Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 32
FRÉTTASKÝRING Karl Blöndal kbl@mbl.is Blóðbaðið í bænum Newtown í Connecticut 14. desember hefur enn einu sinni hrundið af stað um- ræðu um að banna sjálfvirk skot- vopn í Bandaríkjunum. Þá réðist vopnaður maður inn í grunnskóla í bænum og myrti 20 sex og sjö ára börn og sex starfsmenn skólans, sem voru að reyna að verja börnin. Barack Obama lýsti yfir því á miðvikudag í liðinni viku að hann hygðist setja málið á oddinn á öðru kjörtímabili sínu og hét því að leggja víðtækar tillögur um bann við eign á skotvopnum fram á þingi eigi síðar en í janúar. Hann sagðist jafnframt myndu beita öllu því valdi, sem embætti forseta fylgdi, til að knýja fram breytingar á byssulöggjöfinni „til að koma í veg fyrir fleiri harmleiki af þessu tagi“. Obama á erfiða baráttu fram- undan. Félag bandaríska byssueig- enda, NRA, hefur jafnan verið öfl- ugur andstæðingur hvers kyns banns við eign skotvopna og mun beita sér af alefli gegn Obama. Á föstudag hélt NRA blaða- mannafund þar sem varaforseti samtakanna, Wayne LaPierre, hvatti til þess að Bandaríkjaþing hlutaðist til þess að vopnaðir lög- regluþjónar eða öryggisverðir yrðu látnir standa vörð við alla skóla í landinu. „Það eina sem stoppar illmenni með byssu er góðmenni með byssu,“ sagði LaPierre á blaða- mannafundinum og fullyrti að byssueign væri ekki vandamálið, heldur skortur á öryggisgæslu og kvikmyndir frá Hollywood og tölvuleikir, sem væru óður til og ýttu undir ofbeldi. Daginn áður höfðu þekktir leik- arar og tónlistarmenn, þar á meðal Jeremy Renner, Gwyneth Paltrow og Beyonce, kynnt myndband þar sem krafist er aðgerða í skot- vopnamálum eftir morðin í Sandy Hook-grunnsólanum í Newtown. Í myndbandinu er farið fram á að sett verði bann við hríðskota- byssum og gert skylt skoða að sakaskrá þeirra, sem hyggjast kaupa sér byssu „fyrir börnin í Sandy Hook“, heyrist rödd söng- konunnar Beyonce segja. Máttur NRA er mikill og stjórn- málamenn eru margir hræddir við ítök samtakanna. Stefna samtak- anna samræmist hugmyndafræði repúblikana mun frekar en demó- krata. Engu að síður hefur demó- krataflokkurinn komið sér hjá því að taka afstöðu með því að koma böndum á byssueign og víða í Bandaríkjunum líta frambjóðendur demókrata svo á að stuðningur við slíka löggjöf jafngildi pólitísku sjálfsmorði. Bréf til dómsmálaráðherra Obama getur því ekki verið viss um að eiga stuðning flokkssystkina sinna á þingi. Til marks um það er að þegar Eric Holder dómsmála- ráðherra lýsti yfir því 2009 þegar meintir félagar úr Sinaloa-glæpa- samtökunum voru handteknir að hann vildi gera nokkrar breytingar í sambandi við skotvopn, þar á meðal að endurvekja bann við sölu sjálfvirkra byssa, skrifuðu 65 full- trúadeildarþingmenn demókrata honum bréf. „Við erum harðir stuðningsmenn annarrar viðbótar- greinar stjórnarskrárinnar og það veldur okkur því þungum áhyggj- um að stjórnin hyggist þrýsta á um að bannið frá 1994 við „sjálf- virkum skotvopnum“ og [stórum hleðslum margra umferða skot- hylkja] verði endurvakið,“ skrifuðu þeir og kváðust myndu leggjast al- farið gegn slíkum tilraunum á þingi. Andrúmsloftið að breytast? Nú eru þó ýmsar vísbendingar um að andrúmsloftið á þinginu sé að breytast. Fjöldi demókrata, þar á meðal þingmenn frá íhaldssöm- um ríkjum, hafa nú sagt að taka verði málið upp á þingi á næsta ári. Sérstaklega var til þess tekið að Harry Reid, öldungadeildar- þingmaður frá Nevada og leiðtogi meirihluta demókrata, sagði í upp- hafi liðinnar viku að hann væri op- inn fyrir nýjum takmörkunum við byssueign. Reid hefur verið harður stuðningsmaður réttarins til að eiga skotvopn. Andrúmsloftið kann því að vera að breytast í þeirra röðum, en til þess að koma breytingum í gegn- um þingið þarf líka stuðning úr röðum repúblikana þar sem fyr- irstaðan er mikil. Það verður því þrautin þyngri, þótt reiði almenn- ings vegi upp á móti þrýstingi hagsmunasamtakanna NRA. Byssueign enn sett á oddinn  Obama hyggst gera allt til að banna sjálfvirk skotvopn  Félag skotvopnaeigenda erfitt viðureignar  Tekur bann ekki í mál, en vill vopnaða verði í skóla  Afstaðan á þingi gæti verið að breytast AFP Sorg Syrgjandi setur viðarkross við götu í Newtown í Connecticut til minningar um börnin, sem féllu í árásinni í Sandy Hook-grunnskólanum fyrir rúmri viku. Morðin hafa vakið umræðu um eign skotvopna í Bandaríkjunum. 32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012 Bannið frá 1994 átti sér nokk- urn aðdraganda. Snemma árs 1989 hóf maður vopnaður sjálfvirkum riffli skothríð á börn á skólalóð. Fimm börn á aldrinum sex til níu ára létu lífið og 29 særðust. Þegar hófst umræða um að banna sjálfvirk skotvopn. NRA þvæld- ist fyrir við hvert fótmál og stjórnmálamenn deildu. Það tók fimm ár að koma banni við sjálfvirkum skotvopnum um öll Bandaríkin í gegnum þingið. Til að það tækist voru gerðar ýmsar málamiðlanir. Þar á meðal tókst andstæðingum bannsins að koma inn sól- arlagsákvæði seint í ferlinu þess efnis að bannið stæði að- eins til 2004. Könnun, sem Háskóli Penn- sylvaníu gerði á banninu, sem einnig tók til hleðslna með miklum fjölda skothylkja, sýndi að það hafði haft takmörkuð áhrif á glæpi þar sem skot- vopn komu við sögu. Þeir, sem gerðu rannsóknina, sögðu að undantekningarnar hefðu verið of margar. Bannið tók ekki til sjálfvirkra vopna og byssna með stórum hleðslum fram- leiddra fyrir 1994 sem þýddi að 1,5 milljónir sjálfvirkra skot- vopna voru áfram í umferð. Þá þurfti að skilgreina sjálfvirk vopn og byssuframleiðendur fundu leiðir til að gera vopnin þannig úr garði að þau féllu ekki undir skilgreininguna þótt í raun væru þau sjálfvirk. Bannið frá 1994 til 2004 ATLÖGUR AÐ BYSSUEIGN AFP Deilt um byssur Byssusali í Connecticut auglýsir vöru sína. Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Tilboðsverð kr. 99.900 Vita Mix kanna fylgir með meðan birgðir endast Fullt verð kr. 117.530 Jólagjöfin í ár! Mannréttindasamtök í Sýrlandi segja að yfir 60 hafi látið lífið í borginni Halfaya í Sýrlandi í gær þegar orrustuþota stjórnarhersins varpaði sprengjum sínum. Sprengj- urnar féllu m.a. á bakarí. Talið er að 50 til viðbótar hafi særst í loft- árásinni. Kalla árásina fjöldamorð Borgin Halfaya, sem er í Hama- héraði, er alfarið á valdi uppreisn- armanna og hafa grasrótarsamtök þeirra þegar kallað árásina fjölda- morð. Sjónarvottar segja konur og börn vera meðal þeirra sem létu líf- ið í árás stjórnarhersins í gær. Myndband hefur þegar birst á netinu sem sýnir myndir frá vett- vangi árásarinnar. Þar má m.a. sjá rústir bakarísins, látið fólk í húsa- rústum og menn bera lík á baki sér út úr rústum húsa. Ekki er vitað hver tók mynd- bandið upp en á því má heyra myndatökumanninn segja: „MiG- orrustuþota hefur gert árás. Sjáið vopn Assads forseta. Heimur, horfðu á fjöldamorðið í Halfaya.“ Mannréttindasamtök sem starf- andi eru í Sýrlandi telja að minnst 44.000 manns hafa látið lífið í óöld- inni í landinu frá því að mótmæli og átök hófust þar í mars í fyrra. Yfir 60 létu lífið í loftárás  MiG-orrustuþota stjórnarhersins í Sýrlandi varpaði sprengjum á bakarí  Myndband hefur birst frá vettvangi AFP Rústir Fjölmargir létust í árásinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.