 1) Hálfdán
Sigurður bóndi, f. 18. apríl 1958;
kvæntur Margréti Jóhanns-
dóttur grunnskólakennara, f. 5.
júní 1954. Börn þeirra eru Jó-
hanna Sveina, f. 21. nóvember
1986 og Helgi Elí, f. 27. apríl
1989. Fyrir eignaðist Hálfdán
Valdísi Brynju, f. 27. september
1981, og Margrét eignaðist Sig-
Á tímamótum sem þessum
hugsar maður til baka og rifjar
upp skemmtilegar stundir og
minningar. Alla mína tíð hefur
ekkert verið sjálfsagðara en að
fara yfir á Valshamar til ömmu
og afa. Ég er nafni afa og hann
heilsaði mér alltaf eins: „Sæll
nafni minn.“
Í byrjun sumars hvert ár fór
ég með afa, pabba og Valla að
sækja heyvinnuvélarnar í Árbæ
sem er eyðijörð ofan við Háhól.
Ég fór oftast með afa í dráttar-
vélinni og hann lét eins og við
værum í kappakstri við hina. Til-
hlökkun fyrir þessum degi alltaf
mikil en mér er þó sérstaklega
minnisstætt eitt skipti. Ég var
fjögurra ára og þegar við komum
í Árbæ sagði afi við mig að passa
mig nú á naglaspýtunum þarna í
kring. Einmitt í því steig ég á
nagla sem fór í gegnum sólann á
skónum mínum og inn í il. Ég
man lítið meira eftir þessari ferð
því allur hugur fór í að halda niðri
tárunum og fela fyrir afa hvað
hafði gerst.
Þegar ég var gutti manaði afi
mig oft í kapp við matarborðið,
ekki það að ég hafi verið ragur
við matinn enda alltaf veislumat-
ur hjá ömmu. Ég féll lengi fyrir
þessu og fannst ótrúlegt að ég
skyldi alltaf vinna.
Ég var oft með afa. Sat í drátt-
arvélinni hjá honum þegar hann
var að binda bagga, fór með hon-
um í fjárhúsin, fjós og fleira. Afi
hafði sérstakt göngulag sem
þekktist úr fjarlægð. Hann gekk
yfirvegað með hendur fyrir aftan
bak og stundum tókum við systk-
inin upp þetta sama göngulag,
vildum ganga eins og afi.
Afi talaði oft um gamla tíma,
sagði sögur úr heyskap, af fjalla-
ferðum, leitum, kindum, hestum
og hundum. Enda helstu áhuga-
mál hans. Afi var hættur að fara í
fyrstu leitir þegar ég hafði aldur
til en við fórum nokkrum sinnum
saman í eftirleitir og smöluðum
heimalöndin. Afi var, eins og sagt
er, smalalega vaxinn og var léttur
á sér í leitum.
Afi hafði mjög gaman af því að
renna fyrir lax. Uppáhalds veiði-
staðurinn hans voru Strengirnir
fyrir neðan Skuggafoss í Langá.
Hann fór sjaldan þaðan fisklaus.
Ég var 16 ára þegar ég fór fyrst
með honum í Langá og ég ætlaði
varla að trúa því hvað hann
breyttist. Afi, sem var hægur og
farinn að ganga rólega um, yngd-
ist um að minnsta kosti 25 ár og
stiklaði létt í grjótinu með ánni,
niður brekkur og út í á. Við áttum
margar góðar stundir við ána og
afi var ansi glúrinn veiðimaður.
Sumarið 2008 var hann mjög
heilsulaus en fékkst til að koma
með í smástund. Við pabbi studd-
um hann niður að Strengjunum
og um leið og hann fékk stöngina
í hönd var lax á. Sumarið eftir
fékk afi lax í veiðistaðnum Krókó-
díl, rétt ofan við Sjávarfoss. Við
pabbi reyndum að benda honum
á að auka þyrfti bremsuna á hjól-
inu ella færi fiskurinn aftur til
sjávar. Afi hélt nú að hann kynni
þetta og hvað við værum eigin-
lega að skipta okkur af. Laxinn
kom á land örþreyttur, afi naut
hverrar sekúndu sem fiskurinn
var á. Þetta voru frábærir dagar.
Afi var mér alltaf mjög góður
og dekraði mig mikið, gaf mér
meðal annars veiðistöng, fjár-
mark og hest. Við afi áttum
margar góðar stundir saman en
nú er komið að kveðjustund.
Takk fyrir allt, afi minn.
Þinn nafni,
Helgi Elí, Háhóli.
Elsku afi minn.
Það er svo margt sem ég vil
spjalla um við þig eins og við ger-
um alltaf. Ég veit að við munum
gera það áfram og ég veit að þú
ert hjá okkur og fylgir okkur allt-
af.
Ég er svo þakklát fyrir allar
stundirnar okkar saman og alla
þá ást og umhyggju sem þú sýnir
mér alltaf. Alltaf svo vinalegur og
hlýr í tali til mín og iðulega þegar
við höfum verið að spjalla saman
hefur þú sagt við mig „dúfan
mín“. Mér þykir sérstaklega
vænt um það og hlýnar alltaf í
hjartanu þegar þú segir það.
Það er ýmislegt sem við höfum
brallað í gegnum tíðina og þú ert
svo stór hluti af mínu lífi. Þú hef-
ur sagt okkur systkinunum ótal
sögur úr gamla tímanum sem er
alltaf svo skemmtilegt að hlusta
á.
Það er svo dýrmætt að hafa al-
ist upp með ykkur ömmu bara
hinum megin við ána. Það eru
forréttindi að geta alltaf skroppið
„yfir“ og kíkt til ykkar.
Það eru ófá skiptin sem ég hef
verið heima á Háhóli, horft yfir
að Valshamri og séð hvar þú afi
gengur í átt að fjósinu eða fjár-
húsunum í rólegheitunum með
hendur fyrir aftan bak og með
bláu húfuna. Göngulagið þitt er
auðþekkjanlegt og það er svo
notalegt að ganga með þér.
Það er svo ótal margt sem
kemur upp í hugann, sem ég hef
líka oft hugsað um í gegnum tíð-
ina og mun minnast um ókomna
tíð. Sem örfá dæmi um það eru;
afi í traktornum með rauðu
baggabindivélina, afi á græna
Deutz að múga, afi í smala-
mennsku, afi í réttunum, afi að
brynna kindunum, afi að veiða,
afi að dytta að vélunum, afi í
sauðburði, afi að vinda upp lop-
ann í eldhúsinu, afi og amma að
dansa glæsilega, afi að spila við
okkur systkinin við eldhúsborðið
á Vals, afi að byggja spilahús, afi
við skrifborðið sitt, afi að sinna
okkur systkinunum og hafa ofan
af fyrir okkur, afi að leika við
okkur og byggja fjárhús úr kubb-
um fyrir Bíldu, afi að segja
brandara og gantast, afi að hlusta
á útvarpið og fletta blöðum inni í
sjónvarpsherbergi eftir hádegis-
matinn, afi með hlýja faðmlagið
sitt.
Þegar ég var í menntaskóla
hafði ég það sem fastan lið að
skrifa ykkur ömmu bréf um það
sem á daga mína dreif. Það var
bara aukalega, til viðbótar við
það þegar við hittumst og töluð-
um í síma. Skrifin höfðu svo
mikla þýðingu fyrir mig og þegar
pabbi sagði mér svo sérstaklega
frá því að þið hefðuð svo mikla
ánægju af bréfunum og að lestur
þeirra væri nokkurskonar athöfn
hjá ykkur, þá veitti það mér enn
meiri gleði og hlýju. Þannig eru
þau afi og amma, kærleikurinn í
einu og öllu.
Ég elska þig svo mikið, elsku
afi, og þú hefur alltaf átt og munt
alltaf eiga sérstakan stað í hjarta
mínu.
Dúfan þín,
Jóhanna Sveina.
Elsku afi minn.
Nú þegar komið er að leiðar-
lokum hjá þér langar mig að
hripa niður örfá orð til að þakka
þér fyrir að hafa verið til. Til að
þakka þér fyrir að hafa verið
sannur afi minn, þó að ég hafi
verið orðin næstum 5 ára þegar
ég kom inn í þitt líf.
Fyrstu minningar mínar úr
sveitinni eru af þér gangandi
hægum skrefum í kringum Vals-
hamarinn, með stafinn í hönd og
hundinn á hælunum. Fyrir mér
voruð þið Lappi gamli óaðskilj-
anlegir, þegar ég kynntist ykkur.
Mér finnst eins og ég hafi tölt ótal
sinnum með þér um landareign-
ina á þessum árum og upp á ham-
ar að kíkja eftir kindum. Á haust-
in varst þú aðalmaðurinn í mínum
huga og ég var handviss um að þú
værir allra manna fróðastur um
fjármörk og rúning. Ég var svo
stolt af því, að þegar finna þurfti
út eiganda óþekktra marka í rétt-
unum, fór fólk og leitaði ráða hjá
afa mínum. Afa mínum! Það var
alveg örugglega enginn klárari í
þessu en þú.
Mínar dýrmætustu minningar,
sem ég mun alltaf geyma, eru
spjallstundirnar sem við áttum
alveg fram á það síðasta og sög-
urnar sem þú sagðir mér stund-
um, sem oftast voru dulúðlegar
og spennandi hetjusögur af fjöll-
um. Nýlega rifjuðum við einmitt
upp eina af þessum sögum og
mér þótti svo vænt um að þú
myndir enn eftir henni. Það yljaði
mér um hjartarætur hvað hýrn-
aði yfir þér við að rifja hana upp.
Elsku Helgi afi, ég vona að nú
sértu einhvers staðar hlaupandi
um fjöll og firnindi, frár á fæti
með hund þér við hlið, sáttur og
sæll.
Takk fyrir samveruna, sofðu
rótt.
Ástbjörg Rut Jónsdóttir
(Adda).
Helgi Júlíus
Hálfdánarson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi, langafi
og langalangafi,
SIGURÐUR HJARTARSON
bakarameistari,
Álfaskeiði 96,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
20. desember.
Bára Jónsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN VALGEIR GUÐMUNDSSON,
Hjallastræti 32,
Bolungarvík,
lést miðvikudaginn 19. desember á
Sjúkraskýlinu í Bolungarvík.
Jón Valgeir verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bolungarvík
laugardaginn 29. desember kl. 14.00.
Rannveig Snorradóttir,
Elísabet Jónsdóttir, Þór Sigurjón Ólafsson,
Snorri Hildimar Jónsson, Þórhildur Sigurðardóttir,
Guðrún Jónína Jónsdóttir, Halldór Jón Hjaltason,
Lára Kristín Jónsdóttir, Lúðvík Karlsson,
Selma Guðmunda Jónsdóttir,Guðmundur Ólafur Birgisson,
Erna Jónsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÞÓRIR STURLA KRISTJÁNSSON
byggingameistari,
Erluási 74,
Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut föstudaginn 21. desember.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Barnaspítala Hringsins.
Guðmunda Inga Veturliðadóttir,
Hulda Guðborg Þórisdóttir, Davíð Þór Sigurbjartsson,
Jón Friðgeir Þórisson, Steinunn Sigurmannsdóttir,
Gunnar Þórisson, Nina Kristiansen,
Ingi Sturla Þórisson, Sigrún Líndal Pétursdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær unnusti minn, faðir okkar, sonur og
bróðir,
HILMAR ÆVAR JÓHANNESSON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu.
Jarðarför auglýst síðar.
Málfríður Agnes Kristjánsdóttir,
Berglind Freyja Hilmarsdóttir,
Myrkvi Páll Blöndal Hilmarsson,
Agnes Freyja Hilmarsdóttir,
Jóhannes Ævar Hilmarsson, Berglind Jóhannsdóttir,
Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VIKTOR DAÐI BÓASSON,
Malarási 7,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 19. desember.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
28. desember kl. 13.00.
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Aðalheiður Eva Viktorsdóttir,
Þorsteinn Viðar Viktorsson, Helga Hrönn Lúðvíksdóttir,
Elvar Örn Viktorsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Elísabet Björk og Karen LInd.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
SKJÖLDUR ÞORGRÍMSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtu-
daginn 20. desember.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Minningarsjóð Skjóls.
Þórhildur Hólm Gunnarsdóttir,
Una Svava Skjaldardóttir, Chuck Rogers,
Þorgrímur Skjaldarson,
Tryggvi Lúðvík Skjaldarson, Halla María Árnadóttir,
Ásthildur Skjaldardóttir, Birgir Aðalsteinsson,
Guðbjörg Skjaldardóttir, Sigurður Árnason,
Guðrún Viktoría Skjaldardóttir, Björn Guðmundsson,
barnabörn, langafabörn
og langalangafabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
SÆMUNDUR PÁLMI JÓNSSON,
Hornbrekku, heimili aldraðra,
Ólafsfirði,
áður til heimilis að Bylgjubyggð 20,
lést sunnudaginn 16. desember.
Útför fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
föstudaginn 28. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er vinsamlegast bent á Ólafsfjarðarkirkju eða
Björgunarsveitina Tind í Ólafsfirði.
Jón Steingrímur Sæmundsson, Marý Baldursdóttir,
Árni Arnar Sæmundsson, Hanna Maronsdóttir,
Gestur Heimir Sæmundsson, Gunnhildur Sigurðardóttir,
Hafsteinn Þór Sæmundsson, Kristín Margrét Adolfsdóttir,
Matthías Sæmundsson, Guðný Leifsdóttir,
Brynjar Sæmundsson, Þyrí Stefánsdóttir
og fjölskyldur þeirra.