Morgunblaðið - 03.01.2013, Qupperneq 20
Á
vefnum mínum eru upp-
skriftir sem ég hef prófað,
jafnvel þróað eitthvað
áfram og verið ánægð
með,“ segir Berglind, eða
Begga eins og hún er kölluð. „Eins og
síðunafnið gefur til kynna legg ég
áherslu á litríkan og fjölbreyttan mat
sem er um leið hollur og næring-
arríkur.“ Hún nefnir að synir hennar
séu jafnan aðstoðarmenn í eldhúsinu
og gangi oftar en ekki í hlutverk dóm-
ara þegar kemur að því að smakka.
Það ætti því að mega finna þar eitt-
hvað fyrir alla í fjölskyldunni, ekki
síst ef marka má réttina hennar
Beggu sem hér fara á eftir.
Grænmetisborgari úr
sætum kartöflum og kínóa
„Holl og næringarrík máltíð sem
bragðast frábærlega.“
2 meðalstórar sætar kartöflur
1/4 bolli kínóa, óeldað
2 msk. smjör
2 msk. lífrænt maple-síróp
1/4 tsk chayenne-pipar
1 bolli kál, t.d. grænkál eða spínat, saxað
smátt
½ bolli pecanhnetur, ristaðar og saxað-
ar
svartur pipar
4 hamborgarabrauð
Hitið ofninn á 200°C.
Sjóðið kartöflurnar þar til þær eru
fulleldaðar. Látið síðan í skál og
stappið.
Hitið að suðu 3/4 bolla af vatni
ásamt kínóa. Lækkið hitann og látið
malla með loki á pottinum í um 8-10
mínútur, eða þar til kínóa er orðið
gagnsætt. Takið þá af hellunni og lát-
ið standa í um 5 mínútur.
Í öðrum potti bræðið smjörið og
bætið chayenne-pipar og sírópi út í.
Hellið blöndunni saman við sætu
kartöflumúsina, ásamt káli, kínóa,
pecan-hnetum og ½ tsk. af salti.
Blandið vel saman.
Mótið 4 borgara úr blöndunni og
látið á ofnplötu með olíupensluðum
smjörpappír.
Bakið í 35 mínútur og snúið einu
sinni.
Berið fram með sýrðum rjóma,
avókadó, tómötum, rauðlauk og sal-
atblöðum.
Detox-salat
„Þetta salat kemur öllum sem það
bragða skemmtilega á óvart. Stútfullt
af næringarefnum og dásamlegt á
bragðið. Gott eitt og sér eða sem með-
læti með mat.“
2 brokkolí, stiklar fjarlægðir
1 blómkál, stiklar fjarlægðir
5 gulrætur
½ bolli graskersfræ
1 bolli þurrkuð trönuber eða rúsínur
½ bolli steinselja, söxuð
6 msk. sítrónusafi
Sjávarsalt og pipar
Lífrænt maple-síróp
Fínrífið brokkólí í matvinnsluvél og
látið síðan í stóra skál. Gerið eins með
blómkálið. Endurtakið að lokum með
gulræturnar.
Hellið graskersfræjum, trönuberj-
um/rúsínum og steinselju í skálina.
Bætið við sítrónusafanum og saltið og
piprið. Blandið vel saman.
Rétt áður en salatið er borið fram
er sírópinu hellt yfir.
Gríska gyðjan — fyrir 4
„Þessi eftirréttur er í uppáhaldi hjá
mér. Einfaldur, fljótlegur og dásam-
legur á bragðið. Ekki skemmir það
svo fyrir hversu fallegur hann er. Hér
gerast töfrar á nokkrum mínútum.“
420 g grísk jógúrt frá Biobú
1 peli rjómi
1 vanillustöng
Gott múslí
Ávextir, t.d. jarðarber eða granatepli
Agavesíróp
Grískri jógúrt og rjóma hrært
saman þar til það er orðið stíft. Van-
illukornunum er síðan hrært út í.
Látið í glas fyrst múslí, síðan jóg-
úrtblönduna og loks ávexti yfir. Að
lokum er sírópi hellt yfir að smekk
hvers og eins.
jonagnar@mbl.is
Litríkt og
ljúffengt
Gulur Rauður Grænn & Salt nefnist litríkur upp-
skriftavefur þar sem hollustan ræður ríkjum. Síðu-
haldari er matgæðingurinn og hjúkrunarkonan Berg-
lind Guðmundsdóttir og féllst hún á að deila
girnilegum uppskriftum með lesendum.
Ljúfmeti
Grænmet-
isborgari úr
sætum kart-
öflum og kí-
nóa
Guðdómlegur
Eftirrétturinn
Gríska gyðjan
svíkur engan
Berglind Guðmundsdóttir
Hreinsandi
Detox-
salatið er
ljúffengt
bæði og lit-
fagurt.
20 | MORGUNBLAÐIÐ
Margrét pilateskennari
Í heilsurækt Sjúkraþjálfunar Styrks eru námskeið og hópþjálfun á vorönn
að hefjast að nýju, í rúmgóðum og björtum húsakynnum að Höfðabakka 9.