Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Það er mjög gaman að vera í laufa-
brauði og stundum fer ég á bæi til
þess að taka þátt í því að skera
brauðið. Ég man eftir mér pínulítilli
að skera og því hefur áhuginn verið
lengi.“
Þetta segir Olga Marta Ein-
arsdóttir, bóndi á Einarsstöðum í
Þingeyjarsveit, en hún hefur eins og
margir aðrir verið önnum kafin við
jólaundirbúninginn. Hjá henni eru
laufabrauðsdagarnir fleiri en hjá
flestum öðrum.
„Ég nota aldrei hjól við útskurð-
inn heldur hef ég mjög gaman af að
móta eitthvað og skapa með vasa-
hnífnum,“ segir Olga Marta, en hún
mótar meðal annars kirkjur, krossa,
lauf og stjörnur í kökurnar.
Nýlega gerði hún laufabrauð með
stórfjölskyldunni, um það bil 300
kökur. Hún fór svo á tvo aðra
sveitabæi til þess að taka þátt í
skurðinum og var aufúsugestur því
ekki gera allir eins kökur. Þetta
auðgar listina og brauðið verður
margvíslegt í útliti.
Persónulegur stíll
Laufabrauð er séríslenskt brauð
sem var lengi vel bundið við Norður-
land en siðurinn hefur dreifst um
landið. Það er mjög þekkt á Norð-
urlöndum að gera eitthvert fallegt
hátíðarbrauð. Fyrr á öldum var
stundum mikill skortur á mjöli og
hveiti á Íslandi og því gerðu margir
kökurnar þunnar til þess að spara og
gera þær fleiri svo allir fengju sinn
skammt. Ástæðan var einnig sú að
kökurnar geymdust betur en þykk
brauð og töluðu sumir um að þær
þyrftu að vera næfurþunnar þannig
að hægt væri að lesa í gegnum þær.
Laufabrauðsskurðurinn er oft
mjög persónulegur og afbrigðin
margvísleg. Margir nota hjól nú til
dags við skurðinn, en þeir eru líka
margir sem vilja halda í þá hefð að
nota vasahnífinn, enda gefur hann
mun meiri möguleika í þeirri list-
sköpun sem fram fer.
Fyrr á árum var það mikið verk
að fletja út, en það hefur færst í
aukana að fólk kaupi kökurnar og fái
þær útflattar. Sumir fullorðnir segja
þær kökur sem fást í búðunum ekki
eins og gamla laufabrauðið á bæj-
unum, en yngra fólkið lætur sér vel
lynda.
Hver laufkaka listaverk
Laufabrauðsgerð er mjög mikil í
Þingeyjarsýslum í dag og byrja
margir seinast í nóvember til þess að
vera búnir í tæka tíð fyrir jól. Sér-
staklega á það við um þær fjöl-
skyldur sem gera mjög mikið magn
og víða eru haldin ættarmót í laufa-
brauðsgerð á aðventunni.
Olgu Mörtu finnst þetta skemmti-
legur tími og hún vill hafa kökurnar
góðar á bragðið. Hún er lengi að
skera hverja köku eins og í gamla
daga þegar fólk skar út sveitabæi,
en vandvirkni krefst mikils tíma.
Hún myndi gjarnan vilja hafa kök-
urnar stærri að flatarmáli og þá
myndi hún vilja skera út í þær heil
jólaþorp í allri sinni dýrð með kirkju
og mörgum stjörnum.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Olga Marta „Nota aldrei hjól við útskurðinn, heldur hef ég mjög gaman af að móta eitthvað og skapa með vasahnífnum.“
Laufabrauðið er listsköpun
Olga Marta Einarsdóttir, bóndi
á Einarsstöðum í Þingeyjarsveit,
hefur verið önnum kafin við jóla-
undirbúninginn á aðventunni
Listaverk Ein kakan tekur á sig
mynd í höndunum á Olgu Mörtu.
Laufabrauð Kökurnar hennar Olgu Mörtu eru listaverk.
Laufabrauð
» Laufabrauð er næfurþunn
og stökk hveitikaka sem er
mikilvægur hluti íslenskra jóla
og þorrans.
» Ekki er vitað hvenær farið
var að gera laufabrauð. Minnst
er á það í orðabók Jóns Ólafs-
sonar frá Grunnavík frá fyrri
hluta 18. aldar.
Brautarholti 10-14 / 105 Reykjavík / 575 2700 / pixel@pixel.is / www.pixel.is
Við prentum alla regnbogans liti.
Við bjóðum upp á alla almenna prentun,
ráðgjöf, skönnun, umbrot, bókband
og umsjón með prentgripum.
Pixel er alhliða prentþjónusta með
starfsstöðvar í Reykjavík og á Ísafirði.
Pixel þýðir myndeining - sem er minnsta eining úr mynd.
Orðið pixel er byggt á samblöndu úr orðunum
pix (pictures) og el (element)
Nafnspjöld, bréfsefni
og umslög!
Átta ungir vísindamenn á Landspít-
ala fengu styrk úr Vísindasjóði LSH
til klínískra rannsókna við athöfn í
Hringsal 19. desember sl. Hver
styrkur nam einni milljón króna.
Vísindamennirnir ungu kynntu
rannsóknir sínar með stuttum erind-
um.
Vísindamennirnir eru Anna Bryn-
dís Einarsdóttir deildarlæknir fyrir
rannsóknina: Óútskýrður skyndi-
dauði hjá flogaveikum, Guðrún Dóra
Bjarnadóttir, deildarlæknir og dokt-
orsnemi, fyrir rannsóknina: Notkun
methýlfenidats í æð meðal íslenskra
vímuefnaneytenda, dr. Paolo Gar-
giulo verkfræðingur fyrir rannsókn-
ina: Áhættugreining á lærbeinsbroti
við og eftir heildarmjaðmarliða-
skipti, Sigríður Birna Elíasdóttir
deildarlæknir fyrir rannsóknina:
Undirliggjandi ástæður háþrýstings
og merki um marklíffæraskemmdir
hjá 9 ára gömlum íslenskum börn-
um, Sigurður James Þorleifsson
deildarlæknir fyrir rannsóknina:
Lungnatrefjun á Íslandi, dr. Una
Bjarnadóttir lífefnafræðingur fyrir
rannsóknina: Hlutverk ósérhæfða
ónæmiskerfisins og Bláa lóns efna á
sérhæfingu T-frumna, dr. Þórdís
Katrín Þorsteinsdóttir hjúkrunar-
fræðingur fyrir rannsóknina: Áhrif
efnahagshrunsins á Íslandi á dán-
artíðni, sjúkdómstíðni og sjálfsskaða
og Össur Ingi Emilsson, deildar-
læknir og doktorsnemi, fyrir rann-
sóknina: Tengsl vélindabakflæðis að
nóttu við öndunarfærasjúkdóma og
kæfisvefn.
Ljósmynd/Anna Ellen Douglas
Styrkir Aftari röð: Sigurður J. Þorleifsson, Össur Ingi Emilsson, Una
Bjarnadóttir, Paolo Gargiulo. Fremri röð: Guðrún Dóra Bjarnadóttir, Sig-
ríður B. Elíasdóttir, Anna Bryndís Einarsdóttir, Þórdís K. Þorsteinsdóttir.
Ungir vísindamenn styrktir