Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
L
ogi hefur ennfremur haldið fjölda fyr-
irlestra vítt og breitt um landið, og
þar, eins og í þjálfuninni, leggur hann
mikla áherslu á hugarfarið þegar fólk
stendur andspænis ákveðnu verkefni.
Hvernig lýsir Logi fyrsta skrefinu í átt að heil-
brigðari lífsstíl?
Markmiðasetning er lykillinn
„Fyrsta skrefið er yfirleitt komið þegar við-
komandi hefur samband við mig. Þá veit ég að
boltinn er hjá mér og ég stýri ferðinni eftir
það,“ útskýrir Logi. „Ég legg mikla áherslu á
að vera öðruvísi og bjóða uppá allt aðra þjón-
ustu en aðrir á markaðnum. Ég vinn eftir
ákveðnu viðskiptamódeli sem snýst um að
kenna fólki að setja sér markmið og vinna eftir
þeim. Ég er að þjálfa atvinnumenn jafnt sem
anti-sportista, unglinga og gamalmenni, allt í
senn. Fólk sem kemur til mín finnur að það
lærir að tileinka sér nýjan lífstíl og þá bæði
andlega og líkamlega. Ég lít á mig sem skip-
stjóra á heilsuskipi sem kippir fólki á hunda-
sundi sem á langt í land upp í bát til mín. Þá
kenni ég því að æfa og borða og setja sér
SMART markmið. Síðan sigli ég því á þurrt
land og það getur haldið áfram sjálft eftir það.
90% af árangri fólks koma í gegnum mataræði.
Æfingarnar lít ég á sem viðbætur við það. Æf-
ingaprógramm er ekkert annað en verkfæri
sem þarf að læra að nota, í réttu magni, með
réttri tækni og í einhverjum tilgangi. Það þarf
enginn að vera með blóðbragð í munninum til
þess að ná árangri.“
Logi útskýrir í framhaldinu nánar hvað ná-
kvæmlega felst í SMART markmiðasetningu.
„SMART markmiðasetningin virkar alltaf:
S = Skýr: mikilvæg, læsileg og skiljanleg.
M =Mælanleg: þú verður að vita hvenær þú
hefur náð þeim.
A = Alvöru: þú verður að geta náð þeim.
R = Raunhæf: það má ekki taka of langan
tíma að ná þeim.
T = Tímasett: settu lokatíma á markmiðin.
Þetta er þægilegt módel til að halda utan um
markmiðin. Hinsvegar snýst þetta alltaf í lok
dagsins um hugarfar.“
Hugarfar keppnismannsinns
Ef til vill veigra einhverjir sér við því að
leita til þjálfara sem á að baki mörg ár sem at-
vinnumaður í þýsku úrvalsdeildinni í hand-
bolta, og spyrja sig jafnvel hvort það sé eitt-
hvað fyrir meðaljóninn. Lítur Logi á sig sem
strangan þjálfara? „Ég er metnaðarfullur og
gefst ekki upp á þeim sem leita til mín,“ segir
Logi með áhersluþunga. „Ég legg mikið upp
úr eftirfylgni og sendi gjarnan hvetjandi sms-
skilaboð um helgar til skjólstæðinga minna, og
minni þau á það sem skiptir mestu máli; að
halda blóðsykrinum í jafnvægi yfir daginn og
minna þau á markmiðin sem við settum okkur
en þau eru alltaf til 4 vikna í senn.“ Logi bend-
ir á í framhaldinu að hann líti á kúnnana sem
samherja sína í ákveðnu verkefni og þeir séu í
raun hans besta auglýsing. „Ég vil að word-of-
mouth auglýsingin — orðsporið — og árang-
urinn sem mitt fólk nær fái annað fólk til að
koma að prófa. Það er í þessu eins og öllu öðru
— gæðin fara í gegn.“
Logi minnir á í þessu sambandi að hann
komi fram við sjálfan sig með sama aganum og
hann temur sínum viðskiptavinum. „Ég hef
ávallt litið á sjálfan mig með gleraugum gagn-
rýninnar. Ég hef það alltaf að markmiði að
vera besta mögulega útgáfan af sjálfum mér
og vil hjálpa öðrum við að vera það líka. Ég
held að það sé líka ein af ástæðunum fyrir því
að ég hef náð þeim árangri sem ég státa af. Ég
er nú samt þannig að ég lít aldrei í baksýnis-
spegilinn og velti mér ekki uppúr því hvað ég
gerði, því þá hef ég ekki gert mikið í dag.“
Að sögn Loga er það þessi löngun að vilja
hjálpa öðrum að líða vel sem dregur hann út í
daginn. „Ég hef tekið eftir því að það er fólk á
milli 30 og 60 ára sem dauðlangar að fara að
hreyfa sig en hreinlega kann það ekki og veit
ekki hvar það á að byrja. Það kemur til mín og
ég leiðbeini þessum hópi að taka sín fyrstu
skref í bættum lífstíl þar sem ég breyti hindr-
unum þeirra í ný tækifæri. Ég lít á það sem
styrkleika að hafa farið í gegnum þetta allt
sjálfur, þyngt mig um 15 kg, létt mig um 14 kg,
þannig að ég veit hvernig er best að gera
þetta. Ég bý líka að ágætis reynslu þar sem
líkaminn var minn vinnustaður sem atvinnu-
maður hjá Lemgo í Þýskalandi.“
Allt í botn og engar bremsur
Að sögn Loga eru nokkrir grunnþættir sem
þurfa að vera í lagi vilji fólk tileinka sér heil-
brigðan lífsstíl. „Ég tala stundum um eftirfar-
andi formúlu í þessu sambandi: skipulagning,
agi, markmið + rétt formúla í æfingum og
mataræði = árangur. Þetta er það sem ég geri
þegar fólk kemur til mín í þjálfun. Ég geri fyr-
ir það skothelda einstaklingsmiðaða formúlu
sem það þarf bara að fylgja. Flóknara er það
ekki.“
Logi er með mörg járn í eldinum, og hefur
svo verið síðan hann kom heim frá Þýskalandi.
Hvert sækir hann hvatningu og innblástur til
að klára þau verkefni sem hann tekst á við?
„Ég reyni að nýta tímann því annars nýtir
hann mig. Ég segi stundum að ég reyni að láta
hvern dag telja en tel ekki dagana. Svo er ég
með fleiri tugi markmiða sem ég skrifa niður
og elti. Þannig verða hlutirnar að veruleika hjá
mér. Skýr markmið veita skýra sýn, og ég lifi
nákvæmlega því lífi sem mig langar til.“ Þegar
Logi vill kasta mæðinni og slaka vel á fer hann
hann hinsvegar gjarnan með fjölskylduna til
sólarlanda til að hlaða rafhlöðurnar. „Það er
öllum hollt að skipta reglulega um umhverfi.
Ég nýt lífsins á hverjum degi hér á Íslandi,
elska að hitta nýtt fólk og hjálpa því. Það
breytir því ekki að mér finnst gott að breyta til
og geri það tvisvar til þrisvar sinnum á ári, í
faðmi fjölskyldunnar.“ Ekki veitir víst af þar
sem nóg er um að vera hjá Loga eftir áramót-
in. „Ég er að klára viðskiptafræðina í Háskól-
anum á Bifröst um næstu jól, samhliða því að
spila handbolta með FH og sinna þjálfuninni
og auðvitað fjölskyldunni. Þannig að það er
nóg að gera.
Og árið 2013?
Árið 2013 verður bara eins og 2012, allt í
botn og engar bremsur. Það var uppselt hjá
mér 9 mánuði af 12 á árinu 2012 og ég býst
ekki við minni aðsókn á næsta ári“ segir Logi
og lýkur spjallinu á vel valinni hvatningu:
„Aim high, you usually hit where you aim.“
jonagnar@mbl.is
Að láta hvern dag skipta máli
Logi Geirsson er landanum að
góðu kunnur fyrir afrek sín á
handboltavellinum enda einn af
silfurdrengjunum frá Peking, eins
og landsliðshópurinn er oft nefnd-
ur. Hin seinni misseri hefur hann
ennfremur látið til sín taka við
einkaþjálfun og fjarþjálfun. Þar
temur hann þátttakendum hug-
arfar keppnismannsins — og
sigurvegarans.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Metnaður „Ég hef ávallt litið á sjálfan mig með gleraugum gagnrýninnar. Ég hef það alltaf að markmiði að vera besta mögulega útgáfan
af sjálfum mér og vil hjálpa öðrum við að vera það líka,“ segir Logi Geirsson handboltamaður og einkaþjálfari.
’Að sögn Loga er það þessilöngun að vilja hjálpa öðr-um að líða vel sem dregurhann út í daginn. „Ég hef tekiðeftir því að það er fólk á milli
30 og 60 ára sem dauðlangar
að fara að hreyfa sig en hrein-
lega kann það ekki og veit ekki
hvar það á að byrja.