Morgunblaðið - 21.01.2013, Page 1

Morgunblaðið - 21.01.2013, Page 1
M Á N U D A G U R 2 1. J A N Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  16. tölublað  101. árgangur  NÝR VETTVANG- UR FYRIR TÍSKU- LJÓSMYNDIR KVIKMYNDIN XL FRUMSÝND FRIÐRIK ÞÓR SITUR EKKI AUÐUM HÖNDUM MARGT UM MANNINN 28 STÖÐUGUR INNRI HLÁTUR 26DEA MAGAZINE 10 Hollustan hefst á gottimatinn.is léttur fiskréttur Kristján H. Johannessen Björn Jóhann Björnsson „Ástandið er mjög erfitt og álag mik- ið, langt út fyrir Landspítalann. Það er ekki þrautalaust að halda rekstr- inum í jafnvægi við þessar kringum- stæður,“ segir Sigríður Snæ- björnsdóttir, forstjóri Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja, um stöðuna á stofnuninni en í ofanálag hefur þurft að grípa til þess að takmarka heimsóknir vegna flensu. Á sama tíma eru nærri 40 manns enn í einangrun á Landspítala sem starfað hefur á fyrsta stigi við- bragðsáætlunar frá því fyrir helgi vegna aukins álags af völdum vírus- faraldra. Már Kristjánsson, yfir- læknir smitsjúkdómadeildar LSH, segir stöðufund verða haldinn fyrir hádegi í dag. „Þá verður tekin ákvörðun um hvort við getum haft einhverja val- starfsemi í gangi en það verður í al- gjöru lágmarki,“ segir Már. »6 Álag setur sterkan svip á spítalana  Stöðufundur verður haldinn á LSH fyrir hádegi  Erfitt ástand líka á HSS Morgunblaðið/Golli Landspítali Mikið álag hefur verið á starfsfólki spítalans að undanförnu. Íslenska karlalandsliðið í handknattleik lauk í gærkvöldi keppni á heims- meistaramótinu á Spáni þegar það tapaði naumlega fyrir heims- og Ólymp- íumeisturum Frakka, 28:30, í Barcelona. Kári Kristján Kristjánsson var öflugur á línunni hjá íslenska liðinu og á myndinni er hann í hörðum slag við frönsku vörnina. » Íþróttir Féllu út með sæmd Ljósmynd/Hilmar Þór Ísland hefur lokið keppni á HM á Spáni Skúli Hansen skulih@mbl.is Trúnaðarráð VR samþykkti með miklum meirihluta í gærkvöldi, 43 atkvæðum gegn 2, að framlengja kjarasamninginn. „Það er mjög þung krafa, bæði á atvinnurekendur og hið opinbera, að halda aftur af verðlagshækkunum á komandi mán- uðum,“ segir Stefán Einar Stefáns- son, formaður VR. Annars sé stöð- ugleika á vinnumarkaði ógnað. Að sögn Stefáns Einars hefur hann því fullt umboð til þess að fram- lengja kjarasamninginn þegar hann fer inn í samninganefndina. Í dag verður því að öllum líkindum gengið frá samkomulagi ASÍ og SA um framlengingu kjarasamninga en til stendur að framlengja þá til 30. nóvember á þessu ári. Að sögn Vil- hjálms Egilssonar, framkvæmda- stjóra SA, og Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, mun undirbúningur fyr- ir næstu kjarasamninga hefjast sem fyrst. Báðir benda þeir á að aðkoma ríkisstjórnarinnar að samkomulag- inu hafi engin verið. „Við ætlum að reyna að hefja und- irbúning að næstu samningum varð- andi vinnulag við gerð kjarasamn- inga,“ segir Gylfi og bætir við að vonandi geti sú vinna alið af sér ein- hvers konar þjóðarsátt. MGanga frá samkomulagi »4 Fyrstu skref að nýrri þjóð- arsátt í dag  Samþykkt í stjórn og trúnaðarráði VR í gær að framlengja kjarasamninginn Samkomulag » Allt stefnir í að kjarasamn- ingar verði í dag framlengdir til 30. nóvember 2013. » Stjórnvöld höfðu enga að- komu að samkomulagi aðila vinnumarkaðarins.  Ríkisstjórn- arflokkarnir munu í dag funda með stjórnarand- stöðunni en á fundinum stend- ur til að ræða tímalengd um- ræðunnar um stjórnarskrár- frumvarpið. Þingflokks- formenn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks ætla að mæta á fund- inn. „Það auðvitað vekur nokkra furðu mína að það sé verið að funda um þetta mál þegar allar nefndir þingsins eru ekki ennþá búnar að skila sínu áliti til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar,“ segir Illugi Gunn- arsson og bætir við: „Mér finnst þetta einmitt um leið endurspegla vinnubrögðin í þessu máli .“ »4 Funda í dag um stjórnarskrána Illugi Gunnarsson  „Það er erfitt að kalla þetta nokk- uð annað en aðför að því samfélagi sem við búum í. Staðreyndin er sú að ríkisvaldið er búið að skera nið- ur hjá okkur um 48 stöðugildi frá því 2008 eða um 14% þeirra opin- beru starfa sem fyrir voru í Skaga- firði. Það hlýtur að vekja spurn- ingar um framtíðarsýn ríkisins gagnvart svæðinu,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar, en opin- berum störfum í Skagafirði hefur fækkað meira en annars staðar á landinu frá 2008. bjb@mbl.is »12 Aðför stjórnvalda að Skagfirðingum Skagafjörður Færri opinber störf. „Ég lít svo á að ríkisstjórnin hafi klúðrað 2013 og í rauninni sé þess vegna meginviðfangsefni okkar að horfa til næstu ára og hvernig við getum kom- ist í það að bæta lífskjörin á grundvelli efnahags- legs stöðugleika og lágrar verðbólgu,“ segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en hann bendir á að ekki hafi verið óskað eftir aðkomu stjórnvalda að samkomulag- inu. Í sama streng tekur Gylfi Arnbjörnsson, for- seti ASÍ. »4 Horft verði til næstu ára EKKI VAR ÓSKAÐ EFTIR AÐKOMU STJÓRNVALDA Vilhjálmur Egilsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.